Ægir - 01.12.1966, Side 4
354
ÆGIR
hafna SV-lands í vikunni og nam sá afli
4549 lestum. Ekki liggja endanlega fyrir
tölur um nýtingu aflans eftir verkunar-
aðferðum, en reiknað er með að 80% afl-
ans hafi farið til verkunar. Af aflanum
var saltað í 2310 tunnur og til frystingar
hafa þá væntanlega farið 3308 lestir og
til bræðslu 3963 lestir.
Vikuaflinn, sem barst á land, nam 21.585
lestum, þar af fóru 3735 lestir til frysting-
ar og saltað var í 3963 tunnur. Heildar-
aflinn kominn á land var 597.850 lestir
og skiptist þannig eftir verkunaraðferð-
um:
í salt .............. 56.580 lestir
I frystingu .......... 8.535 —
í bræðslu .......... 532.734 —
Á sama tíma í fyrra nam heildaraflinn
475.271 lest og skiptist þannig:
í salt .............. 58.575 lestir
I frystingu .......... 3.741 —
í bræðslu .......... 412.955 —
Laugardaginn 19. nóv.: Til Vestmanna-
eyja og hafna SV-lands bárust 2755 lestir
af Austfjarðamiðum. Af aflanum var salt-
að í 5100 tunnur og í frystingu fóru 1608
lestir og til bræðslu 402 lestir. Nýting afl-
ans var yfirleitt góð eða um 80%.
Vikuaflinn nam 21.503 lestum, þar af
fóru 1981 lest í frystingu og saltað var í
8913 tunnur. Heildaraflinn í vikulok var
orðinn 619.210 lestir og skiptist þannig
eftir verkunaraðferðum:
í salt .......... 57.881 lest
í frystingu ..... 10.404 —
f bræðslu .......... 550.925 —
Auk þess hafa erlend skip landað 4829
lestum hérlendis til vinnslu.
Á sama tíma í fyrra nam heildaraflinn
495.394 lestum og skiptist þannig eftii'
verkunaraðferðum:
í salt .............. 58.647 lestir
f frystingu ..... 3.964 —
í bræðslu ....... 432.783 —
SÍLDVEIÐARNAR
sunnanlands og vestan
Laugardaginn 19. nóv.: Á tímabilinu fra
23. okt. til 19. nóv. fékk aðeins einn bátur
afla, 14 lestir. Heildaraflinn nemur uni
45.164 lestum, en var á sama tíma í fyrra
90.673 lestir.
Iltgerðarmenn!
STIJART
Nylon síldarnætur framleiddar af
J. W. STEJART LOT.,
MUSSELBURGH, SKOTLANDI,
reynast afburðavel og eru endingargóðar.
Umboðsmenn:
lirisfján Ó. Skagfjörð h.f.9
Reykjavík — Sími 24120