Alþýðumaðurinn - 30.01.1933, Side 2
ALPtÐUMAÐURWW
J
maðurinn* að segja. Hvers vegna?
Pað er skiljanlegt. — Pá er frásögn
»VerklýðsbIaðsins€ 3. þ. m. um at-
vinnubófavinnuna fyrir jólin, enn betra
dæmi upp á fréttaburð kommúnist-
anna. Er sú klausa birt hér orðrétt,
til gamans bæjarbúum:
»Harðvítug barátta hefir staðið á
Akureyri milli verkalýðsins undir for-
ustu koramúnista og atvinnurekenda,
sem beitt hafa bæjarstjórninni fyrir sig
í tilraununum til að lækka kaupið.
Lágmarkskröfur verkamanna voru,
að fyrir jólin fengju 100 manns minst
atvinnubótavinnu og greiddur væri
fullur taxti félagsins við tunnuverk-
smiðjuna. Fjölmentu verkamenn mjög
á bæjarstjórnarfundinn, er kröfur þessar
voru ræddar. Reyndu erindrekar at-
vinnurekenda þá að koma fram kaup-
lækkun með brögðum og notuðu
Erling Friðjónsson sem málsvara sinn.
Prédikaði hann yfir verkamönnum, að
betra væri að vinna fyrir lítið kaup
en hafa enga vinnu og vildi að verka-
menn gengju að því að vinna í akk-
orði við tunnuverksmiðjuna fyrir 70
aura á tunnu. En til þess að reyna
að fá verkamenn til að ganga inn á
þetta og varast að koma of berlega
fram, sem erindreki atvinnnrekenda,
lagði hann til að 200 manns fengju
atvinnubótavinnu. Knúðu verkamenn
þá kröfu fram en létu hinsvegar ekki
blekkjast um tilganginn. Á Verka-
mannafélagsfundi rétt á eftir, sam-
þykktu þeir, með 3/s atkvæðum gegn
V*. og halda fast við kauptaxtann í
tunnuvtrksmiðjunni.
Hefir samfylkingin undir forustu
kommúnista unnið frægan sigur t
þessari baráttu.« (Leturbr. hér.)
Peir kunnna að segja frá, Guðmann
og Steingrímur, þegar þeir eru að
þylja fréttir héðan í eyra sprengitóls
auðvaldsins í Reykjavik, Br. Bjarna-
sonar, en Akureyringar vita hvað satt
er f þessum málum.
Róðrarnir nú byrjaðir í Vestmanna
eyjum, og er afli dágóður. Svo
mikill mannfjöldi er kominn til eyj-
anna, að hvergi nœrri allir fá at-
vinnu, og eru sumir snúnir heim
aftur. Samt er Goðafoss hálffullur
af fólki, á leið til eyjanna.
1. O. G. T. I.O.G.T.
Stúkurnar, Ísafold-Fjallkonan nr. 1, og Brynja nr. 99, halda
sameiginlegan fund í Skjaldborg n. k. Miðvikudagskv. kl. 8,30.
DAGSKRÁ:
1. Framlagður endurskoðaður reikningur hússins.
2. Kosin hússtjórn og endurskoðendur.
3. Önnur mál, sem fram kunna að verða borin,
Æskilegt væri, að sem flestir templarar mættu á fundinum.
Akureyri 31. Janúar 1932.
f. h. stúknanna.
Guðbj. Björnsson.
SL0KKVILIÐ AKUREYRAR
Fyrirliðar slökkviliðs Akureyrarkaupstaðar fyrir árið 1933:
Slökkviliðsstjóri: Eggert St. Melstað, Oddagötu 3. — Sfmi 115,
Varaslökkviliðsstjóri: Gunnar Guðlaugsson, Lundarg. 10. Sími 257.
Flokksstjóri í innbænum: Karl Jónsson, Lækjargötu 6. Sfmi 282.
Aörir flokksstjórar: Friðrik Hjaltalín Grundargötu 6, — Tryggvi Jóna-
tansson Lundargötu 6, — Aðalsteinn Jónatansson Hafnarstræti 107b,
Snorri Guðmundsson Hafnarstræti 108, — Veturliði Sigurðsson Odd-
eyrargötu 30, — Svanberg Sigurgeirsson Þörunnarstræti.
Brunaboðar í útbænum: Rudolf Bruun Hríseyjargötu 5 og Vernharður
Sveinsson Eyrarlandsveg 14.
Brunaboðar í innbænum: Edvarö Sigurgeirsson Spítalaveg 15 og
Sigurður Jónsson Aðalstræti 18.
Menn eru áminntir um að tilkynna símastöðinni og slökkviliðinu ef elds-
voða ber að höndum, — og festa þessa auglýsingu upp sér til minnis.
Akureyri, 26, jan, 1933.
Eggert St. Melstað . Sími 115,
Skattanefnd Akureyrar
verður til viðtals á skrifstofu bæjarstjórans, kl. 8 — 10 síðdegis virka
daga, Febrúarmánuð út. Á þessum tíma eru skattskyldir menn í bænum
beðnlr að afhenda framtalsskýrslur sínar og vitja eyðublaða undir skýrsl-
ur, ef einhverjir skattgreiðendur skyldu ekki hafa fengið þau.
Skorað er á atvinnurekendur að gefa hinar lögboðnu skýrslur um
starfsmannakaup á tilsettum tíma.
Akureyri, 25. Janúar 1933.
Skattanefndin.
Ábyrgðarmaöur
Erlingur Friðjónsson.
Prentsmiðja Björns Tónssonar.
Dáinn er hér í basnum Hallgrímur
Sigurðsson fyrv. stýrimaður, eftir
langa vanheilsu. Hallgrímur heitinn
var hæglætis og gæða maður og
vel Virtur af öllum, er þektu hann.