Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 25.01.1928, Page 2

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 25.01.1928, Page 2
2 VIKUÚTGAFA ALÞÝÐUBLAÐSINS orðið kák eitt. Úr húsnæðisvand- ræðunum er það „prinsíp" þeirra að bæta ekki, og- hin fræga Reyk]'avikur.dýrtíð virðist sízt veia þeim þyrnir í auguni. Stefnubreyting er nauðsynleg tafarlaust Pað ]5arf að losa bæjarbúa und- an hrannni dýrtíðarinnar með varanlegum ráöstöfunum. Jafnvel ekki Reykjavík hefirráð á því að halda uppi hundruðum og þúsundum atvinnulausra manna. Og húsnæðisbölið er í senn bæjarskömm og þjóðarskömm. Bær, sem vill ala upp hrausta borgara, verður að hreinsa út úr öilium kjallaraholum, sem búið er í, og öðrum jafn vondum íbúðum, og sjá íbúum sínum fyrir nægi- legu, góðu og ódýru húsnæði. f- haldsfjármálaspekin segir, að það „borgi sig ekki“. Jafnaðarmenn telja aðgerðarleysi íhaldsstjómar bæjarins í húsnæðismólum glæ[)samlegt . En hver er þá leiðin til bóta? Það. gerir ómótmælanlega ilt verra, ef fólk þyrpist í bæinn til að auka atvinnuleysið og bæta á húsnæðisvandTæðtin. Og ekki batnar dýrtíðin meðan skipulags- leysið á ver.dun og framleiðslu bæjarbúa verður æ magnaðra. Sú leiðin, sem nú liggur næst fyrir, og bezts árangurs er af að vænta, er virkjun vatnsaflsins í Soginu. Skulu hér eftir greindar helztu ástæðurnar til þess, og reynt að skýra í stórum dráttum, hve geysimikilla umbóta er af því að vænta um atvinnulíf íbúa Reykja- vikur og nágrennLs hennar. Þeir kunna að vera nokkrir, er hrýs hugur við, að bærinn leggi út í jafn stórfelt rafvirkjunarfyrirtæki, er þeir minnast þess, hve liin litla Elliðaárstöð varð dýr í hiönd- unium á þeim Knúti, Jóni Þor- lákssyni & Co. Er von til, að sú reynsla skapi vantrú á, að áætl- anir um kostnað við fyrirtækið standist, og enda þótt fyrir frarn muni auðvelt að sannfæra alla mehn um það, að haustrigning- arnar muni ekki breyta vatns- magni Sogsins, þá hakla menn kannske, að einhvers jafn óvænts ágalla sé að vænta á hinni nýju virkjun. En þess má vænta, unt verði að tryggja, að útreikningar við fyrir- tækið verði réttir og framkvæmd verksins í sæmilegu lagi, enda bæði nú fengin meiri reynsla en áður var, og jafnframt má gera ráð fyrir stöðugra verðlagi á efni. Kostna&urinn við að virkja 15 þúsund bestöfl til fullra afnota viö Kaldárhöfða (efra fallið) mun verða nálega 5 milljónir og 500 þúsund krónur, og eru ]?ar með talin öll vatnsvirkin, stööyarhús og rafmagnsvélar, lei&sla til Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, af- spennustöð við Rey-kjavik, aukuar leiðsiur um Reykjavík og Hafn- arfjörð, og yfirleitt allur hugs- anlegur kostnaður við að IeiÖa þessi 15 þúsund hestöfl að hús- ýiegg í Reykjavík eða Hafnarfirði. Auk þess myndi bæði nauðsyn- legt og heppilegt að taka Elliða- árstöðina iiin í keríið, og mætti þá géra ráð fyrir, að stöðin. yrði afhent hinu nýja fyrirtæki fyrir eina milljón krónur, og Reykja- víkur-kerfið fyrir 1 milljón krón- ut. Þar með myndi alt fyrirtækið kosta um 71/2 milljón krónur, en þar af eruf eins og sést á ofan- greindu, 2 milljónir eða tveggja milljón kTóna virði, eign bæjar- ins, þannig, að / framlag bæjar- ins til þessa fyrirtækis, hvort sem það yrði fengið með erlendum ilánum eða öðru vísi, myndi verða rúmlega 5 milljónir króna. Þeg- ar þess er gætt, að Reykjaivíkur- stöðin mun hafa kostað rúmlega þá upphæð með öllu og öllu, sést ljóslega, að fyriríækið er Reykja- víkuTbæ einum sízt ofvaxið fjár- hagslega, þar sem hann nú þegar hefir afborgað þá stöð niður í rúmlega 2 milljónir. En hvað fæst svo fyrir þessar 5 milljónir? Það fæst i stuttu niáli a. m. k. fimm sinnum meira rafmagn en Elliðaárstöðin getur nú framleitt. Það fæst full trygging fyrir þvi, að rafmagn til bæjarins ])rjóti aldrei. Það fæst nægilegt, ódýrt rafmagn til hvers konar iðnaðar í stórum eða smáum stíl. Þaö fæst nægilegt rafafl til allrar suðu og hitunar i Reykja- vík og Hafnarfirði. Það er hægt að láta af mörkum nægilegt rafmagn handa Keflavík, Stokkseyri, Eyrarbakka og Sel- fossi, sveitum austan fjalls og jafnvel Akranesi. En hvað kostar þá þetta raf- niagn einstaklingana? Nú kostar rafmagn þaö, er EIl- iöaárstöðin framleiðir, Reykjavík- urbæ 770 þúsund krónur á ári. Hve mikið rafveita Hafnarfjar&ar kostar er ökunnugt, eða hve mik- ill kostnaður er af iðnrekstri hér með mótorum, seni unt myndi verða að selja rafafl til. Alt rafaflið úr hinni nýju raf- stöö myndi kosta eigi meira en 1250 þús. kr. á ári, og væri þá séð fyrir hæfilegri fyrningu, af- borgunum o. s. frv. Aflið, sem Elliðaárstö&in lætur nú í 1é, kost- ar rúmlega 30 kr. á ári á hvern Reykjavíkurbúa. Fimm sinnum meira afl úr Sogs- stöðinni niundi ekki kosta fullar 50 krónur á livern íbúa Reybja- víkur og Hafnarfjarðar. Afleiðdngarnar fyrir almenning myndu því strax verða þær, að Ijósagjaldið myndi að niinsta kosti lækka um nálega helmjng, og gjaldið til suðu og hitunar myndi lækka geysilega mikdð, þamnig, að allur almenningur, jafnvel hinir allra fátækustu, myndu geta orðið aðnjótandi þsss stórkostlega þæginda- og hrein- lætisauka, sem notkun rafmag'ns til suðu og hitunar er. Svo ódýrt yrði rafaflið, að ef fullnotaðar væru 38 milljónir kilówattstunda á ári, muedikilóx wattstundin að eins kosta 31/» eyri. Slík rafvirkjun sem þessi myndi mjög fljótt bæta að miklu leyti ör atvinnuleysinu í þessum bæ, og það á heilbrig&asta hátt, sem unt er að hugsa sér. Það er sem sé fullkumnugt, og mikið áhyggju- efni öllum beztu mönnum þjóðar- innar, hve geysimiklu fé er árlega kastað út úr landinu fyrir varn- ing, sem auðvelt væri að fram- leiða jafnvel hér, með miklum hagnaði fyrir landsbúa. Er nokk- uð hægt betra að gera við at- vinnulausu hendurnar í Reykjavík en að staTfsetja þær við heil- brigðan, innlendan iðnað, rekinn á vísindalegum grundvelli? Et nokkurt betra ráð hægt að finna, til að verja sig gegn eldsneytis- dýrtíð, og tryggja sig geg-n hættu af ofsaverðhækkun eða aðflutn- ingsteppu slíkrar vöru? Og óneitanlega myndi mörg í- búð, sem nú er of þröng og ó- hreinleg í þessum bæ, verða vel byggileg, ef lítill rafmagnsofn og fyrirferöarlítil rafsuðuvél kæmu i stað hinna fyrirferðarmiklu og ó- þrifalegu koiaofna og eldavéla. Það er í stuttu máli eigi unt að benda á nein skjótvirkari eða viö- tækari úrræði til umbóta á hag almennings í Reykjavík eða ná- grenni hennar heldur en þesskon- ar virkjun Sogsins, er hér hefir verið talað um. Jafnaðarmenn eru forherjar þessa máls og fyrir þeirra atbeina verðurþvi mjög bráðlega hrundið f framkvæmd. í kjölfar þess fylgir svo sívax- andi, heilbrigður, alíslenzkur iðn- aður, sem fyrst og fremst getur þrifist \-eg)ia hins ódýra afls. En það er aftur beinasta leibin úr þeim torfærum, sem atvimnulíf þjóðarinnar á nú við að stríða, að við getum æ meir og meir umn- ið sjálfir að lífsnauðsynjum vor- um, og gert okkiur með því miklu óháðari útlöndum en við nú erum. Á hinn bóginn er því eigi að leyna, að Sogsvirkjunin sætir megnri mótspyrnu „forráöa- rnanna" íhaldsins, er enn stjórna þessum bæ, og l>arf ]>ar eigi ann- að en vitna i það, sem borgar- stjóri sagði nýlega, að hann hefði ætíð verið á móti virkjim Sogs- fossanna. 1 hvert skifti, sem íhaldið hér óttast, að minst verði á þetta mál, hampar ]>að einrvi tálbeit- unni af annari framan í almenn- ing. — Við skuluin athuga hvera- gufuaflið fyrst, segja þeir, athuga til að byrja með, hvort ekki sé unt að leiða heitt vatn í pípum ofan úr Hengli; treysta því, að Klemenz og „Titan" verði okkur til bjargar. Og gott ef þeir stinga ekiii upp á að rannsaka hvort eigi væri unt að vinna afi til lýsingar og hitunar bæjarins úr eldfjöllum og jarðskjálftum. — Raunar er ekkert á móti þvi að rannsaka t. d. möguleika um notk- un jarðhita til aflframleiðslu, ea slíkar rannsóknir mega á enga» hátt tefja fyrir því, að unnið sé af kappi að tafarlausri virkjun Sogs- ins, sem tvímælalaust kemur að fljótustum og beztum notum. Samgönguleysið og viðskifta- örðugleikarnir við útlönd voru um margar aldir einn versú þröskuldurinn í vegi fyrir þroska þessarar þjóðsar. Á síðustu ára- tugum hefir þetta snúist við. Vitt sækjum miklu meira en við þurf- um til útlanda af öllu nema þekk- ingu á því, hvernig við edgum áð leysa úr atvinnuörðugleikum okk- ar á sem hagkvæmastan hátt.. Kolanotkunin á heimilum í Reykjavík og allar útlendu i&n- aðarvörurnar yfirleitt, sem vi'ð flytjmn inn annars vegar, en Sog- ið óvdrkjað hins vegar, eru einkar ljós dæmi. En næst stendur fyrir Reykjavíkurbæ að gera með virkj- un Sogsins alvarlega tilraun til úrlausnar margra erfiðustu vanda- mála sinna. Við bæjarstjömarkosningarnar,. sem nú fara í hönd, geta kjós- endur í Reykjavík valið á milli þess, hvort þeir vilja. fá komið tafarlaust í framkvæmd þessu vælferöarmáli bæjarbúa eða þeir vilja enn gefa íhaldinu umboð til að tefja um ófyrirsjáanJegatt tíma allar framlwæmdir um virkjun Sogsins. Sigurdur Jónasson. Al|iiiigi. Alþingi var sett 19. þ. m.,hið 4U.. í nútímasniði. Séra Friðrik Hall- grhnsson flutti ]>ingsetningar- messu og lagði út af Matth. 6. kap., 33. v. Að lolíinni rannsókn kjörbréfa lagðá meiri hluti kjörbréfanefnd- ar peirrar, er tillögu skyldi gem um þingkjör Jóns Auðunnar, a& frestað yrði samþykt kosningar hans til frekari athugunar, þar eð engin fordæmi séu slíkra mis- fella á kosningu hér á landi; eins og framsögumaðurinm, Magnús; Torfason, sagði. Var sú tillaga samþykt með 25 atkv. gegn 17 atkv. íhaldsmanna, að J. A. J. sjálfum og Sigurði Eggerz með- tölduin. Varð Jón Auðunn við ]>að að þoka burtu úr þingsaln- um. Forseti sameinaðs þings var Magnús T orfason k osinn. Við fyrri kosningu fékk hann 19 atkv Jón Baldvinsson 5 og Jóhannes bæjarfógeti 15. Við en durtekna kosningu fékk M. T. 20 og Jóh. 15. Voitu 2 seðlar auðir í fyrra skdftið, en 6 í hið síðara. Ásgeir Ásgeirsson var kosinn varaforseti sameinaðs þings. Fékk bann 20 at- kv., Jóhann úr Eyjium 15, en 6 seðlflr auðir. Skrifarar: Ingólfur Bjarnarson og Jón Ólaísson (ffeta- kosnáng án atkvgr.).

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.