Stúdentablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 10
10
4-
etlít yout liloo; - MicrðfOÍt liiíéi neí l Hplót cft
^lffl *1
j
- ■+
® 19 ð I Q-
'
---------■.....,______________________■-...--------X.,...------------------------------------------------------------...........................---------------------í---------------
......-....................................-..........-..........................................
3 & J
©
gi a
□ blogger
* B ' \
Þeir setja sálina á netið
GUÐMUNDUR SVANSSON fer í saumana
á veröld vefdagbókanna
Það er aldagamall siður að fólk
haldi dagbók. En vefdag-
bækumar em ekki varðveisla
á minningum og hugsunum, heldur
opinber samskiptavettvangur á
hversdagslegum granni. Opinberar
vefdagbækur hafa sprottið upp eins
og gorkúlur síðustu mánuði. Fyrstu
íslensku vefdagbækumar litu dagsins
ljós fyrir 4-5 áram og vora um stund
teljandi á fingram beggja handa. Það
stenst þó ekki alveg að líta á þann
upphafstíma undir sömu for-
merkjum og bloggið í dag. Fáir
heyrðu þá nokkum tímann
minnst á vefdagbók. í dag
virðast flestir vera ýmist búnir
að stofna vefdagbók, velta því
fyrir sér að stofna hana, eða þá
að spyijast fyrir um hvað þetta
blogg sé eiginlega.
Blogg er orðið sem notað
er í daglegu tali. Það er samheiti
yfir allt í senn, vefdagbókina,
vefdagbókarfærsluna og veröld
vefdagbókanna í heild sinni.
Blogger er sömuleiðis heiti
vefdagbókarhöfundanna og
einnig forritsins sem langflestir
bloggerar nota til að uppfæra
bloggin sín.
um þjóðmál (röfl), í öðram flokknum
væra dagbækur (daily life) og þeim
síðasta væra bull og vitleysa. Annar
talaði um að hægt væri að setja upp
hnitakerfi þar sem x-ásinn sýndi hve
menntað/ómenntað bloggið væri og
y-ásinn hve úthugsað efni bloggsins
væri. Menntaðir bloggerar væra ekki
endilega að blogga af djúpri speki.
Einn blogger til, sem Stúdentablaðið
bar hugmyndina um hnitakerfið
undir, sá fyrir sér samskonar
fylgst með mönnum vinna sig upp í
áliti með því að blogga. „Blogg er
góður vettvangur fyrir snjalla penna
til að notfæra sér hæfileikann. Þú
færð fastan lesandahóp sem tékkar á
hæfileikanum þínum á hverjum degi.
Hvar annarsstaðar en á blogginu væri
það hægt?“ spurði hann Stúdentabl-
aðið. „Þú ert líka þinn eigin herra og
getur komið á framfæri hvaða skoð-
unum, hugmyndum og uppl-
ýsingum sem þú vilt. Sá
vettvangur er
ekki á hveiju
strái.“
Hit me
baby
one
more
time
Hvað er þetta
blogg?
„Formið „weblog“ gengur
eiginlega að mínu viti út á að
birta I krónólógískri röð
daglega þanka“, sagði
bloggerinn Björgvin Ingi
Ólafsson (www.-
hi.is/~bjorgvo) í samtali við
Stúdentablaðið. Björgvin er
þó hættur að blogga í bili). Orðið
blogg er stytting á enska orðinu
weblog (veffærsla). í enskumælandi
löndum nefndust færslumar blog, og
það uppfærslukerfí sem flestir blogg-
erar nota heitir í þeim anda Blogger
(www.blogger.com).
Efni blogganna er mjög mis-
jafnt. Blogg geta snúist um stjóm-
mál, þau geta fjallað um atvik úr
einkalífinu, stöku blogg innihalda
„heavy“ pælingar og einnig má finna
blogg sem innihalda eintóma þvælu.
Blogg geta í stuttu máli snúist um
hvað sem er. Nánar tiltekið hvað sem
mönnum dettur í hug að setja frá sér
á netið. Og menn þurfa ekkert frekar
að skrifa undir nafni. „Eg skrifaði um
e-ð sem mér þótti sniðugt, um eitt-
hvað sem ég vildi geta rifjað upp. Ég
skrifaði líka um eitthvað sem ég var
að pæla í til að átta mig betur á hlut-
unum, binda þankana fastari skorð-
um“, sagði Björgvin, og bætti því við
það væri Hka bara gaman að skrifa.
„Þetta er fýrst og fremst bráðsnjallt
form.“
Einn blogger sem blaðið náði
tali af skipti bloggum í þrennt eftir
efni. í fyrsta flokknum væra blogg
jjörgvin Ingl
Ólafsson: Er
hættur aö
blogga I bili
en var baaði
á www.hi.is/-
bjorgvoog
www-hre kkjusvln.
is.
b'098erh9,rin
°9Coof
hnitakerfi
þar sem x-ásinn greindi milli „white-
trash“ (hvítt rasl) og „heavy pælin-
ga“ en y-ásinn sýndi hve mikið væri
unnið úr einkalífí viðkomandi.
Fyrir sjálfan sig og
heiminn
„Þegar ég skrifa þá er ég mest að
skrifa fyrir mig og vini mína, ég læt
samt auðvitað ekkert allt flakka því
ég veit að svo miklu fleiri lesa“,
svaraði Katrín Atladóttir (www,-
katrin.is) um ástæður þess að hún
bloggaði. Björgvin sagði ástæðum
þess að fólk bloggaði ærið misjafnar.
„Allt ffá því að drepa tímann eða
segja vinum og vandamönnum frá
lífí sínu til þess að fá útrás fyrir gríð-
arlega hæfíleika sína til að skrifa.“
Þó virðast ekki allir blogga
bara ánægjunnar vegna. Bloggið er
líka vettvangur fyrir fólk sem vill
koma sér á framfæri. Tómas
Hafliðason (www.glymur.com. Hans
blogg heitir Potturinn, var lengi á
www.potturinn.com) kvaðst hafa
hún þegar spurt var um galdurinn,
„að síðan sé fljót að lódast og sé
auðveld í viðmóti". Slóðin er líka
lykilatriði. Katrín fékk 300-500
heimsóknir á dag þegar slóðin var
www.hi.is/~katrinat. Nú fær hún
svona 800 og uppúr. Stúdentablaðið
spurði Katrínu hvaða ráð hún myndi
gefa byrjanda sem stefndi hátt. „Bara
vera hann sjálfur. Ég er bara að
skrifa það sem mig langar til að
skrifa.“ Hún vildi ekki kannast við
að hafa byggt lesningu upp
markvisst, „en fólk kemur nottla
oftar til þess sem bloggar nokkram
sinnum á dag heldur en þess sem
bloggar einu sinni í viku“.
Katrín taldi sig vita að 48%
lesenda sinna væru á aldrinum 21 -25
og 23% væra á aldrinum 16-20. Hún
sagði einnig að 73% væru strákar.
Gera má ráð fyrir því að
lesendahópur bloggsins sé fólk á
menntaskóla og háskólaaldri. Flestir
bloggerar era einnig á þeim aldri.
Bloggerar eiga
það sumir hveij-
ir til að tapa sér í
ásókn í stöðugt
fleiri heimsóknir
(oftast nefndar
hit) og láta allt
snúast um þær.
Að nokkra leyti
er það skiljan-
legt. Margir
bloggerar vilja
fá viðbrögð og
heimsóknir era
ákveðinn mæli-
kvarði. Engu
að síður mæla
heimsóknir ekki
gæðin, fólk
getur lesið blogg af
mörgum öðrum ástæðum en
hrifhingu á efhinu. í stöku tilfellum
era bloggerar markvisst að stuða fólk
til að fá „linka“ og mótsvör á blogg-
inu. Menn geta sett tengla á aðra
bloggera í bloggin sín. Þeir sem
smella á linkinn fara á viðkomandi
síðu. Mörgum bloggeram þykir það
sjálfsögð kurteisi að linka til baka ef
þeir fá link. Bloggerar sem þekkjast
en eru með ólíka lesendahópa á
bakvið sig virðast í mörgum tilfellum
linka markvisst hver á annan til að
sameina lesendahópana og fjölga
þannig heimsóknum.
Það er mjög misjafnt að hve
margar heimsóknir bloggerar fá.
Yfirleitt er gert upp á milli heim-
sókna og þeim skipt í tvennt eða
þrennt eftir því hvort sami maður er
að koma aftur. Hér er gert upp milli
gesta og heimsókna. Fæstir blogger-
ar ná fleiri en 50 gestum á dag. það
íslenska blogg sem fær flestar heim-
sóknir á dag er www.katrin.is.
„Auðvitað ef mar er duglegur að
uppfæra og þannig þá hjálpar það
auðvitað. Svo er nottla það sama í
þessu og í allri vefsíðugerð“, svaraði
Bloggið er ekki nýtt
,
„Ég skrifaði mína fyrstu pistla á
netið haustið 1998“, sagði Tómas.
„Einhveijir fleiri voru að byrja á
þessu um svipað leyti“. Þá þekktist
orðið blogg ekki. Björgvin byijaði í
desember 1999. „Þá var ég í prófiim,
hafði of mikinn tíma og hugsaði
oftast um eitthvað annað en skólann.
Mér fannst þetta gaman", útskýrði
hann.
Tómas sagði sérstakt samband
hafa myndast milli „orginalanna",
sem vora á annan tug einstaklinga.
Menn lásu hvor aðra, skiptust á
tölvupóstum, framlengdu hugmyndir
hvers annars, rifust og þar fram eftir
götunum. Það varð til lítið samfélag
sem grandvallaðist á bloggum ör-
fárra einstaklinga og svo lesendum
sem voru nokkuð fleiri. „Fyrstu
dagana mína fékk ég kannski 5-50
heimsóknir á dag“, rifjaði Björgvin
upp. „Síðan fór maður að fá slatta af
heimsóknum eftir áramót, 200+.
Man samt ekki hvað góður dagur
var.“ Hann vildi ekki kannast við að
sterkt samband hafí myndast milli
orginalanna sem vora í blogginu.
Hann hefði sjálfur þekkt eða kannast
við flesta orginalana. „Þetta vora
bara háskólastrákar á sama aldri úr
MR og Versló sem áttu vissa kjöl-
festu í verkfræðinörrum. Bloggið
varð meira til innan þessa hóps held-
ur en að hópurinn yrði til útaf
þessu“.
Björgvin giskar á að 5000
íslensk blogg séu til í dag, þó það sé
auðvitað skot út í loftið. „Prófaðu
t.d. að slá inn http://gunni.blogspot.-
com og http://siggi.bIogspot.com.
Bæði bloggin eru til.“ Flest þessara
blogga era þó uppfærð óreglulega.
Lengi vel var það ákveðinn við-
burður þegar nýr blogger fæddist.
Þeir sem fyrir vora linkuðu á nýja
55Blogg geta
snúist um
stjómmál, þau
geta fjallað um
atvik úr einka-
lífinu, stöku
blogg inni-
halda „heavy"
pælingar og
einnig má
finna blogg
sem innihalda
eintóma
þvæluíí
99Prófaðu t.d.
að slá inn
http://gunni.blo
gspot.com og
http://siggi.blo
gspot.com.
Bæði bloggin
eru til!44
4: