Ægir - 15.08.1968, Side 19
ÆGIR
277
BRÁÐABIRGÐALÖG
m rúrisf.'ifnnir vi'giin flnlnin^n sjósnllnúi'ni* síliinr
nf fjnrln'Kiiiii inióiim siiinnriiY IÍMUI.
pORSETI íslands
fljorir kunnugt: Sjávarútvegsmálaráðherra hefur
tjáð mér, að brýna nauðsyn beri til að gera
i'áðstafanir til framleiðslu sjósaltaðrar sumar-
sildar á miðunum norðaustur og austur af ís-
landi, til að koma í veg fyrir yfirvofandi rýrn-
un markaða fyrir saltsíldarframleiðslu lands-
manna svo og til að bæta hag þeirra, sem eiga
hlut að saltsíldarframleiðslunni á sjó og í landi.
Nefnd, sem skipuð var á s.l. vetri til að gera
tillögur um hagnýtingu síldar á fjarlægum mið-
um sumarið 1968, hefur gert tillögur um flutn-
mga á síld, sem söltuð yrði um borð í skipum
a sumri komanda og um greiðslu kostnaðar við
Þá flutninga. Samtök sjómanna, útvegsmanna
°S síldarsaltenda hafa lýst sig samþykk þess-
Um tillögum.
Pyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög
samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa
leið:
!■ gr-
Ríkisstjórninni er heimilt að taka lán eða tak-
ast á hendur sjálfskuldarábyrgð á láni sem Síld-
arútvegsnefnd tæki, að fjárhæð allt að 15 millj-
°nu' króna, eða jafnvirði þess í erlendri mynt,
01 greiðslu kostnaðar við flutninga sjósaltaðrar
sddar til íslenzkra hafna af miðunum norðaust-
ai' og austur af íslandi á árinu 1968.
2. gr.
Síldarútvegsnefnd skal hafa forgöngu um og
^afa á hendi framkvæmd flutninga samkvæmt
P gr. og er henni heimilt að taka á leigu allt að
fimm flutningaskip í því skyni og gera aðrar ráð-
stafanir, er nauðsynlegar reynast til tryggingar
framgangs flutninganna. Enn fremur er henni
Peimilt að veita öðrum aðilum fjárhagslegan
stuðning eða aðra fyrirgreiðslu í þessu skyni,
samkvæmt reglum, sem sjávaiútvegsmálaráðherra
setur.
3. gr.
Síldarútvegsnefnd skal fyrir 10. júní 1968 gera
aætlun um heildarkostnaðinn við flutninga sam-
kvaemt lögum þessum. Skal sú áætlunarfjárhæð
dregin frá útflutningsandvirði saltsíldarfram-
leiðslunnar á Norður- og Austurlandi á árinu
1968 hjá Síldarútvegsnefnd áður en kemur til
greiðslu andvirðis til síldarsaltenda. Áætlunar-
fjárhæð þessi skal ganga til greiðslu kostnaðar
við flutningana og endurgreiðslu lána ásamt vöxt-
um samkvæmt 1. gr.
Verðlagsráð sjávarútvegsins skal leggja áætl-
un Síldarútvegsnefndar samkvæmt 1. mgr. þess-
arar greinar til grundvallar verðlagningu sumar-
síldar til söltunar á árinu 1968. Hinn áætlaði
heildarkostnaður við flutningana skal við verð-
ákvörðun skiptast til helminga milli útgerðar-
manna og sjómanna annars vegai- og síldarsalt-
enda hins vegar.
4. gr.
Reynist kostnaður við flutninga samkvæmt lög-
um þessum minni en áætlun Síldarútvegsnefndar
samkvæmt 3. gr. gerir ráð fyrir, skal sú inn-
eign geymd á sérstökum reikningi til næsta árs
til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun Verðlagsráðs
sjávarútvegsins.
Reynist kostnaður við flutninga samkvæmt lög-
um þessum meiri en áætlun Síldarútvegsnefndar
samkvæmt 3. gr. gerir ráð fyrir, skal sá viðbót-
arkostnaður greiddur af útflutningsandvirði salt-
síldarframleiðslunnar á Norður- og Austurlandi
á árinu 1969 og skal Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins leggja þann viðbótarkostnað til grundvallar
við verðákvörðun sumarsíldar til söltunar vorið
1969 og skiptast til helminga milli útgerðarmanna
og sjómanna annars vegar og síldarsaltenda hins
vegar.
5. gr.
Sjávarútvegsmálaráðherra getur sett reglugerð
um nánari framkvæmd laga þessara, þar á meðal
um löndunarstaði, kaup, yfirtöku og skoðun salt-
síldar, sem flutt er samkvæmt ákvæðum laganna.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 10. maí 1968.
Ásgeir Ásgeirsson.
(L. S.)
Eggert G. Þorsteinsson.