Ægir - 15.08.1968, Side 6
264
ÆGIR
Mímir landaði 40 lestum úr einni veiði-
ferð frá Austur-Grænlandi og Ásgeir
Kristján 18 lestum úr 5 róðrum á heima-
miðum. Heildaraflinn í júní var 69 lestir.
fsafjörSur: Júlíus Geirmundsson land-
aði 70 lestum úr einni veiðiferð frá Aust-
ur-Grænlandi. Guðbjartur Kristján byrj-
aði togveiðar rétt fyrir mánaðamótin og
landaði 42 lestum úr einni veiðiferð. Einn-
ig stunduðu 4 bátar róðra með línu í maí,
og var Straumnes aflahæst með 84 lestir í
10 róðrum. Heildaraflinn í maí var 224
lestir. I júní stunduðu svo 5 bátar róðra
með iínu, 20 með handfæri og einn með
botnvörpu. Júlíus Geirmundsson landaði
200 lestum úr 2 veiðiferðum, Víkingur III.
136 lestum úr 2 veiðiferðum og Guðrún
Jónsdóttir 60 lestum úr 1 veiðiferð af
Grænlandsmiðum. Víkingur 11. fékk 76
lestir í 21 róðri á línu og Guðný 66 lestir
í 21 róðri á línu á heimamiðum. Guðbjart-
ur Kristján aflaði 114 lestir í 3 veiðiferð-
um með botnvörpu. Af handfærabátunum
voru aflahæstir Örn með 25 lestir, Einar
15 lestir, Ver og Þristur með 13 lestir livor.
Heildaraflinn í mánuðinum var 1054 lestir.
Súöavík: 1 maí fékk Svanur 47 lestir
í 13 róðrum og Hilmir II. 32 lestir í 8
róðrum á línu. I júní fékk Svanur 23 lest-
ir í 9 róðrum með línu, en auk þess lönd-
uðu aðkomubátar og togarar 107 lestum í
júní.
Drangsnes: Ekkert var róið þaðan til
fiskjar í maí vegna hafíss, en í júní fékk
Guðrún Guðmundsdóttir 8 lestir á færi.
Hólmavík: Þaðan var heldur ekkert róið
í maí, en í júní fékk Víkingur 5 lestir á
færi.
NORÐLENDINGAFJÓRÐUNGUR
í júní.
I júní var góður afli hjá togbátum en
fiskurinn er mjög smár og seinunninn.
Mikið annríki hefur því verið á fiskvinnslu-
stöðvunum og þær ekki getað annað því,
sem að hefur borizt. Netabátar tóku upp
net sín snemma í mánuðinum og hófu sum-
ir dragnótaveiðar en aðrir veiðar með nót.
Góður þorskafli var hjá dragnótabátum.
en fiskurinn smár og mjög erfitt að losna
við hann. Nótabátar fengu góðan afla af
þorski og ýsu á Þistilfirði. Sá þorskur er
sæmilega vænn en ýsan mjög smá. Nokkr-
ir bátar eru byrjaðir handfæraveiðar, en
hafa lítið fengið. Gæftir voru góðar.
Skagaströnd: 1 bátur stundaði veiðar
með botnvörpu. Afli hans var 173 lestir.
Sauöárkrókur: 4 togbátar lögðu upp 282
iestir.
Hofsós: Berghildur var á dragnótaveið-
um og aflaði 22 lestir. Haraldur Ólafsson
og Frosti voru á handfæraveiðum og fengn
25 lestir.
Sightfjörður: Bv. Hafliði landaði þar
125 lestum og annars staðar 250 lestuni.
sem hann komst ekki með til heimahafnar
vegna hafíss. Siglfirðingur fékk 418 lestir
og er þá búinn að afla 1071 lest frá 2.
febr. Vonin KE fékk 163 lestir. Smá-
bátar hafa lítið farið á sjó.
Ólafsfjöröur:
Heildarafli togbáta var 794 lestir
Hannes Hafstein .......... 129 —
Stígandi .................. 88 —
Ólafur Bekkur ............ 105 —
Sæþór .................... 168 —
Þorleifur Rögnvaldsson 58 —
Guðbjörg’ ................ 181 —
Afgangurinn er af smábátum.
Dalvík: Heildarafli 510 lestir mest frá
togbátum. Afli var góður í júní. 3 bátar
voru á togveiðum og lögðu upp þar 383
lestir. Bjarmi var á handfæraveiðum og
aflaði 27 lestir. 3 bátar voru á dragnót
og fengu 60 lestir. Afgangurinn er af smá-
bátum á færi. Miklir örðugleikar hafa ver-
ið að taka á móti þeim fiski sem borizt
hefur að og varð m. a. að senda Björgvin
til Vestmannaeyja með 90 lestir, því lönd-
un fékkst ekki nær. Fiskurinn er mjög
smár.
Hrísey:
Heildarafli var .............. 509 lestir
M.b. Snæfell (með botnv.) .... 214 —
M.b. Sig. Bjarnas. (með botnv.) 65 —