Ægir - 15.09.1974, Page 17
Útgerð og
aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í ágúst 1974
Gæftir voru mjög misjafnar á svæðinu og
aflinn sumstaðar lélegur og var þetta aðal-
lega hvað smærri bátana snerti. Afli bátanna
í mánuðinum varð 7622 lestir bolfiskur, 220
lestir humar, 44 lestir rækja, 9 lestir hörpu-
diskur, 3222 lestir spærlingur og annar
bræðsufiskur og 208 lestir síld.
Aflinn í eistökum verstöðvum:
Hornafjörður. Þar lönduðu 17 bátar afla
í mánuðinum. 10 bátar lönduðu þar 388 lest-
um af bolfiski og 25 lestum af humri, enn-
fremur lönduðu 7 bátar 164 lestum af síld.
Gæftir voru stirðar.
Vestmannaeyjar. Þaðan stunduðu 45 bát-
ar veiðar. 40 með botnvörpu og humarvörpu
og öfluðu 1170 lestir að bolfiski og 7 lestir af
humri. Ennfremur voru 5 bátar á spærlings-
veiðum og öfluðu 1287 lestir spærling. Gæft-
ir voru stirðar.
Stokkseyri. Þar stunduðu 8 bátar veiðar
með humarvörpu og fiskitroll og öfluðu 181
lest af bolfiski og 32 lestir af humri. Gæft-
ir voru stirðar.
Eyrarbakki. Þar stunduðu 8 bátar veið-
ar með humarvörpu og fiskitroll og öfluðu
192 lestir af bolfiski og 11 lestir af humri.
Gæftir voru stirðar.
Þorlákshöfn. Þar lönduðu 38 bátar. 1 með
net, 3 með handfæri, 28 með fiskitroll og
humarvörpu, 3 með reknet og 3 með spærl-
ingstroll. Aflinn alls var 973 lestir bolfiskur,
36 lestir humar, 22 lestir síld og 1198 lest-
ir spærlingur. Gæftir voru góðar.
Grindavík. Þar stundaði 41 bátur veiðar, 1
með línu, 2 með net, 3 með handfæri, 33 með
humarvörpu og fiskitroll og 2 með reknet.
Aflinn varð alls 990 lestir bolfiskur, 39 lest-
ir humar og 17 lestir síld. Gæftir voru góðar.
Sandgerði. Þar lönduðu 29 heimabátar og
9 aðkomubátar. 18 voru með handfæri, 15
með humar- og fiskitroll, 4 með rækjutroll
og 1 með spærlingstroll. Aflinn alls varð 833
lestir bolfiskur, 15 lestir rækja, og 255 lest-
ir spærlingur. Gæftir voru góðar.
Keflavík. Þar stunduðu 39 bátar veiðar,
1 með línu, 5 með handfæri, 27 með fiskitroll
og humartroll, 4 með rækjutroll, 1 með spærl-
ingstroll, 1 með reknet. Aflinn alls varð 536
lestir bolfiskur, 63 lestir humar, 8 lestir rækja,
6 lestir síld og 482 lestir spærlingur og ann-
ar bræðslufiskur. Gæftir voru góðar. Auk
þessa lönduðu 4 skuttogarar 1229 lestum af
bolfiski úr 9 veiðiferðum.
Vogar. Þaðan stunduðu 2 bátar veiðar með
humartroll og öfluðu 25 lestir af bolfiski og 5
lestir af humri.
Hafnarfjörður. Þar stunduðu 6 bátar veið-
ar með fiskitroll og öfluðu 211 lestir af bol-
fiski. Auk þess landaði 1 síðutogari 184 lest-
um úr einni veiðiferð og 5 skuttogarar 1338
lestum af bolfiski úr 9 veiðiferðum.
Reykjavík. Þar stunduðu 23 bátar veiðar,
12 með fiskitroll, 1 með línu, 1 með net og
9 með handfæri. Aflinn alls varð 822 lestir
bolfiskur. Ennfremur lönduðu þar 3 síðutog-
arar 1034 lestum af bolfiski úr 5 veiðiferðum
og 6 skuttogarar 2480 lestum úr 8 veiðiferðum.
Akranes. Þaðan stunduðu 3 bátar veiðar
með botnvörpu, auk þess nokkrar trillur. Afl-
inn alls varð 213 lestir bolfiskur og 2 lestir
humar. Ennfremur landaði einn síðutogari
206 lestum af bolfiski úr einni veiðiferð og
2 skuttogarar 561 lest af bolfiski úr 3 veiði-
ferðum.
Rif. Þaðan stunduðu 18 bátar veiðar, 2 með
ÆGIR — 273