Ægir - 01.10.1981, Qupperneq 53
sambandi minnti ég á sammþykkt Fiskiþings frá
1970. - I.A.)
3. Stutt lýsing á búnaðinum.
Segja má að hér sé um að ræða fjórar mismun-
andi gerðir tækja, sem öll hafa þann höfuðtilgang
að auðvelda sjósetningu gúmmíbjörgunarbáta og
flýta uppblæstri þeirra.
Tceki nr. 1:
Björgunarbátnum er komið fyrir í sérstökum
gálga, sem staðsetja má á hverjum þeim stað á
skipinu, sem hentugastur er talinn. Að baki
gálgans er sérstakt hylki, en í hylki þetta er lögð
sérstök lögn frá loftþrýstibúnaði. Handföngum
er komið fyrir i brú skipsins, eða öðrum þeim
stöðum sem henta. Þegar gripið er í handföngin
þrýstist loft í fyrrnefnt hylki, en við uppblástur
hylkisins þrýstist gálginn á snöggan hátt, úr
stöðu sinni og á samri stundu byrjar báturinn
að blásast upp og kastast í sjóinn.
Allar prófanir þessa búnaðar hafa reynst tull-
komnlega. Aðeins örfáar sekúndur liða frá því
gripið hefur verið í handfang, þar til báturinn er
kominn fulluppblásinn í sjóinn.
Tæki nr. 2:
Hér er um að ræða búnað sem sérstaklega er
ætlaður til björgunar fyrir mann sem fellur
aftur úr skutrennu skuttogara. Á sama hátt og
tæki nr. 1 er um að ræða handfang sem komið
er fyrir á hentugasta stað. Um leið og gripið er í
handfangið fellur gúmmíbátur aftur af skipinu
°g byrjar þegar í stað að blásast upp.
Kippt hefur verið i handfangið, gálginn fellur út, ólarnar af
hylkinu losna, og báturinn byrjar þegar að blásast upp.
handföng má hafa hvar setn er á skipinu fyrir sjósetningu
JOrSunarbátsins, sein gerist tneð einu handtaki.
Gúmmíbjörgunarbáturinn kominn I
sjóinn og hylkið springur utan af
honum.
Báturinn langt kom-
inn með að blása sig
upp. Maður stekkur I
sjóinn.
ÆGIR — 573
L