Tímarit lögfræðinga - 01.08.1980, Síða 33
Frá
Lögmaimafélagi
Íslamls
AÐALFUNDUR 1980
Aðalfundur Lögmannafélags íslands var haldinn 28. marz s.l.
Formaður, Þorsteinn Júlíusson hrl., minntist í upphafi látinna félagsmanna,
þeirra Bjarna Bjarnasonar hrl., Jóhanns Gunnars Ólafssonar hrl., Jóns N.
Sigurðssonar hrl. og Sveinbjörns Jónssonar hrl. Risu fundarmenn úr sætum
til að votta hinum látnu félagsmönnum virðingu sína.
Stjórnarfundir eru haldnir reglulega hvern miðvikudag nema yfir hásumarið
og stórhátíðir. Á starfsárinu voru haldnir 39 stjórnarfundir og 344 málsatriði
bókuð.
Á árinu voru haldnir fjórir almennir félagsfundir, þar af tveir hádegisverðar-
fundir að Þingholti, en það er nýbreytni í starfsemi félagsins. Fyrri fundurinn
var um vaxtamál og verðtryggingu lána, og hélt Bjarni Bragi Jónsson hag-
fræðingur Seðlabankans erindi og svaraði fyrirspurnum. Á öðrum hádegis-
verðarfundi var ekki afmarkað fundarefni, en rædd félagsmál, og skýrði for-
maður m.a. frá ferð sinni og tveggja annarra stjórnarmanna á fulltrúafund
norrænu lögmannafélaganna, sem haldinn var í Stokkhólmi dagana 6. og 7.
september 1979.
Þá var haldinn almennur félagsfundur um nýju hlutafélagalögin, þar sem
Björn Friðfinnsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar flutti erindi og svaraði
Sljórn Lögmannafélags íslands 1979—80, frá vinstri: Helgi V. Jónsson hri. (meóstjórnandi),
Jónas A. Aðalsteinsson hrl. (vara-formaður), Þorsteinn Júlíusson hrl. (formaður), Stefán Pálsson
hdl. (ritari) og Skarphéðinn Þórisson hdl. (gjaldkeri). (Ljósm.st. Vigfúsar Sigurgeirssonar sf.).
95