Alþýðumaðurinn - 12.09.1931, Blaðsíða 3
A LÞÝÐUM AÐURINN
3
fyrir bryggjuna, sem ekkert var
notuð.
Annarsstaðar hefir atvinnulífið
verið bærilegt — og sumstaðar
blómlegt. Sumir »foringjarnir* að
innan fluttu á eftir krásinni, og
skildu fólkið, sem hafði verið svo
ógæfusamt að treysta þeim, eftir í
atvinnuleysiriu. Göfugmenskan var
svo sem jöfn á allar vogir.
Pað væri svo sem engin furða,
þótt samviskan léti eitthvað á sér
bæra hjá þessum mönnum. —
»Verkam.< ber þess líka lítiishátíar
vitni. En ómenska þeirra er svo
mikil, að þeir þora ekki að taka á
sig verðskuldaða sök í þessum
málum. Með lævísum crðum er
»Verkam.« að reyna að velta sök-
inni yfir á aðra; hina gætnari menn
verklýðshreifingarinnar hér f bæn-
um, sem ekkert hafa nærri þessum
málum komið. Blekkinga , lyga- og
svikabraut Björns Grímssonar og
hans nóta, í sambandi við Söltun-
arfélagið, er óendanleg.
Söltunarfélag verkalýðsins var
stofnað í góðum tilgangi, og hefði
mátt verða verkalýð þessa bæjar til
ómeíanlegs gagns. Ógæfa þess er,
að það hefir lent í klóm óhiut-
vandra manna, sem hafa notað það
eins og hér er lýst að framan. —
Saklaust verkafólkið geldur þeirra
nú á eftirminnanlegan hátí. Ætti
þelta að verða til þess að kenna
því, að fela ekki slíkum mönnum
forystuna í framtíðinni.
III.
Rógstarf kommúnistanna gegn
forgöngumönnum Alþýðuflokksins,
er þó aðal líftaugin í blaðastarf-
semi þeirra.
Pað er reyndar ekki nema von,
að vesaldómur þeirra snúist upp í
gremju og illkvitni, þegar þeir
standa andspænis jafn öflugum
ílokki og Alþýðuflokkurinn er, með
íyrirskipanir rússneskra húsbænda
á hálsinum um að eyðileggja Al-
þýðuflokkinn. En þeir, sem hafa
valið sér það hlutskifti að svíkja
sína eigin þjóð, verða að bíta í það
súra epli að taka afleiðingunum af
því starfi. Þeir verða að þola fyrir-
litning þjóðarinnar í. heild og fulla
andúð verkalýðsins án þess að
blikna eða skrækja, fyrst þeir einu
sinni hafa leigt sig til ógæfustarfs-
ins. Cg einhvern tíma hefði ís-
lenskur verkalýður vænst þess, að
göfugra verkefni og þjóðheillavæn-
legra lægi t. (i. fyrir Einari Olgeirs-
syni, en það eitt, að stjórna þessu
auðvirðilegasta starfi, sem nokkur
íslenskur stjóriimálaflokkur hefir
nokkurn tíma haft með höndum.
En svona langt niður geta þeir
komist, sem flugumennskuna gera
að lífsstarfi sínu.
Hvað flerir bæjar-
stjórn Akureyrar?
Síðasta Alþingi heimilaði ríkis-
stjórninni að verja alt að 300 þús.
kr. itr rikissjóði til styrktar kaup-
stöðiim landsins í atvinnubótaskj-ni,
gegn tvöföldu framlagi frá kaup-
stöðunum. Um það hvernig styrkn-
um skyldi úthlutað, skjúdi ráða
þriggji: manna nefnd. Skjúdi einn
maðurinn vera skipaður af ríkis-
stjórn, annar af Alþýðuflokknum og
þriðji af Reykjavíkurbæ. Nefndin er
nú fullskipuð. Skipa hana: frá ríkis-
ins hálfu Sig Sigurðsson búnaðar-
málastjóri, frá Alþvðufl. Sigurjón Á.
Ólafsson fyrv. þingmaður, frá Rvík-
urbæ Maggi Magnúss. læknir.
Neíndin hefir þegar sent út til-
kynningu um hvenær kaupstaöirnir
þurfi að vera búnir að sækja um
styrkinn og hver skilyrði þeir þurfi
að uppfylla til þess að verða hans
aönjótandi. Þurfa umsóknir um styrk-
inn að vera komnar til nefndarinnar
fyrir 15. Október n. k. ásamt trygg-
ingu fyrir framlagi kaupstaðanna,
lj'singu á þeim framkvæmdum, sem
gera á. og sönnunum fyrir því að
atvinnubótanna sé þörf.
Þegar svo að til þess kemur að
deila út atvinnubótavinnunni, mega
ekki aðrir njóta hennar en þeir,
sem geta sanuað, að þeir fái ekki
vinnu annarstaðar!! Og séu fleiri
umsækjendur um vinnuna, en hægt
er að koma að, sitja heimilisfeður
fyrir einhleypum mönnum.
Hvað ætlar Akureyrarbær að gera?
Ætlar hann að ná í eitthvað af þess
um stj’rk? Eða er engin þörf fyrír
atvinnubótavinnu hér?
Að atvinnuaukning sé aðkallandi,
eru allir réttsýnir menn sammála
um. Hví þá ekki að notfæra sér
þessa hjálp ríkisins, þó nánasarleg
sé og fullnægi ekki Reykjavík einni,
þó hún rvnni öll þangað? Það mun
vera krafa alls verkalýðs, að þetta
sé . gjört og er því bæjarstjórninni
óhætt að fara að hreifa sig. Nægir
verða umsækjendur um bitann.
Erling Olaisson
söng í Samkomuhúsi bæjarins í gær.
Hann hefir lítið lært, en hefir frá
náttúrunnar hendi gullfallegan »tenor-
baryton<, og fer vel með hann, þótt
ungur sé. Taxta ber hann skýrt og
íallega fram. Söngskráin var vel
valin við hæfi söngvarans, og söng
hann flest lögin vel. Best söng ha*n
»Sjódraugar< (Sig. í’órðarson), ein-
kennilegt og fallegt lag, »0, Herre*
(Melartin), Bikarinn (M. Kristjánsson),
»Ave Maria< Kahn) og »Stenka
Rasin<, sem hann varð að geía sem
aukalag eftir að söngskráin var
tæmd. —
Áheyrendur voru sorglega fáir og
getur varla heitið vansalaust fyrir
bæjarbúa að meta meira allskonar
kvikmyndarusl, heldur en söng ungra,
upprennandi — og fátækra — ís-
lenskra söngvara, sem eru að reyna
að afla sér tekna, til að geta þrosk-
að náðargáfu þá, sem þeir hafa
hlotið frá náttúrunnar hendi.
Erling hlaut gott lófaklapp og
blómvönd fyrir söng sinn. Væri vel
ef hann heíði aðstæður til að læra
meira. T-
Héraðsfundur verður haldinn á
morgun á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Af völdum þessa falla messur niður
þennan dag.
Frost hafa verið undanfarnar nætur
og sólfar um daga. Sölnar gras nú
óðum. Heyskapur er þegar orðinn
sæmilegur. Fiskafli ágætur hér úti
fyrir og síldarafli nokkur.