Austfirðingur - 26.03.1932, Qupperneq 4
4
AUSTFIRÐINIOUR
Símskeyti
frá frjettaritara Austf. í Rvík.
Rvík. 18/».
Heimildarlög
fyrir Transamericin airlines til
að leggja hjer flughöfn, voru af-
greidd frá Alþingi í dag.
Mishepnuð kröfuganga.
Kommunistar efndu til kröfu-
göngu til Alþingis út af atvinnu-
bótamálunum. En þátttakan varð
svo lítil að þeir gáfust upp.
Afgreiðslubann á Brúarfoss.
Á Blönduósi stendur yfir kaup-
deila. Verkamannafjelagiö hefir
neitað að vinna fyrir kauptaxta
vinnuveitenda, 85 aura um tímann.
Kaupfjelagsmenn útskipuðu sjálfir
frystikjöti sínu í Brúarfoss. Hefir
Alþýðusambandið hótaö aö lýsa
skipið íbann, þegar það kemur til
London, ef ekki veröur þá orðið af
samningum. Brúarfoss hefir nær
fullfermi kjöts. —
Skip sekkur.
Vjelskipið Vísir sökk á Skaga-
firði 15. mars, rakst á ísjaka.
Mannbjörg varð.
Bæjarstjórn Reykjavfkur
hefir með samhljóða atkvæð-
um samþykt mótmæli gegn skatta-
lögum, sem miða eingöngu aö
því að skattleggja Reykjavík.
Sparisjóður Rcykjavíkur
og nágrennis er nýstofnaður.
Rvík z0/a.
Stjórnarskrárnefnd
Efri deildar klofnaði. Þrátt fyrir
margendurtekinn frest, sem Fram-
sóknarmönnum var gefinn til að
leggja fram ákveönar tillögur gátu
þeir ekkert ákveðið sagt hvað
þeir vildu.
Myndastytta Leifs hepna
er komin hingað og verður senni-
lega afhjúpuð fyrsta sumardag.
Togaraflotinn.
Helmlngur togara er að veiö-
um', afli tregur og ufsablandinn.
Sjúkdómur,
sem ekki hefir |>ekst hjer áður,
hefir fundist á Landsspítalanum.
Er það smitandi heilabólga. —
Rannsóknarstofa Háskólans, sem
rannsakar sjúkdóma, er lokuð enn,
sakir fjártregðu landsstjórnar, sem
d aö vera hefnd á Dungal.
Frumv. um vlgtun sfldar
var felt í neðri deild.
Brúarfoss
er kominn til London. Sócíalistar
hafa beðið um að hann yröi sett-
ur í bann. Óvíst enn hvort þeim
tekst það. —
Á Fáskrúösfirði
hefir verið uppgripaafli eins og
skýrt hefir veriö frá hjer í blaðinu.
Um helgina voru komin á land
1200 skippund eftir 7 róðra á 10
báta. Er þetta meiri afli en dæmi
eru til þar. Ekki var búist við að
mikið bættist viö í dymbilvikunni
vegna stórstraums. Nálega var salt-
laust orðið og hafa bátar frá Fá-
skrúðsfirði sótt salt á aðrar hafn-
ir, meðal annars til Norðfjarðar.
Apakötturinn
verður leikinn á annan í pásk-
um. Leikendur eru frú Margrjet
Friðriksdóttir, frú Elísabet Bald-
vinsdóttir, Jóhannes Arngríms-
son, Jón Vigfússon og Theodór
Blöndal. Eiga bæjarbúar von á
ágætri skemtun.
Fimmhundruð krónur
getiö þið unniö í Rinso sam-
kepninni ef hepnin er með. það
er mikil upphæð. Og þótt þið
vinnið ekki nema 100 krónur eða
50 krónur, þá eru það líka pen-
ingar. Fylgist með í Rinso-sam-
keppninni.
Aflafrjettir.
Á Hornafirði hefir veriö tregur
afli síðustu daga. þeir bátar sem
fyrstir komu þangað munu vera
búnir að fiska yfir 100 skpd. —
Annars er afli misjafn og mun
vera frá 30—100 skpd. á bát.
Útlit er sæmilega gott og loðna
veiðist altaf öðru hvoru. Qæftir
hafa veriö stirðar upp á síðkastið.
Athygli
skal vakin á auglýsingu Fr.
Steinholt & Co. hjer í blaöinu,
um rafsuðuvjelar. Er það ný teg-
und rafsuðuvjela, sem m. a. má
nota á þann hátt, að straumur er
settur á vjelina að kvöldi, en að
morgni er suðuplatan rauðglóandi
og má þá sjóða eða baka á vjel-
inni allan daginn án straums. Er
)að mikill kosturrað geta þannig
notað ljósastrauminn sem hita-
gjafa, meðan hann er ekki notað-
ur til ljósa. Vjelar þessar fá hin
bestu meðmeli þeirra, sem hafa
reynt þær. ,
Messað verður
kl. 2 á morgun.
AKRA-mIÍ!
e r b e s t. — Framleiðandh
H.f. SmjörlíRisgerð Akureyrar.
Umboðsmaður áSeyðisfirði
N. 0. NIELSEN,
er hefir ætíð birgðir fyrirliggjandi.
Styðjið íslenskan iðnað.
Kaupið Akra.
Saltkjöt
á 80 aura kg. — ódýrara f heilum
tunnum.
Kaupfjelag Austfjarða.
i!í! Eldavjelar. M1
Ef að þjer hafið hemil, eigiö þjer aö kaupa Meteor eða
Arendals rafsuöuvjelar. Þurfið aöeins 500 Watt, sem er
nóg til að sjóða við fyrir minni fjölskyldur, og samtímis
nóg til ljósa.
Fr. Steinholt & Co„ Reykjavík.
Skrá
yfir útsvör í Seyðisfjarðarkaupstað fyrir árið 1932 liggur framml á
skrifstofu bæjarstjóra dagana 22. mars til 5. apríl næstkomandi að
báðum dögum meðtöldum.
Kærur skulu komnar til bæjarstjóra innan þess tíma.
Seyðisfirði, 21. mars 1932.
Hjálmar Vilhjálmsson.
LJOMA-smjörlíki
er niu besta smjSrlfki,
sem framleitt er i íslandi.
Ábyrgð er tekin á, að
f þvf eru fleiri tegundir
af fjörefni (vitamin) en
f venjulegu smjöri.
$2 Húsmæður! Reynið
smjöriíki þetta og þjer
munið sannfærast um
gæði þess. Ljðmi fæst
f flestum verslunum
bæjarins. 08
Þegar þjer kaupið smjör-
líki, þá biðjlð um y
Tannkrem,
verndar tennurnar
best.
Sjerlega gott fyrir
þá sem reykja.
Aðalbyrgðir:
Sturlaugur Jónsson &Co.
)0<SZ>0®0<S>0
Eldur! Eldur!
Munið að tryggja hús yöar og
aðrar eignir fyrir eldinum, áður
en byrjað er að loga í þeim. —
Hvergi betri kjör en hjá
The Eagle Star & British
Dominions Insurance Co. Ltd.
L o n d o n .
Umboðsmaður fyrir Austurland:
Benedikt Þórarinsson
Seyðisfirði.
Gleymið ekki að vátryggja.
Vátryggingarfjelagið
NORGE l).f.
Stofnað í Drammen [857.
Brunatrygging.
Aðalumboð á íslandi:
Jón Ólafsson, málaflm.
Lækjartorgi 1, Reykjavík.
Sími 1250.
Duglegir umboðsmenn gefi
sig fram, þar sem umboðs-
menn ekki eru fyrir.
Það hefir verið, er og verð-
ur óþarfi að flytja til lands-
ins neöantaldar vörur, því að
H.f. Hreinn í Reykjavík
framleiðir þær jafngóöar og
ódýrar og þœr erlendu. —
H.f. „Hreinn“ framleiðir:
krystalsápu, handsápur, rak-
sápu, baðsápu, stangasápu,
þvottaduft, kerti, stór og smá,
skóáburð, gólfáburð, vagna-
áburð, fœgilög, ræstiduft,
kreolin-baölyf.
Prentsm. Sig. Þ. Guðmundssonar.