Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 18
18
StádeBjablaðið
Fjölmennir fyrirlestrar
Nemendum Háskóla íslands hefur fjölgað um 33 prósent á síðustu
sex árum. KRISTJÁN HRAFN GUÐMUNDSSON ræddi við stúd-
enta og kennara um vandann, sem skapast af því að halda fjöl-
menn námskeið í bíósölum, og kannaði viðbrögð Háskólans.
Skólaárið 1996-97 voru u.þ.b.
5.800 nemar skráðir til náms
en í vetur er fjöldinn kominn
upp í 7.700 nemendur. Tiltaka má
margar skýringar fyrir því að
aðsóknin er að aukast: Háskólinn er
nafntoguð menntastofnun sem býður
upp á gott nám í flestum fræði- og
vísindagreinum. Stúdentar vita því
nokkum veginn að hveiju þeir ganga
þegar þeir innritast í HÍ. Eflaust er
önnur skýring sú að menntunarstig
þjóðarinnar er að aukast samfara
kröfu samfélagsins um að einstak-
lingar sæki sér háskólamenntun.
Háskólinn hefur sett sér mark-
mið fyrir starfsemi sína árin 2002-05
og var þessi áætlun kynnt á
dögunum. Stofhunin hefúr í þeim
málefnum sem snúa beint að stúdent-
um sett sér markmið um að bæta
kennslu og kennsluaðbúnað. Til
dæmis er ætlunin að fjölga
námskeiðum sem kennd eru á ensku
í 150 talsins og netvæða enn frekar
fyrsta árs námskeið. Þá stefnir
Háskólinn að því að leysa úr brýnum
húsnæðisvanda félagsvísindadeildar
og viðskipta- og hagfræðideildar.
Þannig er markmiðið að leysa úr
helsta vandamáli sem Háskólinn
glímir við í dag en það er vandinn
með kennsluhúsnæði.
Stefna Hi að ekki
þurfi að kenna
svona fjölmenn
námskeið
Ágúst Einarsson, prófessor í við-
skipta- og hagfræðideild, kennir
Rekstrarhagffæði 1 en 421 nemandi
var skráður í námskeiðið í byijun
október. Stúd-
entablaðið tók
Ágúst tali.
Hvað finnst
þér almennt
um svona fiöl-
menn nám-
skeið?
„Það er ekki
heppilegt að
kenna svona
stór námskeið
en þótt þessi
námskeið þykja stór á íslenskan
mælikvarða þekkjast námskeið
erlendis með mörg þúsund nem-
endur. Það er ekki til eftirbreytni.
Stefna Háskólans er að ekki þurfi að
kenna svona fjölmenn námskeið.“
Hvernig er það að kenna mörg
hundruð manns i stærsta bíósal
landsins?
„Þetta er erfitt fyrir kennara en mér
finnst gaman af allri kennslu og
breytir engu fyrir mig hvort það er
stærsti bíósalur landsins eða tíu
manna umræðuherbergi.“
Finnurðu mikinn mun á því að kenna
stórum eða litlum hópum?
„Það er vitaskuld mikill munur á. í
litlum hópum er mun meira af
umræðu við nemendur. Fyrir nem-
endur breytir ekki miklu hvort það er
500 manna fyrirlestur eða 300
manna. Hvoru tveggja er þó of
mikið.“
Verðurðu var við fœkkun í salnum,
nú eða einhvers konar breytingu á
mannskapnum, efitir því sem það
líður á misserið?
„Nei, ekkert meiri breytingu en er
algengt þegar líður á misserið."
Er eitthvað sem þú vilt að verði gert
til þess að breyta núverandi til-
högun?
„Ég tel ekki heppilegt að kennd séu
svona risanámskeið en það er gert
meðal annars vegna skorts á
kennslustofum og kennurum í mörg-
um tilvikum. Þessu
er hins vegar mætt
að hluta með því að
skipta nemendum í
hópa í sérstaka
dæmatíma þar sem
þeir geta meðal
annars spurt betur
um námsefnið.
Stórir fyrirlestrar
eru þó alls ekki
alvondir og mjög
algengir erlendis.“
Sannfærður um að
breytingar verða
gerðar
Fjölmennasta námskeið HÍ á þessu
haustmisseri er Aðferðafræði 1 sem
er skyldunámskeið fyrir stúdenta
innan félagsvísindadeildar. Á þess-
um fyrirlestrum í stóra sal
Háskólabíós góna hvorki fleiri né
færri en 1208 glymur á glærur kenn-
arans, eða 609 nemendur. Jón Torfi
Jónasson, prófessor í uppeldis- og
menntunarfræði, sér um fyrirlestrana
ásamt öðrum kennara.
Stúdentablaðið náði tali af Jóni Torfi
nú á dögunum.
Hvað finnst þér almennt um svona
fiölmenn námskeið?
„Fjölmennt námskeið þarf ekki að
vera slæmt í sjálfu sér, heldur
hvernig á kennslunni er haldið.
Aðgengilegar kennslubækur eru
notaðar og við kennaramir höfum
sett þær glærur sem við notum á
vefinn. í þessu námskeiði er nem-
endum boðið upp á æfingatíma í
hverri viku sem eru að vísu einkum
sniðnir utan um tölfræðiþáttinn, en
eru almennt hugsaðir til þess að
nemendur geti leitað sér leiðsagnar.
Þetta er námskeið á fyrsta misseri
sem þjónar þeim tilgangi að leggja
ákveðinn grunn sem er sameigin-
legur öllum greinum félagsvísinda-
deildar. Sumir nemendur þekkja
efnið, eða hluta þess, fyrir en aðrir
ekki, þannig að það er mjög mismun-
andi hvað nemendur þurfa að sækja
99Á fyrlsetrum í Aðferðafræði I,
í stóra sal Háskólabíós, góna
hvorki fleiri né færri en 1208
glyrnur á glærur kennarans, eða
609 nemendurU