Alþýðumaðurinn - 14.07.1931, Page 2
2
alÞýðumaðúrinn
borgaö samkvæmt taxta saltenda,
sem ákveður kr. 2,20 fyrir sömu
vinnu. Hefði verið réttast fyrir
a!la hlutaðeigendur að halda sér við
taxta Verkakvennafélags Siglufjarð-
ar. Hann er réttlátastur og best
saminn allra taxtanna og í fullu
samræmi við annað kaupgjald.
Eins og við er að búast, haga
þeir kommúnistarnir sér eins og
fífl í þessum kaupgjaldsmálum. —
Orð þeirra og gjörðir er hvað
upp á móti öðru, og alt þeirra
starf stefnulaust og vitlaust eins
og það hefir verið. í vetur heimt-
uðu þeir fast kaup handa sjómönn-
unum, — alt annað voru verklýðs-
svik og kúgun. Sömu menn setja
taxta fyrir sjómenn. Par er ekki
minst á annað en hlutaskifti fyrir
háseta. Taxtinn minnist ekkert á
Iágmarkstryggingu, en samhliða út-
gáfu hans og alt af síðan, hrópar
Verkam. á þessa iágmarkstrygg-
ingu, þótt hún stríði þvert á móti
taxtanum, sem settur er af sömu
mönnum og rita Verkam. Kaup-
taxti »Einingar« er ákveðinn mikið
hærri en í fyrra, þó að kaup á öðr-
um sviðum hafi ekkert hækkað,
jafnvel lækkað hjá konum. Sam-
tímis lækkar Söltunarfélag verka-
lýðsins síldarkaup félagsfólksins um
\2% frá því sem það var í fyrra,
og stofnar til kauplækkunar á öll-
um síldarstöðvum. Stjórn Söltun-
arfél. segist lækka verkunargjaldið
um 50 aura til að bæta hag sjó-
mannanna. Sömu menn vilja láta
sjómennina í Samvinnufélagi sjó-
manna greiða alt að 75 aurum
hærra verkunargjald á tunnu en í
fyrra, samkv. sumum liðum verka-
kvennakauptaxtans. Sjómenn vilja
ekki láta Söltunarfélagið fá síld til
verkunar, þó að það undirbjóði
alla aðra. Pó æltast Verkam. til
að allir sjómenn hjálpi til að taka
alla síld af öllum öðrum og fara
með hana til Söltunarfélagsins. —
Skyldu sjómennirnir ekki hlaupa af
stað? —
Þegar svona gáfulega og gœfu-
lega er haldið á málum, riiá nokk-
urn veginn reikna sigurinn út fyrir-
fram, enda mun fólki því, sem fyr-
ir þessum málum gengst, liggja í
léttu rúmi hver niðurstaðan verður.
Ef því væri ekki sama um hvernig
fer um verklýðsmálin, myndi það
haga sér eins og skynsamt fólk.—
Nú virðist það vera búið að hlaða
svo miklu af axarsköftum og
hringavitleysu í kringum sig, að
ekki er útlit fyrir að það nái með
nefið upp úr þeirri hrúgu fyrst um
sinn. —
Söltunarfélag Verkalýðsins hélt
almennan félagsfund í gærkvöldi.—
þann fund sótti meginþorri allra
þeirra félagsmanna og kvenna, sem
atvinnu ætla að stunda hjá Söltun-
arfélaginu í sumar. Til umraiðu
var starfsemi félagsstjórnarinnar til
undirbúnings síldarsöltunar í sum-
ar. Fundurinn var boðaður sam-
kvæmt félagslögunum. En eftir að
fundarboð var útgefið, kom Alþýðu-
maðurinn með ádeilu sína á félags-
stjórnina. Umræður og ályktanir
fundarins hlutu því óhjákvæmilega
að mótast nokkuð af þeim skrifum.
Eftir langar og ítarlegar umræður
voru samþyktar í einu hljóði eftir-
farandi ályktanir, og ákveðið að
krefjast rúms fyrir þær í Alþýðu-
manninum, sem aridsvars við og
skýringu á grein þess í síðasta
tölubl. —
»Eftir að stjórn Söltunarfélags-
ins hefir gefið ítarlega skýrslu um
starfsemi sína að útvegun síldar til
söltunar fyrir félagið á þessu ári,
leggur félagsfundur fullkomið og
einróma samþykki á aðgerðir stjórn-
arinnar í þessum efnum, og viður-
kennir fyllilega þá örðugleika, sem
Söltunarfélaginu eru gerðir með
breyttri aðstöðu Síldareinkasölunn-
ar til söltunarinnar.
Vegna framkominnar ádeilu á
Söltunarfélagsstjórnina í blaðinu
Alþýðumaðurinn, vill fundurinn sér-
staklega taka þetta fram:
1. Pað er með öllu tilhæfulaust,
að félagsstjórnin hafi stutt að
lækkaðri kaupgreiðslu til verka-
fólks. Pvert á móti er það
upplýst, enda áður opinbert
mál, að félsgsstjórnin hafi ráðið
söltunarstúlkur á Siglufirði fyrir
taxtaverkakvennafélagsins »Ósk«
enda þótt þar hafi verið auglýst-
ur annar taxti, sem skemmra
gengur. Sömuleiðis er það vit-
anlegt, að félagsstjórninni hefir
aldrei annað til hugar komið en
að fylgja í einu og öllu kaup-
töxtum verklýðsfélaganna hér á
Akureyri.
1. Pegar síldarsaltendur við Eyja-
fjörð taka sig saman og bjóða
verkakvennafélaginu upp á samn-
inga um lœkkun á sölunartaxta
sínum, þá nefna þeir ekki einu
sinni við Söltunarfélagið að vera
með í þeim samtökum Síldar-
saltendurnir virðast því ekki
vera í vafa um, að þessu félagr
kemur ekki til hugar að kvika
frá settum taxta verklýðsfélag-
anna. —
3. Aðdróttanir um lélega útkomu
hjá Sölunarfélaginu síðastliðið
ár lýsir fundurinn með öllu til-
hæfulausar, enda greiddi félagið
5% uppbót á vinnu félags-
manna, þrátt fyrir ríflega þátt-
töku í stofnkostnaði og ýms út~
gjöld, sem leiddu 'af útfærslu
starfseminnar. Pó var félagið
að heita mátti eini saltandinn,
sem tók á móti síld á Sunnu-
dögum, og hér við Eyjafjörð
greiddi það eitt taxtakaup fyrir
verkun hreinsaðrar síldar.«
Samkvæmt álkvörðun fundarins
sendi ég ályktanir þessar til birting-
ar í Alþýðumanninum, í trausti þess
að þær fái rúm í næsta tölubl.
blaðsins.
Steinþór Ouðmudson.
Athugasemd.
Alþýðum. er sönn ánægja að
birta heiðrað ’Svar Söltunarfélags
Verkalýðsins*, þó að blaðið telji
sig ekki skylt birta það, þar sem
það skýrir hvorki né leiðréttir það,
sem Alþýðum. hefir áður sagt um
þessi mál. Pað fjallar eins og við
mátti búast, minst um þau þrjú
aðalatriði, sem Alþýðum. bygði