Austfirðingur - 26.03.1932, Síða 1

Austfirðingur - 26.03.1932, Síða 1
3. árgangur Seyðisfirði, 26. mars 1932 9. tölublað „íslenska vikan“. Eitthvert sárasta vopnið, sem oft hefir verið beitt í styrjöldum hefir verið flutningabannlö til ó- vinaþjóðanna. Menn þekkja hvern- ig þessu vopni var beitt í Napoleonsstyrjöldunum og í heims- styrjöldinní miklu var það eitthvert áhrifamesta herbragðið. Eins og viðskiftum nútímans er háttað, er ekki hægt að benda á neina menn- ingarþjóð, sem svo sje sett, að hún þurfi ekki aö sækja einhverj- ar nauðsynjar til annara landa. Fyrir aldarfjórðungi var okkur kent, að voldugasta þjóð heims- ins, Bretar, mundu líða matar- skort, ef aðflutningar þar til lands teptust, þótt ekki væri nema þriggja vlkna tíma. Svo mikið .áttu Bretar þá undir því að millilandaviðskift- in hjeldust ótrufluö. Kreppan, sem yfir heiminn hef- ir gengið hin síðustu misseri, hef- ir orðið sú neyð, sem kent hefir margri naktri konu að spinna. Nú keppast öll ríki að því, að kom- ast sem mest af með þær vörur, sem framleiddar eru í landinu sjálfu. Kjörorðið er nú hvarvetna *að búa að sínu* og hefir áður verið vikið að þeirri nauðsyn, að því er íslendinga snertir, hjer í blaðinu. * * * Ýms merk fyrirtæki og fjelög í Reykjavík hafa gengist fyrir því, að haldin yrði hjer á landi „ís- lensk vika“, dagana 3—10 apríl n. k. Segir svo meðal annars í ávarpi forgöngumanna: . . . „Tilgangurinn er fyrst og fremst sá, að sýna það og sanna hverjir möguleikar eru á því, að þjóðin búi sem mest að sínu. Hitt liggur ef til vill frekar í augum uppi, að henni er þaö lífsnaud- syn, ekki síst í slíku árferði sem nú er. Margar menningarþjóðir, ogþar á meðal frændþjóðir okkar, hafa fyrir allmörgum árum haflst handa um slíka starfsemi sem þessa. Og hefir henni verið haldið áfram ár- lega. En það er í fyrsta skifti nú, sem gangskjör verður gerð að því, að hvetja alla íslensku þjóð- ina til þess að kaupa og nota eingöngu íslenskar vörur í eina viku og reyna hvernig henni gefst það. Mætti þá af því leiöa, að íslendingar sannfæröust um það, að meira mætti sinnig nota af fslenskum nauðsynjavörum aðrar vikur ársins en gert hefir verið hingaö til. En því meiri þörf er samúðar og skilnings allra lands- manna um framkvæmd þessa máls, sem verkið er seinna hafið." * * * Með rjettu er kvartað yfir fá- breytní íslenskrar framleiðslu. 1 hugum flestra er hún lítíö annað en saltkjöt og saltfiskur. Vöruskrá- in, sem forgöngumenn „íslensku vikunnar" hafa gefið út, ber þess ljóst vitni, að íslensk framleiðsla er miklu fjölbreyttari og íslenskur iðnaður miklu lengra á veg kom- inn en almenningur gerir sjer í hugarlund. Er það óblandiö gleði- efni. Flestir halda víst, að ekki verði ræktaður hjer á landi að neinu marki annar garðmatur en rófur og kartöflur. En hvað segja menn um þessa upptalningu: tóm- atar, vínber. melónur, agúrkur, greskar, asíur, baunir, sultuagúrk- ur, dill, hvítkál, blómkál, rabar- bari, kartöflur, rófur, næpur, radís- ur. Alt þetta er ræktað á íslandi, á sama búinu. En þess er þó að gæta að þar nýtur jarðhlta. Og er hætt við að rýr yrði uppsker- an, þótt „sáð yröi til“ vínberja og melóna á „köldum stöðum". * * * Það sem hjer fer á eftir er tal- iö í framleiðsluskrá „íslensku vik- unnar": Aktýgi, amboð, blikksmíði, blóm, blómapottar, bókband, brauð og kökur, brjóstsykur, burstar, bök- unarefni, efnagerðarvörur (kemisk- ar vörur), eggjaframleiðsia, fata- efni og fatnaöur karla og kvenna fiður og dúnn, fiskmeti, fóðurvör- ur, gasefni og súrefni, gerfilimir ©g umbúðir, gosdrykkir, garðjurtir, ávextir og grænmeti, gull og silfur- smíði, hannyrðir, hreinlætisvörur, húsgögn, höfuðföt karla og kvenna, jámsmíði, kaffi brent og malað, kaffibætir, kalk, kexf kjötmeti, konfekt, krydd, lampaskermar, leðurvörur, legsteinar, leikföng, leirbrensla, listiðnaður, ljósmynda- gerð, mjólkurafurðfr, myndsteypa, netagerö, prentun, prjónavörur, pylsur, saftir, saumur, sef- og reyr- munir, síld og síldarafurðir, sjó- klæði, skinn og gærur, skipa- og bátasmíði, skíði og sleðar, skófatn- aður, skrautmálun, smjör, smjör- líki og feiti, steinsteypuvörur, sútun, sælgæti, söðlasmíði, segl og yfirgreiðslur, tjöld, trjeskurður, trje- smíði, tunnusmíöí, ullarband, út- gerðarvörur, vagnasmíði, vefnað- anörur, vjelsmíði, járnsteypa, öl. Alt sem hjer var talið er fram- leitt að öllu eða unnið í landinu sjálfu. í tljðtu bragði virðist hjer taliö fiestalt sem þarf til daglegra þarfa. En hvað sem því líður, þá er sýnt, að „íslenska vikan“ þarf ekki að verða nein „sjálfsafneitun- arvika", á þeim stöðum, þar sem alt þetta fæst. * * * Ekki verður hjá þvl komist, að minnast ofuriítið ð málíð á vöru- skrá „íslensku vikunnar*. Það er hálfgert hrognamál með köflum. Skal aðeins bent á nokkur dæmi af handahófi: dlegg, áleggspylsur. Þetta er mesta „deilu danska“, ógnar klaufaleg þýðing á „Paalæg*. Áskurður er skárra, en þó ekki viðfeldið. Hvernig væri að nota gamalt og gott íslenskt orð vlðbit? Hversvegna þarf ítalskt salat endi- lega að heita itialienskt salat? Malakoff og mortadella eru til- komumikil nöfn á bjúgum. En fleskarullupylsa er vont nafn á góðum mat, og hversvegna fleska ? Skúripúlver á víst að vera ísltnska ! Netagerð er latmæli, sem virðist vera að ná fullri festu í málinu. En það má eins tala um beramó eða eggaframleiðslu. Það heitir nety'agerö en ekki netagerð. Einn auglýsandinn býður: allar kombin- ationir af kvíslpípum, og auk þess: Pílárar, rúnnir,ferstr.,fleiri steerð- ir, flata prófíleraða. Hvada tungu- mál er þetta? * * * Svona mætti lengi telja. En á þetta er bent til þess að útgefend- urað vöruskránni vandi sig betur næst. Það er ekkert við því að segja, þótt ekki sjeu til íslensk heiti yfir hvað eina, sam í skránni stendur. Qæti það bent til þess, að meiri gróska sje nú á dögum í ísienskum iðnaði en íslenskri tungu. Og má við slíkt una. En útgefendurnir verða að endurskoða auglýsingarnar, svo að ekki sjáist í auglýsingariti „íslensku vikunnar* verstu bögumæli og orðskrípi. Þetta var nú útúrdúr um auka- atriði. Netin eru vafalaust eins góð þótt þau sjeu framleidd í netagerö, og „pílárarnir" engu síðri, þótt þeir sjeu „rúnnir“ og „prófílerað- ir“. — * * * Ávarp forgöngumannanna endar á þessa leið: „Hjer er aðeins um byrjun að ræða, eu tilgangurinn er að halda slíkri starfsemi áfram ettirleiðis ár- lega. Og það mun gert verða í þeirri trú, að landsmenn geta að miklu leyti búið að sínu. Þeir eiga að gera þaö, og þeir verða aö gera það, þegar önnur sund iok- ast. Heitum viö hjermeð á alla góöa íslendinga aö veita traust fylgi góðu málefni. Minnist þess, að betra er hjá sjálfum sjer að taka en sinn bróður að biðja." Austfirðingur vill eindregið taka undir þessi ummæli og skorar á lesendur sína að minnast jafnan kjörorðs „íslensku vikunnar": Kaupið fslenskar vörur. Notiö íslensk skip. Kjördæmamálið. Hjer birtist niðurlagið af köflum þeim úr nefndaráliti Jóns Þorlákssonar og Pjeturs Magnússonar í kjördæmamálinu, sem hófust í sfðasta blaði. Getur hver og einn, sem les þetta, sannfærst um að kenning Framsóknar um óhæfilega þingmannafjölgun, sem leiða mundi af samþykt tillagna Sjáifstæðismanna, er biekking ein og firra. a. Framboð og kosning utan- flokksmanna. Það þarf ekki nema iauslega at- hugun til þess að sjá það, að framboð og kosning utanflokks- manna getur aldrei leitt til neinn- ar verulegrar fjölgunar á þing- mönnum eftir tillögum okkar. Ef utanflokkamaöur er kosinn í kjör- dæmi, þá er það í raun og veru sama sem fækkun á þeim ein- menningskjördæmum, sem geta valdiö misræmi á milli flokkanna. Ef nokkur brögð veröa að því, að utanflokkamenn nái kosningu, þá lækkar tala hinna kjördæmakosnu flokksþingmanna, og þar með hækkar hlutfailstala kosningarinn- ar, a. m. k. ef menn hugsa sjer, að utanflokkaframboð dragi frá þeim flokknum, sem annars hefir mest fyigi og fær flesta kosna í fámannum kjördæmum. Þaö þarf þessvegna ekki að gera ráð fyrir þingmannafjölgun af þessari ástæðu. Aftur á móti gætu menn hugsað sjer, að kosning utanflokkamanna gæti leitt til röskunar á rjettu hlut- falli á milli þingflokkanna á þann hátt, að maður, sem kosinn er utanflokka, styddi í raun og veru einhvern tiltekinn þingflokk. Um þetta yrði þó fyrst og fremst að treysta yfirlýsingu frambjóöandans um flokksafstöðu hans. í þeírri yfirlýsingu verður að vera berum orðum fram tekið, annaðhvort að frambjóðandinn teljl sig til ein- hvers sjerstaks flokks, eða að hann sje utan flokka, en styðji til-

x

Austfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.