Alþýðumaðurinn

Eksemplar

Alþýðumaðurinn - 10.01.1931, Side 2

Alþýðumaðurinn - 10.01.1931, Side 2
2 alÞýðúmaðurinn félagssk&par á að komast á seinni part- inn í vetur. Pegar vor- og sumar- vinna byrjar, á að gera áhlaupið á samtök verkalýðsins. rað er því ekki að undra, þó gætnari menn verklýðs- hreyfingarinnar líti svo á, að nægilegt verkefni til skynsamlegrar félagsvinnu sé fyrir hendi; athugi óvinina, sem halda sig á næstu grösum og vilji snúa sér að þeim. í baráttunni við þá þarf fyrst og fremst rólega samein- ing verk*ýðsfélaganna, ötula vinnu við að safna hinum vinnandi lýð undir merki verklýðssamtakanna og gjör- hugsaðar athafnir í öllum málum. Fyrirhyggjulaust flan og bygging skýja- borga, langt fyrir ofan hið virkilega baráttusvið verkalýðsins, hlýtur aðeins að leiða til falls. >Alþýðumaðurinn< mun fylgjast með þessum málum og leggja það til þeirra, sem hann álítur sigurvænlegast í baráttu verkalýðsins fyrir rétti sínum og velferð. UmræðuMur. í gær kl. 4 var settur fundur sá, sem boðaður hafði veriö í blöðunum hér, af nefndum úr félögum hér í bæ, um Síldareinkasöluna. Umræðu- fundur þessi var vel sóttur, og leit út íyrir, að tilheyrendur ættu von á þvi að til orustu drægi á fundinum milli þeirra, sem eru á móti einka- sölunni og meðhaldsmanna hennar. En það merkilega skeði, að fundar- boðendur komu ekki meö þannig lagaðar tillögur, svo sýnilegt var, að tilgangur fundarboðenda var ekki annar en sá, að deila á framkvæmd einkasölunnar. Margir munu hafa átt von á þvi, að útgeröarmenn geröu harða snerru á Einkasöluna, enda munu þeir, sera deila á hana, hafa ætlaö sér að hrtfa hugi fólksins meö sér, en ekki varð séö að þeim tækist þaö. Ingv- ar Guðjónsson, Steindór Hjaltalín og Otto Tulinius höfðu orö fyrir útgerðarmönnum, en deila þeirra var máttlítil, enda munu mjög fáir út- gerðarmenn þora lengur að halda því fram, að einkasöluna eigi að leggja niöur. Aftur á móti deildi Jón Sigurðsson matsmaður mjög harðlega á þann framkvæmdastjóra einkasölunnar, sem situr hér á Ak- ureyri, fyrir að hafa sent til Ame- ríku, á nýjan markað, kryddsíld, sem reynst hafði óhæf til sölu inn- anlands, og sem yfirsíldarmatsmað- urinn hér neitaði að gefa matsvott- orð. Sagðist Jóni svo frá, að þessi síld hefði verið söltuð, sem venju- leg saltsíld, 36 klukkutíma gömul og legið í salti í tvo sólarhringa, en að því loknu hafði kryddi verið hrært saman við síldina. Sýndi hann réttilega fram á það, að salt- síld tekur ekki kryddi, og þessi síld, sem seld er á nýjan markað til Ameríku, myndi spilla svo stór- kostlega aðstöðu okkar íslendinga til markaðs þar, að stórtjón hlyti af að stafa. Formaður útflutnings- nefndar tók í sama streng og Jón, og vitti harðlega þetta háttalag framkvæmdastjórans, og benti á að óhjákvæmilega yrði að breyta af- stöðu yfirsíldarmatsmanna til Einka- sölunnar; þannig, að þeir yrðu fram- vegis skipaðir af því opinbera með fullu valdi til þess að banna útflutn- ing á þeirri síld, sem að þeirra áliti væri ekki útflutningshæf. Slíkt væri í samræmi við vald yfirfiski- matsmanna. Ekki mætti fiskeigandi senda út fisk, sem matsmaður hafði ekki gefið vottorð. Fundarmaöur. Atvinnuleysi er nú gífurlegt viöa í heimsnum. Mest í stærstu auðvalds- ríkjunum. í Bandaríkjum Noröur Ameríku ganga um 51/. miljón manna atvinnulausir. Neyðin er afskapleg meðal þessa fólks, eins og búast má við, Samtímis og þetta á sér stað og rétt á meðal þessa fólks, safna auðjötnarnir tug- um miljóna á hverjum mánuði og kornhlöður framleiðsluhringanna standa yfirfullar. Hið opinbera vill ekkert gera fyrir atvinnuleysingjana. Börnin gráta af sulti, konur skjálfa af kulda, en friðhelgi eignarréttarins hvílir yfir kornhlöðum >framleiðend- anna< og auðkýfingarnir mega eng- an eyri missa frá sínum daglegu >þörfum<. En hvað stendur þettalengi? Bruni í Kristnesi. * Á miðvikudagskvöldið brann efsta: hæðin — þakhæðin — af heilsu- hælinu í Kristnesi. Varð eldsins vart um 8-leytið og var brunanum ekki lokið fyr en nokkru eftir mið- nætti. Meiri hluti brunaliðsins hér í bænum fór frameftir. Vatni var dælt í eldinn til að halda honum í skefjum, en ekki var hægt að forða því, að allt, sem brunnið gat, brinni ofan af húsinu. Ekki varð komist að eldinum nema innan frá, — um upp- gönguna að efstu hæðinni — og var það lengi svo, að þeir tveir menn úr slökkviliðinu, sem höfðu hinar nýfengnu reykgrímur, gátu -einir starfað að því að dæla í eldinn, hin- ir gátu ekki komist að fyrir reyk. Sýnir þetta hve nauðsynlegt er fyrir slökkviliðið að eignast fleiri þarfa- þing sem þessi. Uppi á hæðinni, sem brann, voru svefnherbergi þjónustukvenna, Úar var og geymt ýmislegt af munumj sjúklinga og starfsfólks. Brann það alt og hefir fólkið biðið tilfinnanleg- an skaða. Ein þjónustustúlka brann dálítið á höndum og andliti. Önnur meiðsl urðu ekki við brunann. Á fimtudagsmorguninn var svo mikið ólag á hitaleiðslunni í hælinu, að ekki var hægt að hita það upp fyr en síðari hluta dagsins. Síðan hefir flest gengið sinn vanagang o^ sjúklingarnir virðast ekki hafa haft neitt ilt af þessu. Skemdir eru nokkrar á efri hæðinni. Veggir sprungnir, hurðir orpnar og útlit ganganna annað en áöu’r. Ýmsir stinga upp á því, þar sem nú þarf að byggja upp rishæöina, að einni stofuhæð sé bætt ofan á hælið. Nóg. er þörfin fyrir meiri vlstarverur, og að því rekur eftir tiltölulegan skamman tíma, að stækka þarf hælið. Blaðið hefir ekki náð tali af hælislækni og veit því ekki tillögur hans í þessu máli. Goöafoss og Dettifoss eiga að vera hér 18, og 19. þ. m., Goðafoss að austan, frá útlöndum, en Detti- foss hraðferð frá Rvík.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.