Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 18.03.1933, Page 3

Alþýðumaðurinn - 18.03.1933, Page 3
alÞýðumaðurinn 3 Skólahátíð Mentaskólans á Akureyri var hald- in 2. þ.m. Hennar hefir ekki verið getið hér í bæjarblöðunum enn sem komið er, og langar mig því til að biðja Aiþm. fyrir nokkrar línur um hana, af því að ég tel þessa samkomu engu óinerkari en t.d. þorrablót, allskonar mót o.s.frv., sem blöðin æfinlega minnast á. Hátíðin 'hófst kl, 8 síðdegis. — Flutti skólameistari stutta ræðu og bauð alla velkomna. Sátu undir borðum um 250 manns í hátíðasal skólans. Pórarinn Björnsson kenn- ari flutti erindi um Parísar-borg og lífið í Sorbonne-háskóla, þar sem hann hefir dvalið við nám undan- farin 4 ár Var erindið bæði mjög fróðlegt og ljómandi skemtilegt. — Pví næst fluttu 3 skólapiltar ræður: Karl Strand frá Neslöndum, í 5. bekk, tnintist skólans, Bragi Sigur- jónsson frá Laugum, í 4 bekk, íslands, og Broddi Jóhannesson, í 3. bekk, kvenna. Sungin voru 3 gamankvæði fyrir minni kvenna eftir Ragnar Jóhannesson, í 5. bekk. Af hálfu gesta töluðu þeir Bjarni Jónsson bankastjóri, Sigurður Hlíð- ar dýralæknir, Steingr. Jónsson bæj- arfógeti og Steingrímur Matthías- son héraðslæknir. Skólameistari mintist nemenda skólans. Sungin voru mörg lög undir stjórn söng- kennarans, Björgv. Ouðmundsson- ar. Veitingar voru aðeins kaffi með brauði, og epli. Eftir miðnætti er upp var runnin Jónsmessa hins helga Hólabisk- ups flutti Brynleifur kennari Tobi- asson stutta ræðu um hinn helga Jón eins og venja er til á hverri skólahátíð. Að erindi þessu loknu flutti Óskar Magnússon, stud. art., frá Tungunesi, drápu hrynhenda, regin-snjalla, um Jón biskup, en hann hafði ort hana sjálfur. Dans var stiginn fram á miðjan morgun. Pótti skólahátíð þessi hafa tekist hið besta. Vín var eigi um hönd haft heldur en endranær á samkomum skólans og skemtu all- ir sér því hið besta, þar sem engir ölóðir menn og ölsjúkir voru til að spilla gleðinni. S5 eigi vín á nokkr- um manni né konu, og mun mega fullyrða, að enginn hafi bragðað vín á hátíðinni. Skólinn var skreyttur hið glæsi- legasta málverkum og myndum. — Pótti mörgum sem væru þeir horfn- ir inn í æfintýrahallir, svo dásam- lega var frá öllu gengið. Stóðu fyrir skreytingunni þau Brynja Hlíð- ar og Haukur Helgason, bæði í 6. bekk, en að listaverkum þessum höfðu unnið auk þeirra Jór.as Snæ- björnsson kennari og Óskar Magn- ússon. Græskulausar skopmyndir af nokkrunl kennurum, skólasveinum og gestum, héngu á gangveggjun- um, og voru flestar þeirra vel gerð- ar. Voru þær handaverk þeirra Ragnars Jóhannessonar og Jörundar Pálssonar. Sveinbjörn Finnsson, umsjónarmaður skóla úti vjð, hafði á hendi stjórn og undirbúning há- tíðarinnar, og heppnaðist ágætlega. Baldur Jónsson frá Eskifirði annað- ist stjórn á bakstri, enda er hann útlærður bakari. Meðan setið var undir borðum ávarpaði Einar Ásmundsson, frá Hálsi í Fnjóskadal, skólann hlýlega og hylti skólameistara, kennara og skólasystkini fyrir hönd norðlenskra stúdenta, sem komnir voru saman í Reykjavík við þetta tækifæri. Enn- fremur flutti formaður útvarpsráðs, Helgi Hjörvar, skólanum árnaðar- óskir. Var að þessu ánægjuleg til- breyting og bar kveðja Einars vott um hlýjan hug Akureyrar-stúdenta til síns gamla skóla. Skólahátíðin, þó að fátækleg væri um mat og drykk og aðrar veit- ingar, var svo vegleg og auðug um fögnuð og andlega hressingu, að hún getur verið til fyrirmyndar öðrum, hvernig þeir eiga að skemta sér. — L.l. Ný reiðhjöl II og allt til viðgerðar reið- hjólum, í stærstu úrvali. Steingr. G. Guðmundsson. Sími 123. Strandgata 23. Sími 225. Lyga-merðirnir. Meðan Verklýðsfélag Akureyrar var ekki búið að setja kauptaxta sinn, gengu Lyga-merðir sprenginga-komm- únistanna út um allan bæ og reyndu að hræða fólkið á því, að verklýðs- félagið ætlaði að lækka kaupið. — Orðið hefir vart við einn mann, sem trúði þessari lýgi marðanna, en aðrir létu hana eins og vind um eyrun þjóta. — Nú hefir málgagn marðanna þanið sig út af því að helgidagakaupið hafi verið lækkað úr kr. 3,00 niður í kr. 2,50, eftir því sem það segir, og mánaðarkaup að vetri úr kr. 250,00 niður í kr. 220,00. Hvað helgidaga- vinnukaupið snertir er það þvættingur að það hafi verið lækkað, því vesal- dómur P. Porsteinssonar og Steingr. Aðalsteinssonar var svo mikill í fyrra; að þeir lækkuðu helgidagakaup við síldarvinnu niður í kr. 2,00 um tímann, en Verklýðsfélagið er að reyna að hafa helgidagakaupið upp aftur með því að setja í taxta sinn kr. 2,50. Priggja króna kaupið, sem gilti fyrir skipavinnu, hefir nálega aldrei verið greitt, vegna þess að skip hafa ekki verið afgreidd á helgum dögum, og var því þýðingarlaust að hafa slíkan taxta. Marðar-taxtinn, að vetrinum, hefir aldrei verið haldinn. Hann var settur í tíð Einars Olgeirssonar, sem formanns Verkamannafélagsins, og brotinn af öllum, sem mánaðarmenn höfðu, þá þegar við nefið á Einari, og hefir aldrei fengist lagfæring á því síðan. Og sú lækkun, sem nú er gerð á vetrartaxtanum, stafar af ómensku Einars Olgeirssonar í fyrstu í að halda honum uppi, og síðan þeirra Por- steins og Steingríms, eftir að þeir tóku við stjórn Verkamannafélagsins. — Eins og kunnugt er um merðina, fara þeir aldrei með annað en róg og ósannindi, og því hafa þeir ekki vilj- að geta þess í málgagni sínu, að Verkíýðsíélag Akureyrar hœkkar helgi- dagakaup og eftirvinnu karlmanna viö síldarvinnu frá því sem áður var, og alt kaup kvenna við fiskvinnu, — En þetta kaup lækkaði Verkamanna- félagið og kvenfélagið stórlega f fyrra, fyrir ómensku og læpuhátt Porsteins, Steingríms og Elísabetar. Leikfélagið leikur »Hinrik og Pernilla* og »Fröken Júlíac 1 Sam- komuhúsinu annað kvöld, kl. 8,30.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.