Alþýðumaðurinn - 10.01.1931, Page 3
alÞýðumaðurinn
3
*----------------------------
ALPÝÐUMAÐURINN.
Gefinn út af Alþýðuflokks-
mönnum.
Kemur út á hverjum Priðjudegi,
og aukablöð þegar með þarf.
Áskriftargjald kr. 5,00.
Ábyrgðarmaður:
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
Sími 75.
Afgreiðslumaður:
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON.
Sími 110.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
>----------------------------------
Hitt og þetta.
Leikkraftar Reykjavíkur samein-
uðust nú loks nú um áramótin.
Gamla leikfélagið og flokkur Har-
aldar Björnssonar runnu saman í
eitt og tók þetta nýja félag við eign-
um og skuldum gamla félagsins.
Vænta Reykvíkingar þess nú, að
öllu leikfélagastríði sé lokiö með
þessu og fram undan sé viðreisnar-
tími leiklistarinnar í höfuðstaðnum.
Flokkur Haraldar Björnssonar hefir
leikið »f*rír skálkar* undanfarið, en
nú verða teknir »Dómar< Andrésar
Þormars, og svo hver leikurinn af
öðrum.
Fjórðungsþing fiskideilda Norður-
lands, sem haldið var hér i bænum
í s.l. mánuði, samþykti eftirfarandi
tillögur:
jFjórðungsþingið beinir þeirri
málaleitun til allra verstöðva
fjórðungsins, aö þær stofni hjá sér
styrktarsjóði fyrir ellihruma sjómenn,
er annars mundu neyðast til að leita
á náðir sveitastjórnanna, og felur
fulltrúunum að hrinda málinu í fram-
kvæmd svo fljótt sem auðið er með
tilstyrk erindreka, aö svo miklu leyti
sem honum er unt.<
a) »Fjórðungsþingiö ályktar aö fela
fulltrúunum að beita sjer fyrir
stofnun deilda i Slysavarnafé-
lagi íslands, liver í sínu bygð-
arlagi, þar sem þær eru ekki
komnar á.«
b) »Fjórðungsþingið felur fulltrú-
um sínum á fiskiþingi, að halda
fram kröfu síðasta fjórðungs-
þings um lögboðið sundnám
unglinga«.
»Fjórðungsþingið mælir með styrk
af Fiskiíélagssjóði til að koma upp
bát á Húsavík til öryggis við flutn-
ing manna milli skipa og lands,
þegar viðkomandi verstöð hefir gert
ákveðnar framkvæmdir í málinu.«
Sú saga er sögð frá fylki einu í
Canada, að á s.l. hausti leitaði hóp-
ur húsviltra atvinnuleysingja á náðir
hjálparnefndar fylkisins. Fólk þetta
hafði hafst við undir berum himni
um sumartímann, en er vetur fór í
hönd, flýði það á náðir samborgar-
anna. Hjálparnefndin fór fram á
það við forstöðunefndir kristilegra
kirkjufélaga 1 fylkinu, aö þær lán-
uðu kjallara undir guðsþjónustuhús-
um safnaðanna handa þessu fólki að
hafast við í nokkrar nætur, á meðan
nefndin væri að koma frekari ráð-
stöfunum í framkvæmd. En for-
stöðunefndir hinna kristilegu safnaða
neiíuöu þessu. Hvaö skyldi meist-
arinn frá Nazaret hafa sagt um
forstöðufólk þessara kristulegu safn-
aða, hefði hann verið staddur á með-
al þeirra ?
Harðar launadeilur standa yfir
hér og þar í álfunni; sérstaklega í
fýzkalandi og Englandi. Skiftast
þar á verkföll og verkbönn og er
hart sótt og varist frá báðum hlið-
um. Kreppan á öllum sviðum þreng-
ir kosti fjöldans. Útfit er fyrir, aö
baráttan bjmji bráðlega hér hjá oss.
ALÞÝÐUFÓLK!
Kaupið Alþýðumanninn og
vinnið að útbreiðslu hans.
Því fleiri og víðlesnari verk-
lýðsblöð, því meiri fram-
gangur jafnaðarstefnunnar
og alþýðumála.
Ríkislögregla.
»íslendingur«, sem út kom í gær,
er enn skotnari í rikislögreglu Ihalds-
ins en hann nokkru sinni áður hefir
verið. Hefir hann nú fengið þá flugu
í höfuðið, að kommúnistar verði til
þess að sameina íhöld beggja and-
stöðuflokka alþýðunnar til að koma
í framkvæmd þessum fegursta draumi
Jóns Porlákssonar og annara nútíma
»sjálfstæðismanna«. Og »Islendingur«
veit ósköp vel hverjir mundu verða
fyrst fyrir barðinu á ríkislögreglunni,
það yrðu fyrst og fremst hjálparhellur
íhaldsins við að koma ríkislögregl-
unni á — kommúnistarnir. Vel er
þetta hugsað og vinsamlega, eins og
von er H, en ekki jafn viturlega. —
Vissa er fyrir því, að ef kommúnist-
unum tekst að æsa upp ríkislögreglu,
þá myndi ríkislögreglan fjölga kommún-
istum um allan helming, nema ef
blaðið dreymir svo »fagra drauma*,
að ríkislögreglan eigi að hafa það
verk með höndum, að »kútta hausinn
af þessum helvítum«x eins og einum
sanntrúuðum íhaldsmanni hér í bæn
um féllu orð fyrir stuttu síðan. En
þá færi nú mesti sakleysissvipurinn að
hverfa af þessu óskabarni íhaldsins,
sem enn hefir ekki náð að fæðast,
þrátt fyrir það, að íhaldið er búið að
ganga með léttasóttina í mörg ár. —
Mega kommúnistar vera stoltir af, að
íhaldið skuli vonast eftir að geta orðið
léttara á næstunni fyrir þeirra tilstilli.
a. b- c.
Auglýsingaverð
»Alþýðumannsins< er hið sama
og hinna blaðanna á staðnum.
Afsláttur gefmn eftir samkomu-
lagi við auglýsendur. — Pví
meiri sem meira er auglýst.
Auglýsingum sé skilað kvöld-
inu fyrir útkomudag blaðsins.
,, Alþýðum að ur inn‘ ‘
verður sendur út um alt land,
því besta auglýsingablað.
Alþingi er kallað saman 14. Febr,
næstkomandi.