Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1968, Qupperneq 10

Ægir - 01.11.1968, Qupperneq 10
ÆGIR 364 meira en í norðausturhluta Atlantshafs- ins á sama tímabili. Mest af þorskaflan- um fæst á norðurhluta svæðisins eða bönk- unum úti af Nova Scotia, Nýfundnalands- miðum, Labrador og Vestur-Grænlandi.Við Nova Scotia er talið að séu 4 mismunandi þorskstofnar og eru þeir allir mikið nýttir. Þorskveiðarnar við Nýfundnaland eiga sér langa sögu og litríka og eru með þeim mestu í heiminum. Á þessu svæði eru 5 mismunandi þorskstofnar: Labrador-Ný- fundnalands-stofninn, Flemish Cap-stofn- inn og svo stofnarnir á Stóra Fiskibanka, St. Pierrebanka og við vesturströnd Ný- fundnalands. Stærstur er stofninn við Labrador-Nýfundnaland og fékkst úr hon- um tæpur helmingur aflans á þessu svæði á árunum 1960—’66. Það er tiltölulega stutt síðan að farið var að nýta stofninn við Labrador og má segja að ekki hefjist veiðar á honum að neinu ráði fyrr en árið 1960. Það er erfitt að áætla áhrif veiðanna á stofninn við Labrador-Nýfundnaland, bæði vegna þess hve fiskur vex mishratt á þessu svæði, svo og vegna þess hve óreglu- leg sóknin hefur verið í Labradorstofninn. Þó virðist sem veiðin sé þegar komin upp í 80% af æskilegum hámarksafla eða sé jafnvel komin yfir mörkin. Áhrif veiðanna á þorskstofnana fyrir sunnan þetta svæði eru ekki jafnvel þekkt, en ýmislegt bendir til þess að dánartalan af völdum veiðanna sé orðin svo há, sem æskilegt megi telja. Veiðarnar við Vestur-Grænland byggj- ast nú svo til eingöngu á þorski og á seinni árum hefur þessi eina tegund verið um 90% af heildarveiðinni á þessu svæði. Við Vestur-Grænland eru tveir þorskstofnar, norðlægur og suðlægur, ogersásíðarnefndi einnig við Austur-Grænland og eins og áð- ur hefur verið nefnt, eru sum árin allveru- légar göngur úr syðra stofninum við Vest- ur-Grænland, bæði til Austur-Grænlands og til íslands. Þorskveiðin við Vestur-Grænland hefur verið tiltölulega jöfn undanfarinn áratug og verið undir og yfir 400 þúsund tonn a ári. Annars eru all-verulegar sveiflui' i stærð stofnsins, er orsakast að mestu leyti af misjafnri stærð hinna einstöku árganga. Þekking okkar á líffræði stofnsins á þessu svæði má teljast góð og margt bendir til þess að stofninn sé ofveiddur og að fást myndi sama aflamagn og í dag, þótt heild- arsóknin yrði lækkuð um allt að fjórðung- Síldin kemur næst á eftir þorskinum i aflamagni á Norðvestur-Atlantshafinu. Á tímabilinu 1960—1966 jókst heildaraflinn úr 180 þúsund tonnum í 425 þúsund tonn. Á þessu tímabili var hlutur Kanadamanna 45% af heildarveiðinni. Rússar tóku 35% og Bandaríkjamenn 15%. Síldveiðin fer næstum einungis fram á hafsvæðinu fyrir utan Nova Scotia og Nýja England. Á síðustu árum hafa Kanadamenn byrjað að veiða síld í herpinót og hefur það haft í för með sér mikla aukningu á veiði þeirra. Síldarstofnarnir á Nova Scotia-svæðinu eru ekki taldir vera mikið nýttir. Við NýJa England eru aðallega tveir stofnar, stofn- inn í Gulf of Maine, sem nýttur er af Kanadamönnum og Bandaríkjamönnum og stofninn á Georgebanka, en hann veiða nær eingöngu Rússar, Austur-Þjóðverjar og Pólverjar. Þessi stofn er mun stærri en stofninn í Maine-flóa, en virðist einnig vera mjög mikið nýttur. Þriðji í veiðinni af nytjafiskunum H þessu svæði er karfinn og hefur heildar- veiðin verið tiltölulega jöfn eða kringum 220 þúsund tonn á ári á tímabilinu 1960- ’66. Veiðarnar á syðri hluta svæðisins, ser- staklega Nova Scotia-svæðinu, standa H gömlum merg og þær einkennast ekki at hinum miklu árlegu sveiflum, sem eign sér stað á veiðisvæðunum norðar. Hei mætti nefna að árið 1958 fann íslenzk rannsóknar- og leitarskip mjög auðug karfamið úti af Labi’ador og Nýfundna- landi og af þeim sökum jókst heildarafla- magnið á þessu svæði úr 58 þúsund tonn- um árið 1957 í 159 þúsund tonn árið lðuo og árið 1959 komst það upp í 246 þúsund

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.