Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 12.01.1927, Blaðsíða 4

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 12.01.1927, Blaðsíða 4
4 VIKUOTGÁFA ALÞÝÐUBLAÐSINS Þingeyrar allrar hamingju í störf- um sínum á nýbyrjuðu ári og í allri framtíð. Sóttvarnir vegna „inilúeis5su“ („spænskrar veiki1*). Út af skeyti um útbreiðslu „in- flúenzu“ („spænskrar veiki“) i Ev- rópu hefir heilbrigðistjórnin sent sendiherra fslands í Kaupmanna- höfn fyrirspurnir um veikina til þess að geta gert nauðsynlegar ráðstafanir urn sóttvarnir, ef þurfa pætti. Svarskeyti sendiherrans fara hér á eftir: Khöfn, 8. jan. „Inflúenza“ breiðist nú út um alla Evrópu. Á Spáni, Suóur- Frakklandi og Sviss er hún skæð, annars staðar ekki. Væg „inflú- enza“ hér, útbreidd á Jótlandi, en enn j)á ekki útbreidd í Kaup- mannahöfn, einnig væg í Noregi, þó sögð skæð í Kristianssand. Bú- ist er við frekari farsótt hér og gerður viðbúnaður, en hvergi í Danmörku bannaðar samkomur enn. Samkomubann í Sviss, en ekki frétt urn slík bönn annars staðar. Skólar hér og annars stað- ar sýna varúð, halda börnum frá smituðum heimilum. Khöfn, 9. jan. „Skæður“ Jrýðir manndauóa, „vægur“: enginn manndauði og sóttin yfirleitt mjög létt. Ómögu- legí að segja um manndauða „procentvis“. Sem dæmi um jrað skæðasta er bærinn Montpellier á Suöur-Frakklandi með níutíu þúsund íbúa. Þar dóu hundrað á þrem dögum. Aðalástæða til manndauða er lungnabóiga. „ln- flúenzan“ hefir útbreiðst á skömmum tíma á Norðurlöndum og yfirleitt í Evrópu. Hefir hún einkenni spænskrar veiki í Suð- ur-Evrópu, þar sem hún er skæð, en alis ekki annars staðar. í Kaupmannahöfn er hún ekki tal- in „epidemisk" (skæð) enn. • Sakir þessara fregna heíir nú lieilbrigðisstjórnin sent út svo- hljóðandi Fyrirskipanir heilbrigðistjórn- arinnar vegna „inflúenzu“: Illkynjuð -„inflúenza" á Spáni, Suður-Frakklandi, Sviss og Krist- ianssand í Noregi. Bráðabirgðaráð- stöfun: Einangrið öll aðkomuskip, þar til liðnir eru sex sólarhringar frá því, að þau létu út úr er- lendri höfn. Ef þá eru allir frísk- ir, má leyfa óhintlruð mök við land. Meðan skip er í sóttkví, má ferma og afferma, ef gerlégt þykir án þess, að skipsmenn eigi nein smithættuleg mök við lands- menn. f samræmi við þetta er slept viðkomu „Lyru“ í Vestmannaeyj- um, en viðskiftum við skipið verð- ur hagað þannig, að skipsmenn láta vörur einir á land, en menn úr landi mega ekki fara út í skip- ið. Ef menn þurfa óhjákvæmilega að fara út í útlent skip, verða þeir sóttkvíaðir í 6 daga á eftir. Erlend taðlndi. Simfregnir 6 —10 jan. Frá Lundúnum er símað, að á- standið í 'Hankow í Kína sé afar- alvarlegt. Kínverjar hafi ráðist inn á umráðasvæði Englendinga og ofsæki íbúana, ræni enskar búðir og flæmi burt eigendurna. Kyrra- hafsfloti Englands hefir verið sendur til hjáipar. Bardagi milli Norðurhersins og Canton-hersins um Shanghai er hafinn skamt frá Hankow. Frá Berlín er símað, að spænska veikin geysi á Frakklandi, Spáni, Sviss og Þýskaindi. Margir hafa dáið af völdum hennar, einkum á Frakklandi. Frá Lundúnum er símað, að vegna þess, að enskir menn í Han- kow í (Kína þyki í lífshættu stadd- ir, hafi verið gripið til þess úr- ræðis, að flytja konur og börn enskra marina burt úr borginni. Englendingar hafa fiutt burtu her- lið sitt og sjálfboðalið af umráða- svæði sínu og falið Cantonhernum að vernda útlendinga þar. Að því, er símfregnir frá Lund- únum hermá, eru menn þar mjög áhyggjufullir um, að verzluninni við Kína sé alvarieg hætta búin. Útlendingaandúðin í Kína magnist stöðugt og á undirróðri Rússa í Kína gegn Englandi séu engin lát. Þá er og talið vonlaust með öllu, að stórveldin verði áráft um sam- eiginlega stefnu í má'.um, er snerta Kína. Frá Iíankow í Kína er símað, að svo virðist sem undcnhald Englendirga haíi sefað æsingarn- ar, en þó er búist við, að það sé að eins í bili. Ástandið er enn af- ar-ískyggilegt og ógerningur að spá um, hvað gerast kunni. Frá París er símað, að margir óttist, að dagar stjórnarinnar séu um það bil taldir. - Orsökin til þess er mótspyrna íhaldsráðherr- anna gegn fransk-þýzku samn- inga.ilraununum. Gizkað er á, ,að það sé áform Briands að feggja málið fyrir þingið von bráðara, ef íhaldsráðherrarnir slaka ekki til. Frá Lundúnum er símað, að þráðlaus viðtöl á milli Lundúna og New York hafi hafist 7. þ. m. Frá Shanghai er símað, að sainningur hafi verið geröur á milli stjórnarinnar í Kanton ogræð- ismanns Breta í Hankow þess efn- is, að Kínaher fari af umráða- svæði Breta og þeir fái þar aftur yfirráðin. Frá Kiukiang er símað, að Bret- ar flýi bæinn. Frá Moskva er símað, að hrað- lestarslys hafi orðið á milli Mos- kva og Irkutsk. 16 menn fórust, en 26 hlutu meiðsli af. Frá Lundúnum er símað, að íhaldsblöðin brezku ásaki Cham- berlain um aðgerðaleysi í Kína- málum, og telja þau undirróður Rússa orsök óróans. Frá Lundúnum er símað, að menn óttist alment, að Evrópu- menn verði flæmdir burt af öllum forréttindasvæðum sínum í Kína. Frá París er símað, að einn þriðji þingmanna í Öldungadeild- ina hafi verið kosinn 9. þ. m. Vinstriflokkurinn vann nokkur sæti. Millerand féll. Frá Montreal í Kanada er sim- (að, að Laurierleikhúsið hafi brunnið. Sennilegt er, að 100 manns hafi farist í brunanum. Frá París er símað, að páfinn hafi bannfært blaðið „Action Frangaise" vegna árása blaðsins á sáttastarfsemi Briands. [Hér er auðsæilega málum blandað. Það er ekki hægt að bannfæra nema einstaka menn eða heildir. Við hitt mun vera átt, að blaðið hafi verið sett á skrá þeirra rita, er kaþólskir menn mega ekki lesa (Index librorum prohibitorum).] InixleEid tidiiseii. Læknisliérað veitt. Jóhann J. Kristjánsson, er var settur læknir í Höfðahverfishér- aði, hefir verið skipaður héraðs- læknir j>ar. Bæjarfulltrúakosning ísafirði, FB., 9. jan. á r.ð fara fram hér 22. þ. m. Tveir listar komu fram: A-iisti (jafnað- armanna): Magnús Ólafson íshús- stjóii, Jón H. Sigmundsson tré- smiður, Steíán Stefánsson skó- smiður. B-listi (íhaldsmanna): Matthías Ásgeirsson, fulltrúi bæj- arfógeta, Jón S. Edwald ræðis- maður, Ingvar’ Pétursson verk- stjóri. Bæjarfögetinn gerði það að frávikningarsök, ef fulltrúi hans væri á listanum, en þó eigi fyrr en íramboðsfrestur var út runn- inn, svo ekki var unt að breyta list- anum, og auglýAi kosninguna með að eins eins dags fyrrivara. Fram- boðsfrestur var út runninn í gær um miðjan dag. [Skeylið er gre.'ni- lega sent til afsökunar íhalds- mönnuin, sem munu sjá, að til lítils er að bjóða fram á ísafirði rnann úr sínum flokki.] Búnaðarmálastjóri. Á þingmálaíundum Norður-lsa- fjarðarsýslu var samþykt van- traust á formanni Búnaðarfélags Islands og krafa um að ö!l stjórn búnaðarfélagsins fari frá vegna frávikningar búnaðarmálasijóra. Heilsufarsfréttir. (Eftir símtali 10. jan. við land- lækninn.) Tveir , kikhósta“-sjúkl- ingar hafa bæzt við hér í borg- inni s. I. viku. Að öðru leyti er I ar á Suðurlandi. Sama er að segja j um Vesturland. Þar cr að eins dá- lítil „influenza". Útbreiðsla tauga- veikinnar í Skagafirði er stöðv- uð og „kikhóstinn" nyrðra breið- ist mjög lítið út. Ófrétt af Aust- urlandi. Fiskbirgðirnar i landinu. Talning á fiskbirgðum mun bráðlega væntanleg frá fiskimats- mönnunum, en eftir þeirn gögn- um, sem nú liggja fyrir, verður bráðabirgðaútreikningur þannig: Birgðir 1. dez. 103 880 skpd., afli í dez. um 600 skpd., útflutt í dez. 35 350 skpd., birgðir 1. jan. 69130 skippund. Drengur verður úti. Frétt að norðan hermir, að drengur frá Gafli í Víðidal í Húnavatnssýslu, Sigurvaldi Krist- vinsson, hafi orðiö úti á nýjárs- nótt. Var hann á ferð ásamt föð- ur sínum. Fengu þeir blindhríð og viltust og urðu að lokum að grafa sig í fönn. Andaðist dreng- urinn í fönninni. Á nýjársmorgun komst faðirinn heim við illan leik, þjakaður mjög. Voru þau hjónin eina fullorðna fólkið á heimilinu. Fór móðirin þegar að leita að lík- inu og kom heim aftur síðla clags með það í fangi sér. Vestur-íslenzfear fréttir. FB., 6. jan. Bók Þórstinu Jackson um landnám íslendinga í Dakota er nú kornin á islenzka bóka- markaðinn vestra, og mun bók- in vera um það bil að koma hing- að til lands. Slys. Það hörmulega slys vildi til 30. okt., að ungur maður að nafni Grímúlfur Hoggmann fé'l útbyrðis af gufubátnum „Idyll“ og drukkn- aði. Báturinn var á leið niður eftir Rauðánni og ætlaði út á Winni- pegvatn; var hann kominn nokkr- ar mílur norður fyrir Selkirk, þeg- ar slysið vildi til. Líkið fanst nokkrum dögum síðar, og var það flutt norður í Mikley og jarðað þar, því þar var hinn látni upp alinn og þar hafði hann dvalið allan sinn aldur nerna seinustu tvö árin, sem hann átti heiina í Selkirk. Grímúlfur heitinn var 25 ára að aldri. FB., 7. jan. Guðmundur Grimsson frá Langdon í North Dakota, rík- islögmaður, hefir verið gerður að héraðsdómara. Sá, er héraðsdóm- araembættið hafði, Burr að nafni, fékk embætti það, er Sveinbjörn Johnson hafði. Innan dómhéraðs Guðmundar eru bæði Pembina- og Cavalier-héruð, og búa flestir Dakota-Islendingar á því svæði. Ritstjóri og ábyrgðarœaður HaUbjörn Halldórsson. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.