Ægir - 01.06.1991, Side 34
318
ÆGIR
6/91
NÝ
FISKISKIP
Æskan SF 140
Nýtt tveggja þilfara alhliða fiskiskip bættist við flota
Hornfirðinga 11. maís.L, en þann dag kom Æskan SF
140 til heimahafnar sinnar, Hornafjarðar. Skipið sem
er hannað af Ráðgarði hf. er smíðað hjá skipasmíða-
stöðinni CARNAVE-Estaleiros Navais S.A., Aveiro í
Portúgal, smíðanúmer 135, og er þriðja í röð fjögurra
skipa sem smíðuð eru þar fyrir Islendinga, en s.l.
sumar kom fyrsta skipið, Haukafell SF (sjá 9. tbl. Ægis
1990), og snemma árs annað skipið, Þinganes SF (sjá
2. tbl. Ægis 1991).
Æskan kemur í stað Hríseyjar SF 41 (sk. skr. nr.
981), I04ra rúmlesta eikarbáts sem smíðaður var í
Danmörku árið 1965. Skipið er búið til tog- og nóta-
veiða og möguleikum til netaveiða með tilheyrandi
lúgum. Helstu breytingar á skipinu frá Haukafelli eru
breytt lögun framstefnis, aðalvél frá öðrum framleið-
anda og átaksmeiri togvindur, en er sambærilegt við
Þinganesið.
Æskan SF er íeigu Auðunns hf. á Höfn, Hornafirði.
Skipstjóri á skipinu er Björn L. Jónsson og yfirvélstjóri
er Finnur Loftsson. Framkvæmdastjóri útgerðar er Vil-
hjálmur Antoníusson.
Mesta lengd .......................... 25.98 m
Lengd milli lóðlína (HVL) 23.40 m
Lengd milli lóðlína (perukverk) 22.35 m
Breidd (mótuð) 7.90 m
Dýpt að efra þilfari 6.20 m
Dýpt að neðra þilfari 3.80 m
Eiginþyngd ............................. 404 t
Særými (djúprista 3.80 m) .............. 514 t
Burðargeta (djúprista 3.80 m) 110 t
Lestarrými ............................. 125 nr
Brennsluolíugeymar 50.4 m3
Ferskvatnsgeymar ...................... 15.0 m3
Sjókjölfestugeymir 8.2 m3
Brúttótonnatala 262 BT
Rúmlestatala ........................... 162 Brl
Ganghraði (reynslusigling) ............ 10.9 hn
Skipaskrárnúmer ....................... 2048
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt regluni og
undir eftirliti Det Norske Veritas íflokki »i« 1A1, Stern
Trawler, lce C.'i* MV. Skipið er með tvö þilför stafna
á milli, perustetm, gafllaga skut, skutrennu upp á etra
þilfar og brú á reisn framan við miðju á efra þilfari-
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sex Þver’
skipsþilum (fjögur vatnsþétt) í eftirtalin rúm, tali
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hliðarskrúH-1'
rými og keðjukassar; íbúðarými með ferskvatnsgeym1
í botni; fiskilest með brennsluolíugeymum í botnL
vélarúm með hljóðeinangruðum vélgæsluklefa fremst
b.b.-megin og brennsluolíugeymum í síðum; dag-
smurolíugeyma og aftast eru brennsluolíugeymar.
Fremst á neðra þilfari er geymsla, þar fyrir aftan erU
íbúðir og síðan vinnuþilfar. Aftan við vinnuþilfar er
fiskmóttaka fyrir miðju, verkstæði b.b.-megin °8
stigagangur s.b.-megin, en aftast er rými fyrir toS'
vindur úti í síðum og stýrisvélarrými fyrir miðju.
Brú skipsins er framan við miðju, og hvílir á um 1 •c’
m hárri reisn. Vörpurenna kemur í framhaldi af skut-
rennu, hún greinist í tvær rennur, sem liggi3 1
gegnum brúarreisn og ná fram undir stefni og er unnt
að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða-
Séð fram eftir þilfari. Ljósmyndir með grein: Tæknideild I-