Ægir - 01.11.1968, Blaðsíða 18
372
ÆGIR
------
Erlendar fréttir
v.__________________
Frá Bretlandi
ViA'rwA'ur uin snmruua togarafyrirtwkja.
Samkvæmt upplýsingum brezkra blaða fara nú
fram viðræður milli Endurskipulagningarstofn-
unar brezka iðnaðarins, sem er sjálfstæð ríkis-
stofnun, og þriggja stærstu togarafyrirtækjanna
í Bretlandi um hugsanlega sameiningu togara-
reksturs þeirra í eina stóra samsteypu. Þetta
nýja fyrirtæki mundi væntanlega hafa yfir að
ráða flota 170—180 skipa.
Fyrirtækin sem hér um ræðir, eru Associated
Fisheries, Ross og Boston Deep Sea Fisheries.
Viðræður þessar munu hafa staðið um nokkurt
skeið, án þess þó að beinir samningar um ákveðin
atriði milli fyrirtækjanna séu hafnir.
Tilgangur viðræðnanna samkvæmt áðurnef.nd-
um fréttum er að skapa nægilega stórt og sterkt
fyrirtæki, sem leyfir fullnægjandi stjórnun með
tilheyrandi rekstraráætlunum og rannsóknum og
sem þarmeð í fullum mæli getur hagnýtt sér
hagkvæmni stærðarinnar.
1 lok s.l. árs réðu umrædd félög um 63% þeirra
togara, sem sækja fjarlæg mið, um 28% þeirra,
sem skemmra sækja, svo sem að SA strönd ís-
lands og til Færeyja, og um 20% þeirra skipa,
er einkum stunda veiðar á nálægum miðum. Auk
þess eiga þessi fyrirtæki báta, sem stunda dag-
róðra eða á annan hátt fiska nærri landi.
Associated eiga nú tæplega 80 skip sem mest-
megnis stunda fjarlæg fiskimið. Ross samsteyp-
an á rúmlega 50 skip, sem skiptast nokkurn
veginn jafnt milli hinna þriggja höfuðflokka.
Boston Deep Sea eiga um 60, mest smærri skip.
Fiskiskipastóll þessarra þriggja fyrirtækja
Iandaði á s.l. ári um 66% þess magns, sem landað
var frá fjarlægum miðum í Bretlandi.
Enda þótt allmikill áhugi ríki á þessu máli i
Bretlandi, þarf að leysa mörg vandamál, áður
en hugmynd þessi verður að veruleika.
Þannig þarf að finna aðferð til að meta um-
rædd skip til verðs. Eins og kunnugt er á brezk
togaraútgerð almennt við mikla örðugleika að
stríða. Kemur sú staðreynd til með að hafa áhrif
á verðmætismat á skipum í hinum ýmsu flokkum-
Ætlunin er, að einungis verði um útgerðar-
rekstur að ræða. Þarmeð þurfa Ross og Asso-
ciated að skilja útgerð frá öðrum rekstri. Boston
Deep Sea er aftur á móti eingöngu útgerðarfyru'"
tæki. Vandamálið í þessu tilfelli er að fá fyrir-
tækin til að afsala sér nokkru af óskertum yfir'
ráðarétti sínum um rekstur skipanna í þmrrl
von, að sameiningin undir sérstakri sterkri stjorn
bæti rekstursaðstöðu skipaflotans.
Þá þarf að sannfæra einokunarnefndina, sem
á sínum tíma neitaði Ross og Associated m11
leyfi til að sameinast. Ástæðan fyrir þein1
neitun var ótti við þá aðstöðu, sem samsteyPan
mundi hafa í fiskveiðum en þó einkum fram-
leiðslu og dreifingu sjávarafurða.
Sá samsteypa togaraútgerðar, sem hér urn
ræðir mundi hinsvegar fyrst og fremst beinast að
útgerð en hvorki framleiðslu né verzlun. Er þaö
trúlega von þeirra, sem að viðræðum þessum
standa, að þarmeð þyki einokunarnefndinni ekki
ástæða til afskipta.
Hugsanlega mun öðrum togarafyrirtækjum
gefinn kostur á að ganga í þessa samsteypu e
af henni verður.
Umræður þessar hafa vakið mikla athygú 1
Bretlandi og yfirleitt fengið hagstæðar undirtekt-
ir. Þó telja ýmsir, þ. á m. samtök togaraeigenda,
að þessar aðgerðir einar nægi ekki til að leysa
vandamál útgerðarinnar; einnig þyrfti að leV®a
ýmis vandamál í sambandi við landanir og soiu
ferskfisks.
Einkasalar hér á landi
fyrir hin heimsþekktu
„Lion“ vélaþétti.
Framleiðendur:
James Walker & Co. Ltd.,
Woking, England.