Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Side 12

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Side 12
12 VIKUOTGAFA ALPÝÐUBLAÐSINS tveimur. Og með hverju árinu, sem leið, varð meiri hjálp að elztu börnunum, svo að aðdrætt- irnir jukust árlega. Samkomiulag- ið á heimiiinu var lika ágætt, svo að ekki var verkatöf að rif- rildi. Reyndar gengu kralíkarnir bláir og blóðugir hver undan öðr- um, eins og gengur og gerist um krakka, sem ekki eru eltir hvert fötmál. En meiðslin virt- ust koma jafnt niður, voru ekkert tíðari á krökicum Halldöru en Ás- gerðar, svo að ekki gátu þau orð- ið miskliðarefni milli jarn frið- samra kvenna og þær Máfabergs- konur voru. Pær gerðu heldur engan mun á krökkunum, og þá ekki hann Gunnar. Það var nú líka svo um hann, að honum veitti dálítið erfiitt að þekkja í sundur yngri börnin, svona í fljötu bragði, enda var nú þetta svoddan urmull. Sérstaklega lá honum við að ruglast í því, hvað voru Ásgerðar börn og hvað Hall- döru. .7. Nú; ekki varð hann þrætuepli þeirra kvennanna. Hall- dóru datt ekki í hug að láta það í ljös á nokkurn hátt, að hún hefði nokkurt tilkall til hans. Hún vissi og viðurkendi, hver átti hús- freyjuréttinn. Og Gunnar var aldrei að neinu flangsi við hana, svo að Ásgerður sæi. Hvað fyrir kom inn á'hlíð, niöri í fjöru eða úti á sjö, það lét Ásgerður sig engu skfta. . En eitt var það, sem varpaði skugga á heimilislífið á . Máfa- bergi: Ásgerður varð heilsutæp- ari með hverju árinu. Og loks kom þar, að hún lézt af banns- förum. Gunnar fór til prests til þess að tilkynna honum látið og ráðg- ast við hann um jarðarförina. Vildi svo til, að þá er Gunnar kom, var Einar oddviti staddur hjá presti, hafði verið að tala við hann um útför þurfaiings. Prestur tók Gunnari vel og bauð honum til stofu. Þar sat oddviti og reykti vindil. — Sæll og ijúfur æfinlega, sagði Gunnar og rétti oddvita höndina. Oddviti tók i hönd honum, en leit varla á hann og sagði ekki neitt. — Gerið svo vel að fá yður ■sætJ, mælti prestur. — Æ, ég þarf nú svo sem ekki að setjast. Þeir eru nú næstum því að segja full fínir fyrir öæðri endann á mér, stóiamir þeir arna. — O, ætli að sjái á þeim, sagði prestur. — Setjist þér bara. Og Gunnar settist. I — Hérna er vindill, Gunnar. Má ekki bjóða yður? — Nei, ætlar nú blessaður presturinn að fara að spandera upp á mig sígara! Ástar þakkir. Maður er nú svo sem vanari bað- töbakinu — og þykir gott. Gunnar tök nú vindil og kveikti i honum, en prestur spurði, hvort hokkuð væri frétta. — Ojæja, hún Ásgerður min, bfessunin, er dáin. Oddviti hrökk við, en hami sagði ekki neitt. — Já, mælti prestur. — Það verða nú að teljast tíðindi, þegar kona deyr frá mörgum börnuim. . . . Hvenær dö hún? — Það var nú í gærdag. — Ekki þó af barnsförum. — Jú, af barnsförum var það, blessaður. — En lifir þá barnið? • — Já, hún var söm við sig með það, blessunin sú arna. Hún skil- aði því heilu á hiúfi. Prestur stöð upp og horfði andartak þegjandi út um glugg- ann. Svo vék hann sér að Gunin- ari. — Hvenær vilduð þér helzt að jarðarförin færi fram? — Ja, ég ætla nú að nálgast kjstuna það allra bráðasia, og svo getur þá presturinn ákveðið dag- inn. En ég býst við að hún vildi komast sem allra fyrst í vígða mold. Þetta var alt af svoddan einstök áhugamanneskja — og guðhræðslan eftir því. — Við segjum þá á þriðjudag- inn. — Já, á þriðjudaginn. Þá skal henni ekkert verða að vanbúnaði. Prestur stakk höndunum und- ir vestisboðungana og gekk uní gólf. Því varð ekki neitað, að hann hafði í rauninni verið öfor- svaranlega afsk'iftaiaus um hátt- ernið á Máfabergi. Hann hafði rétt að eins átalið þau Gunnar og Halldóru lítillega, þegar harm hafði skirt börn þeirra — og ein- staka sinnum í húsvitjun mint Gunnar á guðs boðorð. . . Og þó að héðan af væri sama Ásgerðar vegna, þá var það embættis- skylda, sem alls ekki rná'fti und- ir höfuð leggjast, að nota þetta tækifæri til alvarlegrar áminning- ar. . . En hann vildi ekki á- minna Gunnar að oddvitanum á- heyrandi. Það var bezt að biðja oddvitann afsökunar og fara með Gunnar inn í kompuna, sem var á möti eldhúsinu. . - Og prestur stanzað'i. ... En í sömu svifum stóð oddvitinn upp. Það hafði ergt hann stórlega að sjá, hvernig prestur tók Gunnari og hve vina- lega hami talaði við hann. Auð- vitað átti að sýna oddviitanum, að ekki væri gerður munur á honum og hörkarlinum á Máfa- bergi. En nú skyldi þö ESnar oddviti á Brekku nota tækifærið og auðmýkja þá báða. Hann leit napurlega á prest o r síðan á Gunnar. ) — Gunnar! Gunnar leit upp. . — Ég er til þénustu, ef það er eitthv'að, sem oddvltinn okkar vill mér. — Ja, ég ætla nú að gera mig svo djarfan að nota þetta tæki- færi til alvarlegrar áminningar, úr þvi presturinn okkar gerir það ekki. . . Nú gaf oddviti prestin- um auga. — Já, ég ætlaði að leyfa mér að spyrja þig að þvi, Gunnar, hvort þér fyndist þú nú einskis hafa að iðrast við lík- börur Ásgerðar sálugu. — Hm. . . Gunnar stakk vindil- stúfnum ofan í pípuhausinn og reykti i ákafa. — Bak, bak, bak. . . . Það væri þá helzt það, að ég skyldi ekki hundast til að fá hana Halldóru aumingjann á heimilið strax fyrstu búskapar- árin okkar Ásgerðar minnar. Þetta var ökrisíilegur þrældóm- ur á henni Ásgerði, blessuniruii. Hún varð að púla stífar en nokk- ur áburðarklár. . . En ég veit, að hún taldji !það svo sem ekki eft- ir sér, svo að ég þarf ekki að vera að naga mig neitt í handar- bökin. — En samlíf þitt við Halldóru? sagði oddviti byrstur og leit um leið til prests. — Þú ættir þó að vit það, þö ekki væri nema af áminningum sálusorgarans okkar, að það er svívirðilegt og guðlaust athæfi að hafa tvær konur! Gunnar greiddi hökuskeggið með fingrunum, og hátjðlegur í- hugunarsvipur kom á andlit hon- um. — Það er ekki nema satt og rétt hjá þér, oddviti göður. Þetta er okkur kent. En ég, sem er nú eins vitlaus og fávís og allir vita, þykist hafa séð, að guð og lukkan hafi ráðið öllu því, sem fram við mig hefir komið, síðan ég komst í kristinna manna reit — tölu ætl- aði ég að segja. Og ég var nú svona að láta mér detta í hug, að sveitungar mínir ættu að fara að sjá það ljka, og ekki sízt í þessu með hana Halldóru aum- ingjann. Gunnar þagnaði, og þeir störðu þegjandi á hann, oddviti og prestur. Hvað — hvað ætlaði þetta að verða? Eftir augnabliks þögn hélt Gunnar áfram. — Já; ég var hálfpartinn að meina, að hver og einn ætti þá nú að geta séð, að það hafa verið guð og lukkan, sem gáfu mér þær tvær. . . . Eða hvernig heldur þú nú, blessaður oddv'i'tinn okk- ar, að hefði orðið um vesalings ungbömiin, sitt á hverju árinu, ef ég hefðj ekki haft Halldöru aumingjann? Oddviitinn stðð eins og dæmd- ur. Nú hafð'i hann ætlað að slá sér upp og farjið að abbast upp á prest — og svo hafðí Gunn- ar, ejns og hann var vanur, gert alt ómögulegt. Nú var vjst presti skemt! Þqgar Gunnar þagnaðj, vék prestur sér að skrifborðinu og stóð þannjig, að þeir Gunnar og oddvjti sáu ekki í andlit honum. Hann hafði stokkroðnað og orð- jð ærið harðlegur á svip, þá er oddvjti sagði fyrstu orðin við Gunnar. En nú var prestur alt annað en reSðilegur. Hann hlö ekkí, eins og Jón á Hóli forðum, en hann bTosti, og það verulega hjartanlega. Og það er nú ekki sérlega vjðeigandi, að prestur brosj, þegar dauðinn sjálfur legg- úr upp í hendumar á honum tækifæri til að haía djúp og varanleg áhrjf á villuráfandi sál. Alt í einu sagði Einar oddviti, — og það var ekk’i laust við á- sökunaTblandinn eymdarhreim í röddjnni: . — Jæja, séra Pétur. Þá ætla ég nú að fara að halda hejm á! lejð. Við vorum búnir að ákveða alt um þessa útför. Prestur snér'i sár við. — Nei, nei. Nú drekkum við alfir kaffi. Það er bezt að við valdsmemúrnir drekkum friðar- skál vjð Gunnar, þvi að hann bíta engin járn. Hann er eins * og tröllin i fjöllunum eða engl- ar guðs á h'hnn.um! Og prestux hló græzkulaust og klappaði vin- gjarnlega á öxlina á oddvitanum. Svo var sem oddvitanum létti vjð orð og atferli prests. . J . Að öllu athuguðu, var víst ekki hægt að komast betur út úr þessu öllu saman en að láta eins og ekkert væri og fallast á upp- ástunguna. . . . Og eftir svolitla stund voru þe'ir allir seztir að kaffjdrykkju. Prestur lék við hvern sinn fingur, oddviti var heldur fálátur og varla eins vhðu- legur og hann áttj að sér, — og Gunnar var sjálf alúðin og auð- mýktjn og blessaði þá til skiftis, valdsmennina. . . . En svo blygð- unarlaus reyndjst prestur, að hann sagði kunningjum sinum frá þvi, sem fram hafði farið í stof- unnj á prestssetrinu þenna dag. 0g sagan för mann frá manni. . . . Og nú voru alljr Gunnari jnnilega sammála, hreppsnefndia jafnt og aðrir — einkalega að þvi athuguðu, að Halldóra stóð rétt á fimtugu. Rltitjórl ®g ábyTgðarmaðtm Haraidar Gaðmundason. Alþfðuprentsmíðjan.

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.