Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1967, Side 5

Ægir - 01.05.1967, Side 5
ÆGIR 135 inum rak hafís að Norðurlandi, en gerði þó ekki tjón á veiðarfærum svo teljandi sé. Skagaströnd: Ekkert farið á sjó. Sau'Öúrkrókur: Þrír bátar reru með net. Afli sama og enginn. SiglufjörÖur: Tveir bátar voru á togveið- um og öfluðu: „Siglfirðingur“ 80 lestir og „Hringur“ 5 lestir. B.v. „Hafbði“ landaði 134 lestum úr einni veiðiferð. Smábátar kom- ust ekki á sjó vegna illviðra. Dalvík: „Björgvin“ og „Björgúlfm'" voru á togveiðum og fengu 160 lestir. Engir minni bátar fóru á sjó nema með rauðmaganet. Var afli þeirra góður, allt upp i 140 stykki i net. ÖlafsfjörÖur: Afli var sem hér segir: Fjórir netabátar með 170 lestir. Finnn línubátar tneð 277 lestir. Einn togbátur með 163 lest- ir. Smábátar sóttu ekki sjó vegna illviðra. Hrísey: Einn bátur rerí með net og aflaði 82 lestir. Fimm færabátar fengu 10 54 lest. Árskógsströnd: Fimm bátar reru með net. Afli þeirra var samtals 190 lestir. Grenivík: Sama og ekkert farið á sjó vegna ógæfta. Húsavík: Átta línu- og netabátar fengu samtals 173 Jestir. Raufarhöfn: Ekkert farið á sjó. AU STFIBÐIN G AF J ÖRÐUNGUR Marzmánuður. Tiðarfar i mánuðintun var stormasamt og kalt og ekkert sttmdaðm- sjór nema á stóru bátunum, sem voru við Suður- og Suðvestur- land. Var miklu af afla þeirra landað þar. Djúpivogur: Þaðan var ekki önnur útgerð en „Sunnutindur“, sem var með þorskanet °g lagði á land 130 lestir úr fjórum veiði- ferðum. BreiÖdalsvík: Þaðan var ekki ónnur útgerð en „Sigm-ðm’ Jónsson“, sem veiddi i þorska- net og lagði á land 255 lestir úr fimrn ferð- um. Nýr bátur er væntanlegm þangað. StöðvarfjörÖur: Þaðan stundaði veiðar einn bécur „Heimir“, sem var með þorskanet, og Ugði á land 324 lestir óslægt, úr sex ferðum. FáskrúÖsf jörÖur: Þaðan reru tveir bátar í ntánuðinum. „Hoffell11 var með þorskanet og var búið að landa 140 lestum úr þrem- m ferðum. „Bára“ var framan af mánuð- inum á loðnuveiðmn við Suðurland, en fór seint í mánuðinum á veiðar með þorskanet og hafði lagt á land 70 lestir úr einni ferð. Tveir Htlir þilfarsbátar hefja róðra með línu eða handfærí er aðstæðm leyfa. Reyðarfjörður: Þaðan hófu „Gunnar“ og „Snæfugl“ veiðar með þorskanet nálægt miðjnm mánuðinum. Þeir hafa farið þrjár ferðir hvor og fengið samtals 232 lestir. Eskifjörður: Þaðan voru gerðir út fjórir bátar, „Krossanes“, „Hólmanes“ og „Jón Kjartansson“, sem allir eru með þorskanet og hafa lagt á land samtals 388 lestir úr átta ferðum. „Seley“ hefm verið á veiðtun með þorskanót sunnanlands, og lagt aflann þar á land. Norðfjörður: Þaðan voru fjórír stórir bát- ar komnir á veiðar með þorskanót skömmu fyrír mánaðamótin. Eirrn þeirra, „Magnús“, er nýr, kom seint í mánuðinum. Eigandi hans er Ölver Guðmtmdsson. „Glófaxi“ var á veiðum með botnvörpu og hefur að mestu lagt aflann á land á Homafirði. Fimm stórir bátar vom gerðir út frá Vestmannaeyjum og öðrum verstöðvum sunnan- og suðvestan- lands. Verið er að stækka „Sæfaxa II“. Litlu bátarnir hafa ekkert aðhafzt í mánuðinum. Enginn teljandi afli var lagður á land í mán- uðinum. MjóifjörÖur: Þaðan var engin útgerð. SeyðisfjörÖur: Þaðan vom „Gullberg“ og „Gulliver“ á veiðttm með þorskanót sunnan- lands og lögðu aflann á land í Vestmanna- eyjum. BorgarfjörÖur: Þaðan var ekkert farið á sjó í mánuðinum, enda aldrei sjóveður fyrir opna vélbáta. Vopnafjörður: Þangað vom keyptir tveir stórir bátar nýir, yfir 300 lestri hvor, og voru þeir á veiðum sunnanlands. Ekkert veiddist af hákarli í mánuðinum, enda veðr- áttan mjög slæm. Bakkafjörður: Reynt var við hrognkelsa- veiðar, en ekkert varð úr veiði vegna ótíðar og brims.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.