Alþýðufylkingin - 09.04.1937, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUFYLKINGIN
3
Hvað á að verða
verklýðsmáluMuiF
w
1
Hálnm verkalýðslns verðnr á pann einn
veg vel komlO fyrlr að allnr verkalýðnr,
karlar og konnr, sameinfst Innan Alþýðu>
sambands Ialands.
Þegar fyrst var fariö að vinna
aö því, að Verkamannafélagið
Drifandi kæmi aftur inn í Al-
þýðusambandið, vakti það fyrir
þeim Alþýðuflokksmönnum, sem
að því stóðu, aö með því gæti
skapast grundvöllur að traustum
verkalýðsfélagsskap í Vest-
mannaeyjum. Almennt var sú
skoðun uppi, að þegar Drífandi
væri komin í Alþýðuisamhandið
yrðu ekki nema 3 verkafýðsfé-
lög í Eyjiun, og þá vitanlega öll
í Alþýðusambandinu. Nú síóð svo
á, að Sjómannafélagiö Jötunn var
öflugt félag og í Alþýðusamband
inu, en hinsvegar var Sjómanna-
félag Vestmannaeyja starfslitið
og utan sambandsins. Öllum virt-
ist koma saman um, að Sjómanna
mannafélag Vestmannaeyja ætti
að leggjast niður, enda meðlimir
þess allir komnir í Jötunn. Sjó-
mannafél. Vestmannaeyja er lát-
ið lifa enn, engum til gagns >g
fáum til meins, að öðru leyti
en því, að í gegnum það er
alió á rógi um hitt félagið.
Við það að Drífandi fór í Al-
þýðusambandið skapaðist það á-
stand, að konurnar, sem verið
höfðu í Drifanda, gátu ekki ver-
ið þar áfram sökum þess, að ann-
að verkakvennafélag innan Al-
þýðusambandsins var f^'rir á
staðnum. Félag þetta, Verka-
kvennafélagið Snót hafði átt erf-
itt uppdráttar, svo sem eðlilegt
er, þar sem verkakvennadeildin
i Drífanda barðist gegn félaginu.
Með inngöngu Drífanda í Al-
þýðusambandið og viðskilnaði
kvennanna við félagið átti all-
ur nábúakritur að vera úti.
Alþýðusambandið sendi erind-
reka sinn til Eyja til að blása
lífi í félagið og verkakvenna-
hreifinguna í Eyjum, en þau ó-
trúlegu tíðindi gerast, að daginn
eftir að Snót heldur aðalfund
sinn, er stofnað nýtt félag verka-
kvenna með nokkrum hluta þess-
ara kvenna sem áður voru í Dríf-
anda. Nú er það augljóst, að
þetta nýja félag getur ekki kom-
ist í Alþýðusambandið og þess
vegna aldrei orðið annað en
nafnið. Reynsla undanfarinna ára
hefir sýnt að þau félög sem eru
utan Alþýðusambandsins eru al-
gerlega máttlaus, þau eru frekar
þröskuldur í vigi verklýðssam-
takanna heldur en hitt. Viður-
kenning fyrir þessu hefir feng-
ist í því að Drifandi óskaði að
komast í samlrandið aftur og enn
fremur má nefna sameiningu fé-
laganna á Siglufirði, þar sem
kommúnistar lögðu og niður sitt
féiag og gengu inn í Alþýðu-
flokksfélagið. Það verður mjög
að harma, hvemig hefir farið í
Eyjum. Verkalýður Eyjanna hafði
sannarlega þörf fyrir, að hægt
vaeri að hefjast handa í verka-
iýðsmálunum. Verkamenn og kon
ur i Eyjum hafa að undanförnu
staðið berskjölduð fyrir kúgun
stóratvinnurekendanna. Öllum er
kunnug sú kaupkúgun, sem átt
hefir sér stað í sambandi við
byggingu samkomuhúss Sjálf-
stæðismanna, þar sem menn hafa
orðið að vinna fyrir 50—60 aur-
um um tímann. Ennfremur má
minna á, að verkamönnum hefir
verið vikið úr vinnu, sem þeir
hafa haft áður, án [>ess að
þeir hafi getað fengið leiðrétt-
ingu mála sinna í gogn í Verka-
mannafélagið. Verkamenn hafa
engan viðurkendan kauptaxta
haft og greiðslumátinn er öllum
kunnur. Öflug verkalýðsfélög
innan Alþýðusambandsins er eina
leiðin til leiðréttingar þessum
málum. Hver sem leggur stein í
götu Alþýðusambandsfélaganna
vinnur gegn hagsmunum verka-
lýðsins. Verkamenn og verkakon-
ur! Sameinist um Alþýðusam-
bandsfélögin, þá munið þið koma
áhugamálum ykkar fram.
JÓN AUÐUNN JÓNSSON OQ
LANDHELGISNJÓSNIRNAR.
(Frh. af 1. síðu.)
við því, að njósnað væri um
ferðir varðskipanna. Sjálfstæðis-
mönnum tókst að tefja í nokkur
ár -fyrir því að hægt væri að
halda uppi sæmilegri Landhelg-
isgæzlu á grunnmiðum kringum
landið. Fiskimennirnir hafa orð-
ið varir við hvaða þarfaverk
þessir menn voru '^ð inna af
hendi. Menn. sem þjóðin hafði
trúað fyrir að fara með mál sín
á Alþingi, notuðu aðstöðu sína
til að teyma erlenda og innlenda
veiðiþjófa inn í landhelgina.
Eyðilegging fiskimiða og veið-
arfæratap hafa verið þungar bú-
sifjar fyrir smáútveginn á undao-
fömum árum. Kaldhæðið er það
að það voru einmitt þingmenn úr
kjördæmum snaáútvegsins, sem
harðast gengu fram; í því að tefja
fyrir frumvarpinu um eftirlit með
skeytasendingum til togaranna. í
fararbroddi voru Jón Auðunn og
Jóhann Jósefsson. Jón Auðunn er
nú orðinn sannur að sök um að
hafa njósnað um ferðir varðskip-
anna og aðvarað togarana. Hve-
nær kemur röðin að næsta þing-
manni sjálfstæðismanna? Fyrir
suðurströndinni hefir mikið kveð-
ið að landhelgisveiðum þýzkra
togara. Umboðsmaður þessara
skipa hefir verið Jóhann Þ. Jós-
efsson. Mikil brögð voru að því
að þýzku togararnir væm tekn-
ir í landhelgi víst árabil, og bend-
ir það til að þeir hafi annaðhvo;r(t
engar fréttir fengið úr landi eða
þá lélegar þau árin. Þó því sé á
engan hátt haldið fram, að um-
boðsmaður þýzku togaranna hafi
stuðlað að landhelgisveiðum
þeirra, verður það að teljast
harla óviðfeldið, að islenzkur al-
þingismaður sé umboðsimaður
erlendra veiðiskipa, sem keppa
við okkur um fiskiveiðar og
markað og stelast inn í land-
helgina þegar færi gefst.
Notið eingöngu
Fells-kaffi
í könnuna, því þá fáið þér
með réttu
ný brent og malað kaffi.
Ef Dú ert vandlátur með rakstnrinn,
þá kauptu eingöngu „Duttil“ eða Blackman“-rakvélablöðin.
„DUTTIL" og „BLACKMAN" fara alls staðar sigutför.
Sitt af hverjn.
3000 tonn af fiski, aðaliega
ufsa, er nú búið að hengja upp
til herzlu. Fiskimálanefnd hefir
sem kunnugt er átt frumkvæðið
um herzluna og fengið erlendan
sérfræðing til leiðbeiningar. Einn-
ig á Fiskimálanefnd alla hjallana.
Sala harðfiskjarins hefir gengið
vel, sem sjá má á því, að fram-
leiðslan er að aukast.
Á eftirtöldum stöðum eru nú
komin hraðfrystihús: Reykjavik,
Akranesi, Bíldudal, ísafirði, Ak-
ureyri, Húsavík, Seyðisfirði og
Norðfirði.
Flest hafa húsin verið reist.
með styrk og fyrir lán frá Fiski-
málanefnd. Hraðfrystihúsin skapa
möguleika fyrir mikla vinnu í
landi við flökun fiskjar. Sft vinna
ætti að geta komið í stað þess,
hvað vinna við saltfiskverkun
minkar.
I rækjuverksmiðju Isafjarðar
vinna nú um 40 manns. Hvenær
kemur niðursuðuverksmiðja f
Vestmannaeyjum? Kringum Eyj-
amar eiru ógrynni af leturhumár,
en hann er betur fallinn og verð-
meiri til niðursuðu en rækjur.
Ótalmargt fleira úr ríki sjávarins
má sjóða niður með góðum ár-
angrj.
Fiskiveiðar Norðmanna hafa
verið betri í ár en nokkurt und-v
anfarinna ára. Aðeins árin 1929
og 30 hafa verið hærri.
FRÆt
margar tegundir, fæ ég bráðlega.
T. d. Blóma-, Kálmetis-, Gul-
rófna- og Rabarbara-fræ. Alt
góðar og þektar tegundrr.
Jöb. H. Jóhanttsson.
Kaupið ALÞÝÐUBLAÐIÐ, bezta.
blað landsins, hjá
ALFREÐ HJARTARSYNL
BEZTA ÖLIÐ á Strandveg 39.
HEITAR PYLSUR á Strandv. 39.
ALLSK. TÓBAK á Strandveg 39.