Ægir - 01.12.1974, Qupperneq 32
Yfirlit um lög og málefni
sj ávarútvegsins
sett á Alþingi, 94. löggjafarþinginu 1973—’74
og á sumarþinginu 1974
Veiðilieimildir botnvörpuskipa innan fisk-
vei ðimarkanna.
Brbl. nr. 74 26. júní 1973 um breyting á
lögum nr. 62 18. maí 1967, um bann gegn
veiðum m&ð botnvörpu og flotvörpu, sbr. 1.
nr. 21/1969, 1. nr. 50/1971, 1. nr. 89/1971 og
1. nr. 101/1972.
Gildistími lagaákvæðanna framlengdur frá
1. júlí 1973 til ársloka 1973 á þeim forsendum,
að Alþingi hafi ekki gefizt tími til að af-
greiða frumvarp til nýrra laga um þetta efni,
sem fyrir því lá. Staðfest með lögum nr. 100
21. des. 1973. (Sjá síðar lög nr. 102 27. des.
1973).
Veiðilieimildir, sérstök refsiákvæði.
Lög nr. 89 15. nóvember 1973 um breyting
á lögum nr. 62 18. maí 1967, um bann við
veiðum msð botnvörpu og flotvörpu, sbr. 1.
nr. 21/1969, nr. 50/1971, nr. 101/1972 og nr.
74/1973.
Þegar gerður var samningur við Breta 13.
nóv. 1973, um sérstakar heimildir breskra
togara til veiða innan fiskveiðilandhelginn-
ar milli 12 og 50 sjómílna, voru þau ein við-
urlög sett við brotum breskra skipa, að þau
skyldu strikuð út af skrá yfir þau skip, sem
samningurinn tæki til, og leyfi hlutu til veiða
samkv. honum. — Slík refsiákvæði voru ekki
til í íslenzkum lögum og voru því lögfest með
lögum þessum.
Lántökuheimild lianda ríkisstjórninni —
hafnarframkvæmdir.
Lög nr. 91 10. desember 1973 um lántöku-
heimild vegna framkvæmda- og fjáröflunar-
áætlunar 1973 og sérstaka Iántökuheimild
vegna hafnarframkvæmda.
Um er að ræða heimild til töku erlends láns
að upphæð allt að 1400 m. kr., til ótilgreindra
framkvæmda. — Jafnframt er heimilað að
taka allt að 7 milljón dollara lán hjá Alþjóða-
bankanum til hafnarframkvæmda í Grinda-
vík, Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði.
Löndun loðnu í bræðslu.
Lög nr. 97 27. desember 1973 um löndun á
loðnu til bræðslu.
Þessi lög koma bersýnilega í stað laga
nr. 102/1972 og nr. 18/1973, þótt þess sé
hvergi beinlínis getið. Þau eru í öllum aðalat-
riðum sama efnis og eldri lög, nema hvað
nú skal Verðlagsráð sjávarútvegsins, er það
vsrðleggur loðnu til bræðslu, ákveða gjald til
flutningasjóðs, sem ákveðið var í eldri lögum,
og viðurlög við brotum gegn lögunum og fyr-
irmælum loðnunefndar eru nú gerð gleggri
og hert. Sama er að segja um eftirlit með því
að lögum og fyrirmælum sé fylgt. — Engin
ákvæði eru í lögunum um löndun loðnu til
frystingar.
Launaskattur.
Lög nr. 101 21. desember 1973 um breyt-
ing á lögum nr. 14 15. marz 1965, um launa-
skatt.
Lagður er á launagreiðendur 1% launa-
skattur (til viðbótar 1%% skv. 1. nr. 14/
1965), en tekjur sjómanna á ísl. fiskiskipum,
374 — Æ GI R