Alþýðumaðurinn - 19.05.1931, Qupperneq 2
alÞýðumaðúrinn
höfðu yfir afvinnutækjunum þar
fram að árinu 1928, hlaut að verða
sett fram ?ú kiafa af Aiþýðufulltrú-
unum á þingi, að Akureyri og í
sambandi við hana Siglufjöiður og
Eyjatjörður nytu aðstoðar þingsins
til viðreisnar.
. Alþýðuflokkurinn hafði haldið
því fram, að eina ráðið til þess að
rétta við síldarútveginn væri að
ríkið tæki einkasölu á allri úlfluttri
síld, og í sambandi við þá einka-
sölu y>ðu gerðar þær ráðstafanir,
sem nauðsynlegar væru, til þess að
takmarka framboð sfldarinnar á er-
lendum markaði, svo sæmilegt
verð fengist fyrir þá síld, sem
verkuð yrði. Önnur líklegri leið til
þess að rétta við síldarútveginn
varð ekki fundin að því er virtist.
Það varð því hlutverk þingsins
1928 að konia því tvennu í verk,
að aðstoða Aiþýðuflokkinn á ísa-
firði til þess að taka að miklu leyti
í sínar hendur' atvinnureksturinn þar,
með því að leggja til ábyrgð ríkis-
sjóðs fyrir láni til skipakaupa handa
Samvinnufélagi ísfirðinga — félagi
sjómanna og verkalýðs. Og í ann-
stað að korna skípulagi á síidar-
söluna með Síldareinkasölu íslands,
sem að mestu leyti kemur Akur-
eyrarkaupstað, Eyjafirði og Siglu-
firði að iiði.
A sama þinginu voru einnig
samþykt heimildarlög fyrir ríkis-
stjómina til þess að byggja síldar-
bræðslustöð á Siglufirði, sem gerð
er í hinum sama tilgangi, að rétta
við síldarútveginn hér norðanlands,
Móti þessum umbótamálum kaup-
staðanna á norður og vesturlandi,
beitti íhaldið í þinginu sér með
þeim þunga sem það átti til, svo
þar skar hreiniega í odda á milli
umbótaflokka þingsins og þess
flokks, sem farið hafði með völd í
landinu næsta kjörtímabil á undan,
íhaldsflokksins. Lesendur þessa
blaðs mega því vera sannfærðir
um það, að engin viðreisn hefði
átt sér stað fyrir ísafjörð eða Ak-
ureyri, Eyjafjörð og Siglufjörð, ef
þeir tveir umbótaflokkar, sem nefnd-
ir hafa verið hér að framam, Al-
þýðuflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn, hefðu ekki myndað
meirihluta á þinginu 1928 um við-
reisn þessara landshluta, samhliða
viðreisn landbúnaðarins, sem var
aðal áhugamál Framsóknarflokks-
ins, og sem Alþýðuflokkurinn hefir
ætíð og mun ætíð veita hið fylsta
lið.
Skæðadrífa.
Fulltrúaráðið ekki til.
Síðasti »Verkam.« er að bulla um
það, að af því að Fulllrúaráð Verk-
lýðsfélaganna á Akureyri hafi verið
til og löglegt, meðan Erlingur Faið-
jónsson átti sæti í því, þá hljóti svo
enn að vera. í síðasta blaði »AI-
þýðum.« var það glögglega skýrt, að
meðlimir Kommúnistaflokksins geta
ekki verið löglegir fulltrúar í fulltrúa-
' ráðinu. Löglegt fulltrúaráð Verklýðs-
félaganna á Akureyri er því ekki til
nú sem stendur. Allar gerðir sam-
kundu þeirrar, sem nú er að leika
fulltrúaráðið, eru því ólöglegar og að
engu leyti bindandi fyrir verklýðsíél-
ögin eða Verklýðshúsið. Þetta hafa
þeir líka skilið lánardrotnar Verklýðs-
hússins, því þeir hafa ekki fengist til
að semja um greiðslu skuldanna við
kommúnistana. Vita, sem er, að
samningar við þá eru einskis virði.
» Greiðsluörðugleikar.«
Samkunda sú, sem nú er að leika
fulltrúaráð Verklýðsfélaganna á Akur-
eyri, lætur síðasta Verkam. skýra frá
því, að »greiðsluörðugleikar« séu fyr-
ir dyrum hjá henni, vegna Verklýðs-
hússins. Einmitt það? Fað er örð-
ugt fyrir þá, sem enginn þorir að
semja við. Ólíkt örðugra að klára
fjármálin, en í þá daga, þegar Erl-
ingur Friðjónsson lánaði 5 þúsund
krónur til að greiða fyrstu afborganir
af kaupverði Verklýðshússins. Einnig
örðugra að halda Lesstofu verkalýðs-
ins gangandi nú, en þegar sami
maður lagði verklýðsfélögunum til
húspláss, Ijós og hita, endurgjaldslaust,
til sama starfs.
Framboð
voru öll komin fram 14. þ. m. og
gefur þar að líta 104 frambjóðendur,
sem skiftast svo á flokkana, að Al-
þýðuflokkurinn á 23, Kommúnistar 9.
Framsóknarflokkurinn 34 og íhaldið
35, Kosningahríðin er þegar byrjuð.
Verður hún afar hörð. því bæði í-
haldið og Framsókn ætla sér að ná
meirihiuta, en, sem betur fer, mun
hvorugum flokkanna takast það að
sinni. Skrítnast er framboðið í Norð-
ur Pingeyjarsýslu. t*ar eru tveir
Framsóknarmenn í boði og einn í-
haldsmaður. — Kommúnistar bjóða
fram í 5 kjördæmum. Hafa þeir
engar líkur til að koma manni að við
kosningarnar, en hjálpa íhaldinu hins-
vegar til að ná tveimur sætum frá
Alþýðuflokknum. Alþýðumaðurinn
heiir ekki rúm til að telja upp öll
fulltrúaefnin, enda nóg að flytja, á
sínum tíma, nöfn þeirra, er lifa
kosningahríðina af. Af þessum 104
eru 68 fyrirfram dsemdir til að falla.
Bækur.
»GANGLER1«, V. ár 1. hefti, er
nýútkominn. Nýr ritstjóri er að
þessu hefti, frú Kristín Matthías-
son, og spáir þetta hefti, að góðs
sé að vænta af starfi hennar í fram
tíðinni, svo myndarlega fer Gang-
leri af stað frá hendi hins nýja hús-
bónda. Verða hér ekki tilnefndar
sérstakar ritgerðir í heftinu, sem
framúrskarandi. Athugull lesari mun
finna margt gott í þeim öllum.
»GRÍMA«, 4. hefti, kom út í
vetrarlokin. Eru í þessu hefti 23
sögur og auk þess skrítlur. Eru
margar af sögunum á meðal bestu
þjóðsagna og heftið alt hið læsi-
Iegasta Er ekki að efa, að Gríma
verður hið eigulegasta safn með
tímanum, ef áframhaldið verður eins
gott, eða betra, og það er, sem
komið er.