Ægir - 01.11.1968, Blaðsíða 3
ÆGIR
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
61. árg. Reykjavík 1. nóv. 1968 Nr. 19
Utgerð og aflabrögð
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
september 1968.
Afli færabátanna varð yfirleitt heldur
rýr í mánuðinum vegna þrálátra ógæfta,
en þegar gaf til róðra fékkst oft ágætur
afli. Margir færabátanna hættu því róðr-
um snemma í mánuðinum. Er þetta lang-
samlega lélegasta vertíð hjá færabátunum
um árabil. Dragnótabátarnir fengu aftur
á móti dágóðan afla fram eftir mánuðinum
og sama er að segja um afla togbátanna.
Hjá línubátunum var sáratregur afli all-
an mánuðinn, 3—4 lestir í róðri. Tveir
bátar frá Patreksfirði réru með þorskanet
og söltuðu aflann um borð. Fengu þeir
báðir ágætan afla, Vestri við Kolbeinsey
og Helga Guðmundsdóttir við Vestur-
Grænland.
I september voru 119 bátar að einhverju
leyti við róðra, en margir stopult, sérstak-
lega handfærabátarnir. 80 bátar reru með
handfæri, 24 með línu, 7 með troll, 6 með
dragnót og 2 þorskanet. Varð heildarafli
þessara báta í mánuðinum 1968 lestir, en
var 1306 lestir á sama tíma í fyrra. Er
aflinn á sumarvertíðinni þá orðinn 12.400
lestir, en var 8.846 lestir í fyrra. Er það
aukin þátttaka stærri bátanna í veiðun-
um, sem veldur þessari aflaaukningu, en
þessir bátar stunduðu flestir síldveiðar á
s.l. sumri.
Afli í einstökum verstöðvum:
Patreksfjöröur: Heildaraflinn í mánuð-
inum var 252 lestir. 6 bátar stunduðu drag-
nótaveiðar, 1 botnvörpuveiðar og 2 neta-
veiðar. Af dragnótabátunum var Brimnes
aflahæst með 58 lestir í 13 róðrum, Jón
Þórðarson aflaði 46 lestir í botnvörpu og
Vestri landaði 20 lestum af saltfiski, sem
hann fékk í net við Kolbeinsey.
Tálknafjöröur: Sæfari var eini bátur-
inn, sem reri frá Tálknafirði í mánuðin-
um. Hann aflaði 59 lestir í botnvörpu og
lagði mestan hluta aflans upp á ísafirði.
Bíldudalur: Pétur Thorsteinsson og
Andri stunduðu botnvörpuveiðar, og afl-
aði Pétur Thorsteinsson 94 lestir, en Andri
fékk lítinn afla. 4 trillur fóru nokkra róðra
með færi og fengu um 10 lestir.
Þingeyri: Nokkrir færabátar stunduðu
róðra í mánuðinum og fengu 37 lestir.
Flateyri: Þaðan réru 9 bátar með línu
og 3 með færi, og varð heildarafli þeirra
155 lestir. Aflahæstir voru Bragi með 44
lestir, Ásgeir Torfason 39 lestir og Hinrik
Guðmundsson 23 lestir, en þessir bátar
reru allir með línu.
Suðureyri: Þaðan reru 3 bátar með línu
og 13 með færi, og varð heildarafli þeirra
í mánuðinum 176 lestir, en þeim afla var
að mestu leyti landað í verstöðvunum við
Djúp, þar sem frystihúsin á Suðureyri
hættu bæði fiskmóttöku í byrjun mánaðar-
ins. Aflahæstir voru Ólafur Friðbertsson