Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1968, Side 12

Ægir - 01.11.1968, Side 12
366 ÆGIR tonn, en féll síðan niður í 99 þúsund tonn árið 1960. Þetta er ágætt dæmi um hina almennu þróun í karfaveiðunum yfirleitt. Á nýju veiðisvæði nær veiðin hámarki á örfáum árum, vegna þess að hún byggist að lang- mestu leyti á stofni, sem ekki hefur verið nýttur áður. Eftir það hraðminnkar bæði heildaraflinn og aflinn á sóknareiningu og helzt síðan stöðugur eftir að ákveðnu lág- marki er náð. Karfastofninn við Vestur-Grænland virðist nú vera kominn á síðasta stig þeirr- ar þróunar, sem hér hefur verið lýst. Á tímabilinu 1960—’67 minnkaði heildar- karfaveiðin á þessu svæði úr 60 þúsund tonnum í 15 þúsund tonn og dagveiði þýzkra togara af karfa á þessu svæði er nú einungis 2.2 tonn á móti 8.8 tonnum árið 1962. Ennþá er ýmislegt á huldu um líffræði karfans, svo sem endurnýjun stofnsins og göngur, en allt bendir hins vegar í þá átt, að karfastofninn við Vest- ur-Grænland sé nú ofveiddur og það er áætlað að hámarksafli af karfa frá þessu svæði geti ekki farið fram úr 25 þúsund tonnum á ári. Mestu karfaveiðarnar eiga sér nú stað við Labrador og Nýfundnland og ætla menn að þær megi aukast frá því sem nú er. Ýsan er fjórða í röðinni af nytjafiskun- um á þessu svæði, en þó er hún hvorki til við Vestur-Grænland né Labrador. Fram til ársins 1965 voru það einungis Banda- ríkjamenn og Kanadamenn er stunduðu nokkra ýsuveiði að ráði á Georgebanka og við Nova Scotia og Nýfundnaland voru það einungis þessar tvær þjóðir og svo Spánverjar er þar stunduðu ýsuveiðar. Síð- asta áratuginn hafa ýsuárgangarnir á norðurhluta Nýfundnalands verið mjög lé- legir og af þeim sökum var veiðin komin niður í 10 þúsund tonn árið 1966 á móti 67 þúsund tonnum árið 1960. Veiðin bygg- ist að jafnaði aðeins á einum eða í mesta lagi tveim árgöngum og það eru ekki horf- ur á góðum árgöngum í bráð. Árið 1965 byrjuðu Rússar að veiða ýsu á Georgebanka og jókst veiðin þar mjög það ár og hið næsta, en 1967 hrapaði afl- inn niður aftur. Þetta er einna bezt þekkti fiskstofn á öllu svæðinu og er talið að hann sé nú alltof mikið veiddur. Laxveiðarnar við Vestur-Grænland hafa á undanförnum árum vakið all-mikla at- hygli og úlfaþyt, þar sem ýmsir hafa látið í ljós þá skoðun, að veiðarnar myndu draga úr laxveiðinni í viðkomandi landi, sérstaklega eftir að merktir laxar fóru að finnast við Grænland. Síðan árið 1965 hef- ur laxveiðin við vesturströnd Grænlands verið nokkuð jöfn, eða um 1200-1300 tonn á ári, en á seinustu árum hefur komið til sögunnar nýtt atriði, en það eru úthafs- veiðar á laxi við Vestur-Grænland, en sams konar laxveiðar eru nú einnig að þróast djúpt úti af Noregi og við Færeyjar. Merk- ingar í Evrópu og Ameríku hafa leitt í ljós að mestur hluti laxins, sem veiðist við Grænland, er af kanadiskum uppruna, en auk þessa hefur fengizt þar lax merktur i ýmsum löndum, m.a. á íslandi, og lax merktur við Grænland hefur þegar fengizt í ám í Kanada, Skotlandi og Irlandi. Rannsóknir á laxi þeim, sem veiðist við Grænland, hafa leitt í ljós, að allir höfðu þeir verið eitt ár í sjó og voru að byrja annað árið í sjónum. Af þeim sökum get- ur veiðin við Grænland ekki haft nein áhrif á þann lax, sem kemur í árnar eftir eitt ár í sjó. Fiskifræðingar álíta að veiðin við Grænland geti ekki tekið meira en 100 tonn frá veiði viðkomandi lands heima fyr* ir, en þó sennilega meira frá Kanada. Kanadamenn hafa því áhyggjur af þess- ari veiði, sérstaklega hinni nýbyrjuðu út- hafsveiði og hafa lagt fram tillögur um að banna hana algerlega, eða þá að halda henni innan hæfilegra marka. Þekking okkar á lífsháttum hinna ein- stöku fiskstofna á þessu svæði, svo og áhrifum veiðanna á þá, byggist á víðtækri alþjóða-samvinnu, sem skipulögð hefur verið af hinni s.k. Norðvestur-Atlantshafs- fiskveiðinefnd eða International Com-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.