Ægir - 01.07.1991, Qupperneq 48
388
ÆGIR
7/9'
NÝ
FISKISKIP \JJ
Þórunn Sveinsdóttír VE 401
Nýtt fiskiskip bættist við flota Eyjamanna 19. júlí
s.l., en þann dag afhenti Slippstöðin hf. m/s Þórunni
Sveinsdóttur VE 401, sem er nýsmíði stöðvarinnar nr.
72. Skipið er smíðað sem skuttogari með netaveiði-
möguleikum, búið til ísfiskveiða.
Skipið er hannað af Slippstöðinni hf., en byggir á
hönnun Ráðgarðs hf. á 26 m fiskiskipi sem til stóð að
smíða í Svíþjóð.
Hin nýja Þórunn Sveinsdóttir VE kemur í stað Þór-
unnar Sveinsdóttur VE 401 (sk. skr. nr. 1135), 154ra
rúmlesta stálfiskiskips, sem smíðuð var í Stálvík hf.
árið 1971.
Þórunn Sveinsdóttir VE er í eigu Óss hf., Vest-
mannaeyjum. Skipstjóri á skipinu erSigurjón Óskars-
son og yfirvélstjóri Matthías Sveinsson. Fram-
kvæmdastjóri útgerðar er Óskar Matthíasson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið er
Mesta lengd .......................... 36.86 m
Lengd milli lóðlína (HVL) ............ 33.50 m
Lengd milli lóðlína (perukverk) . . . 32.00 m
Breidd (mótuð) ........................ 8.00 m
Dýpt að efra þilfari .................. 6.50 m
Dýpt að neðra þilfari ................. 4.00 m
Djúprista (hönnunar) .................. 3.95 m
Eiginþyngd ............................. 592 t
Særými (djúprista 4.00 m) .............. 854 t
Burðargeta (djúprista 4.00 m) .......... 262 t
Lestarrými ............................. 300 m3
Brennsluolíugeymar (m/daggeymi) 69.7 m3
Ferskvatnsgeymar ...................... 29.8 m3
Sjókjölfestugeymir ..................... 8.1 m3
Brúttótonnatala ........................ 480 BT
Rúmlestatala ........................... 277 Brl
Ganghraði (reynslusigling) ............ 11.3 hn
Skipaskrárnúmer ....................... 2020
með tvö heil þilför stafna á milli, perustefni, gafHa8a
skut og skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á freniri
hluta efra þilfars, og brú á reisn aftarlega á hvalba -
þilfari, og er búið til togveiða og netaveiða.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sex þv®r
skipsþilum (fjögur vatnsþétt) í eftirtalin rúm, ta.'
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hIiðarskru
rými og keðjukassa; íbúðir framskips með botn^
geymum fyrir ferskvatn og asdikrými; fiskilest me
botngeymum fyrir ferskvatn (fremst) og brennsluol|U'
Séð fram eftir togþilfari (efri mynd) og hífingavindur attan við bru
mynd). Ljósmyndir Tæknideild /ER.