Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1988, Blaðsíða 8

Ægir - 01.08.1988, Blaðsíða 8
404 ÆGIR gera áður óseljanlegar fiskteg- undir meira aðlaðandi, þá hefur m. a. verið brugðið á það ráð, að gefa þeim ný og aðlaðandi nöfn og virðist það hafa borið góðan árangur.8’ Til að kanna neysluvenjur eru víða gerðar neytendakannanir. Þótt slíkar kannanir geti gefið mjög gagnlegar upplýsingar, þá þarf að túlka niðurstöður þeirra með varúð. Sérstaklega á þetta við um fisk, vegna þess hve fjöl- breytni afurðanna er mikil á mark- aðnum og oft erfitt að gera samanburð. Mælanleg áhrif „heilsubylgj- unnar" koma helst fram í niður- stöðum neyslukannana þar sem fólk er spurt um breytingar á neysluvenjum. Niðurstöður eru gjarnan á þá lund að fólk borði minna salt, minna af mettuðum fitum, minna kjöt og meira af „léttri"fæðueinsog fiski ogfugla- kjöti. í könnun sem gerð var í Bandaríkjunum 1984 (tafla 2) kom t. d. fram að helmingur neyt- enda fc.ldi sig borða meiri fisk en áður.9) Út úr þessum og ýmsum öðrum neytendakönnunum sem miða að því að kanna fiskneyslu sér- staklega má lesa ýmsan fróðleik sem sjálfsagt hljómar kunnug- lega: Fólk vill helst ferskan fisk (þ.e. ófrosinn) og mikið er lagt upp úrfiskréttum sem eru tilbúnir á pönnuna, eða öllu heldur í örbylgjuofninn. að öðru leyti virðast þessar kannanir gefa til kynna: 1) Fólk v/V/borða meiri fisk, heils- unnarvegna. 2) Flestir kunna vel að meta bragð af góðum fiski. 3) Fólki er mjög í nöp við sterka fisklykt. 4) Algengt er að fólk sé fá- kunnandi um matreiðslu á fiski. Þannig settu t.d. 42% neyt- enda bragðgæði fisks í fyrsta sæti þegar þeir voru spurðir um hvað þeim líkaði best við fisk, en nán- ast sama hlutfall, eða 43%, svar- aði að það væri lyktin sem þeim líkaði verst við í sambandi við fisk.10) Það er einkum athyglisvert að um 75% af öllum fiski í Banda- ríkjunum er neytt í veitinga- húsum og virðist það m. a. standa í sambandi við vankunnáttu fólks við að matreiða fisk. Einnig virð- ist það algeng skoðun þar vestra, að sé fiskur matreiddur í heima- húsi komi híbýli manna til með að lykta af fiski í langan tíma á eftir. Hvað segir þetta? í stuttu máli, þá virðist sú niðurstaða að margir kvarti undan sterkri fisklykt renna stoðum undir það álit margra, að mikið sé af skemmdum fiski á markaðnum. Margir hafa látið í Ijós þá skoðun, að þetta sé ein aðal ástæðan fyrir því að neyslan vaxi mjög lítið í iðnríkjunum, þrátt fyrir þá gífurlegu auglýsingu sem fiskur hefur fengið sem sér- lega holl og góð fæða. Niður- staðan er því sú að fólk auki ekki neyslu á fiski einungis vegna holl- ustunnar, hannverðurlíkaaðvera góður. Þó ber að taka það fram ao þess eru mörg dæmi að hátt ver fremur en skortur á gæðum hati haldið aftur af aukinni markaðs- hlutdeild. . , Að mikið sé af lélegum fiski a markaði þarf ekki að koma a óvart þegar haft er í huga hve vio- kvæm vara fiskur er, bæði hva varðar vinnslu og geymslu. Þegar við bætist að hvert fiskiskip og vinnslustöð þarf að meðhönd a fjölda fisktegunda, sem hver er með sín sérkenni þá er Ijóst a það er vandasamt að viðhal 1 2 3 4 jöfnum og miklum gæðum. Ek' er við öðru að búast en að krö nr neytenda um staðlaðar vörur og jafntframboð muni fremuraukas á komandi árum, ekki hvað slS með tilkomu vaxandi framleiðs áeldisfiski. Sjálfvirkni í gæðaeftirliti og vinnslu - En hvernig er fiskiðnaðurinn stakk búinn til að mæta auknun kröfum um gæði? Mynd 3 Neysla á kjöti og fiski í Bandaríkjunum 1982-1987 rj Fiskafuröir O Svínakjot m Fuglakjöt O Nautakjot '87 uSA Naeonal FiBhaiies Insbtu®-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.