Alþýðumaðurinn - 11.04.1933, Síða 3
alÞýðumaðurinn
3
íslenska vikan.
Ákveðið hefir verið að halda »ís-
lenska viku* yfir land allt 30. Apríl
til 7. Maí n. k. Hér í bænum er
7 manna nefnd farin að starfa að
undirbúningi vikunnar. Eru það 4
félög, sem hafa kosið fulltrúa í hana.
Iðnaðarmannafélag Akureyrar kaus
Stefán Árnason (form. nefndarinnar)
og Ólaf Ágústsson. Verslunar-
mannafélag Akureyrar kaus Baldvin
Ryel (gjaldk. nefndarinnar) og Einar
Methusalemsson. Félag verslunar-
og skrifstofufólks kaus Svein Pórð-
arson (ritari nefndarinnar) og Starfs-
mannafélag K.E.A. kaus Jakob Frí-
mannsson. En þessi nefnd hefir
aftur kosið Sveinbjörn Jónsson
sem oddamann.
Nefndin ætlast til þess,. að »ís-
lenska vikan« hér í bænum verði
með svipuðu sniði og í fyrra. En
auk þess er í ráði að stofna félag
fyrir Norðlendingafjórðung er fram-
vegis starfi árlega að »íslensku vik-
unni«. Er þetta gert í samráði við
»íslensku viku«-nefndina í Reykja-
vík, og ætlunin að stofna eitt slíkt
félag í hverjum landsfjórðungi og
þar að auki landssamband. Væri
mjög æskilegt að áhugamenn um
þetta ágæta málefni, í sveitum og
kaupstöðum norðanlands, settu sig
sem fyrst í samband við þessa
undirbúningsnefnd. Er ætlast til
að allskonar félög, verslunar- og
iðnaðarfyrirtæki, svo og einstakl-
ingar, gerist meðlimir þessa félags-
skapar, og styrki starfsemina á
ýmsa lund, meðal annars með því,
að leggja til hennar dálítið gjald ár-
lega eða í eitt skifti fyrir öll.
Nefndin mun fúslega greiða fyrir
sölu og sýningu á hverskonar smá-
iðnaðarvöru og heimilisiðnaði, um
»íslensku vikuna«. Væntir nefndin
þess, að allir leggist á eitt um það
að íslenska vikan verði sem áhrifa-
ríkust. Sérstaklega væntir hún þess,
að allir skólar beiti áhrtfum sfnum.
S^
Kristniboðsfélag kvenna heldur op-
inbera samkomu 2. páskadag kl. 5 í
Hersalnum.
BRAUÐBÚÐIR
okkar verða opnar eftirtalda daga, sem hér segir: Skírdag,
opið kl. 10 f. h. til 4 e. h. Föstud. langa, lokað allann
daginn. Páskadag, lokað allan daginn. 2. Páskadag, opið
kl. 10 f. h. til 4 e- h. —- Aðra daga sem venjuiega.
Kaupfélag Eyfirðinga. Kristján /ónsson.
Stefán Sigurðsson.
Skæðadrífa.
Þrír ræðumenn — tólf til-
heyrendur.
Einar Olgeirsson, heildsali f Rvík,
Jón Rafnsson, sem staðið hefir fyrir
götuupphlaupum hér á Akureyri, og
Þóroddur Guðmundsson, samherji
* Jóns Rafnssonar, boðuðu til »al-
menns sjómannafundar«, Föstudag-
inn 7. Apríl s. 1. og rituðu nafn
Sjómannafélags Norðurlands undir
auglýsinguna, en það félag er dautt
fyrir meir en ári síðan. — Þeir 3
»garpar«, sem nefndir eru hér að
ofan, voru ræðumenn á hinum »al-
menna sjómannafundi*, en tilheyr-
endur reyndust 12. — Átti þá að
kjósa nefnd manna af þeim sem
mættir voru úr dauða Sjómanna-
félaginu, til þess að gangast fyrir
öðrum fundi, ^n ekki reyndust
nógu margir mættir úr dauða fé-
laginu til þess að hægt væri að
kjósa nefndina, og þó er heild-
salinn úr Reykjavík í Sjómannafé-
laginu, en mun hafa verið sá eini
úr félaginu sem mætti. Sjómenn-
irnir munu vera búnir að fá nóg af
stjórn heildsalans í Reykjavík á fé-
lögum hér norðanlands, og munu
ekki hafa talið að þeir ættu erindi
á fund hans. Einn af tólf.
Skátakennari á að koma hingað
til lands frá Englandi 20. Maí n. k.
— Á hann að leiðbeina íslenskum
skátum í starfi þeirra. — Skátar í
Pórshöfn í Færeyjum hafa boöið sam-
bandi ísl. skáta að senda þangað
skátaflokk til að vera viðstaddur
Ólafsvökuhátíðina á komandi sumr.i
Dr bæ og bygð.
Klemens Guðmundsson bóndi í
Bólstaðahlíð í Húnavatnssýslu er hér
á ferð. Flytur hann erindi í bæjar-
stjórnarsalnum, kl. 4 e. h. á Skírdag,
um Kvekaratrú. Hefir hann kynt sér
þessa grein trúarbragða í Englandi og
ferðast all víða um landið að kynna
stefnu þá. Hann gengst ekki fyrir
stofnun trúarflokka þó hann kynní
stefnu Kvekaranna, En honum mun
vera kært að sem flestir komi til að
hlýða á erindið. — Aðgangur er ó-
keypis. —
Ársskemtun Verklýðsfélags Akureyr-
ar verður haldin í Samkomuhúsinu
annað kvöld. Til skemtunar verður
erindi, upplestur, tvísöngur, gaman-
vísur, sjónleikur og dans. Félags-
menn vitji aðgöngumíða í Kaupfélag
Verkamanna á mergun — mat-
vörudeildin — kl. 1—4 e. h. —
Er þess vænst að félagsmenn sæki
miðana á þessum tíma, svo sem minst
þurfi að afhenda við innganginn.
Séra Sigurður Gíslason flutti erindí
um Talisman-slysið i Samkomuhúsinu
á Miðviku- og Föstudagskvöldið, i
bæði ikiftin fyrir fullu húsi. Síðara
kvöldið las hann einnig upp kvæði
um Krist eftir sig, Einnig kvæði
eftir þessi vestfirsk alþýðuskáld: Lilju
Bjarnadóttur, Böðvar frá Hnífsdal,
Bjarna M. Gíslason, Guðmund Geir-
dal og Áslaugu Gísladóttur. Að öllu
þessu var gerður hinn besti rómur. :
\
Leikfimisfélag Akureyrar (LFA) hefir
fimleikasýningu á annan í Páskum.