Ægir - 15.08.1966, Page 5
ÆGIR
239
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í júní.
Veðráttan var fremur hagstæð til sjáv-
ai’ins í mánuðinum, en afli var fremur
tregur. Síldveiðarnar gengu nokkuð vel, þó
mJög langt væri að sækja veiðina. Öll síld
Seni barst á land fór í síldarverksmiðjurn-
ar nema fáeinar tunnur sem voru saltaðar
s’ðast í mánuðinum og lítilsháttar sem var
lryst til beitu. Síldin hefir verið smá og
ekki verið talin hæf til söltunar.
Hornafjörður: Þaðan voru gerðir út
Górir stórir bátar á síldveiðar, einn
stundar botnvörpuveiðar og siglir með afl-
ann cg fjórir stunda humarveiðar. Afli
agður á land í mánuðinum var 88 lestir,
Par af voru 42 lestir af slitnum humar.
Djúpivogur: Þaðan var einungis
j>Sunnutindur“ gerður út til síldveiða.
Hdarverksmiðjan var búin að taka á móti
ÓO tonnum af síld. Engin síld hafði verið
Seltuð.
Breiðdalsvík: Þaðan var einungis einn
,a^Ur. „Sigurður Jónsson“, gerður út til
Slldveiða- Síldarverksmiðjan var búin að
aka á móti 1000 lestum af síld. Engin síld
afði verið söltuð.
Stöðvarfjörður: Þaðan var ,,Heimir“
&ei'ður út til síldveiða. Bygging síldar-
lerksmiðjunnar miðar allvel áfram.
. Háskrúðefjörður: Þaðan voru tveir stór-
0, bátar á síldveiðum. Átta litlir bátar
®ru í mánuðinum með línu framan af, en
f. eð handfæri seinnihlutann. Yfirleitt
skuðu þeir fremur vel, mest 4 lestir í
eðri. Mest hefir það verið smáfiskur sér-
f aklega á handfærin. Aflann salta þeir
ver fyrir sig, Síldarverksmiðjan var bú-
a að taka á móti 6000 tonnum af síld. Eng-
u síld var söltuð.
Reyðarfjörður: Stóru bátarnir tveir
v°ru
mÚl;
a síldveiðum. Frá Vattarnesi og Kol-
a var róið nokkuð á opnum vélbátum
^ eð handfæri og aflaðist fremur vel, oftast
v eitt tonn í róðri. Síldarverksmiðjan
af1 a^ ^aka a móti um 7000 tonnum
sild. Ekkert verið saltað,
Eskifjörður: Þaðan voru sex stórir bát-
ar á síldveiðum. Einn lítill þilfarsbátur
reri, aðallega með línu og fiskaði sæmilega
oftast lþó—2 lestir í róðri. Síldarverk-
smiðjan var búin að taka á móti 11400
tonnum af síld. Engin síld verið söltuð.
Nýja síldarverksmiðjan mun senn verða
tilbúin.
Norðfjörður: Þaðan voru sex stórir bát-
ar á síldveiðum. Einn var á botnvörpu-
veiðum og sigldi méð aflann. Átta litlir
þilfarsbátar réru með línu og handfæri og
fiskuðu nokkuð vel. Annar afli en síld
lagður á land í mánuðinum var 144 tonn.
Aflahæsti báturinn í mánuðinum var með
32 tonn. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti 22000 tonnum af síld. Eitthvað
lítilsháttar var saltað og fryst af síld.
Mjóifjörður: Þaðan var ekkert róið.
Seyðisfjörður: Þaðan voru þrír stórir
bátar á síldveiðum. Tveir litlir þilfarsbát-
ar réru, en afli þeirra var fremur lítill.
Alls voru komin tæp 29000 tonn af síld í
síldarverksmiðjurnar. Tvær síldarsöltun-
arstöðvar höfðu saltað í um 100 tunnur
hvor, en síldin var ekki nógu góð til sölt-
unar. Bygging nýju síldarverksmiðjunn-
ar miðar allvel áfram, en ekki er búizt við
að hún verði tilbúin fyrr en seint í sum-
ar eða með haustinu.
Borgarfjörður: Þaðan hafa tveir opnir
vélbátar róið með handfæri en aflað mjög
lítið. Síldarverksmiðjan var búin að taka
á móti 540 tonnum af síld. Síldarverk-
smiðjan heíir verið endurbætt og aukin
svo að nú er ætlað að hún geti unnið úr
rúmlega 1000 málum af síld á sólarhring.
Vopnafjörður: Þaðan var ekkert róið
til fiskjar. Fimm opnir vélbátar stund-
uðu nokkuð hrognkelsa- og hákarlaveiði í
vor. Sá afli varð alls um 80 tunnur af grá-
sleppuhrognum og nærri 60 fullorðnir há-
karlar. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti 8376 tonnum af síld. Engin síld
var söltuð.
Bakkafjörður: Þaðan stunduðu sex
opnir vélbátar róðra með handfærum.