Alþýðumaðurinn - 19.09.1933, Blaðsíða 1
ALÞYBUMABDRINN
III. árg.
Akureyri, Þriðjudaginn 19. September 1933.
Út af greininni »Samvinna verka-
manna og bænda« í síðasta blaði
Alþýðum., sér ritstj. »ísl.« ástæðu
til að hrúga upp dálitlu af ósann-
indum og blekkingum, og tekur
þar til fyrirmyndar ritstj. kommún-
istablaðanna. Segir hann að í Al-
þýðumanninum hafi staðið, að í
Danmörku og Svíþjóð séu jafnað-
armenn »við völd* »með stuðningi
bænda.c Petta eru ósannindi hjá
»ísl,«. Alþm. gat þess að jafnaðar-
menn færu með völd í báðum þess-
um löndum. Fyrir stjórnunum lægi
aö vinna á móti kreppunni, Svo
segir:
»í hvorugu landinu eru jaínaðar-
mennirnir í hreinum meirihluta. Peir
þurfa því að njóta stuðnings eins
eða fleiri annara flokka til þess að
koma hinum stórfelldu kreppuráð-
stöfunum gegnum þingin.
Og í báðum þessum löndum hafa
það orðið bœndurnir — fulltrúar
þeirra í þingunum — sem hafa
stutt stjórnirnar að þessu.«
Fyrst »ísl.« vitnar í orð I. Venn-
erström, hefði hann átt að birta
það, sem hann segir um samvinnu
jafnaðarmanna og bænda.
»— Eins og ég sagði í upphafi,
bætir Vennetström við, vann bænda-
flokkurlnn sænski allmikið á við
kosningarnar, en sá flokkur hefir
til skamms tíma verið íhaldssamur
og voru því í upphafi litlar líkur
til þess að við gætum nokkra veru-
lega samvinnu haft við bænda-
flokkinn. En kreppan opnaði augu
bændaíulltrúanna. — Þeir sáu, að
kreppan þjakaði langmest verka-
Iýðnum og smábændunum, þessum
tveim alþýðu-atvinnustéttum þjóð
félagsins. Löggjafarvaldinu bar því
brýnust skylda til þess að rétta
alþýðunni til sjávar og sveita hjálp-
arhönd. Og hagsmunir bæði verka-
manna og bænda fóru einnig sam-
an, ef veí var að gáð. Um 100
þús- sænskra verkamanna stunda
sveitavinnu. Til þess að hægt væri
að bæta kjör þeirra með hærra
kaupi, styttum vinnutíma og betri
húsakynnum, þurfti að stuðla að
því, að bændur fengju hærra verð
fyrir afurðir sínar, en þær voru
fallnar geysilega í verði, eins og
best sést á því að á þrem síðustu
árum hafa sænskir bæi\dur tapað
um 300 milj. kr. á atvinnurekstri
sínum, Og með þessar augljósu
staðreyndir fyrir augum tókst sam-
komulag á milli jafnaðarmanna- og
bændaflokksins um kreppuráðstaf-
anir. En öfgaflokkarnir til beggja
handa, íhaldið og kommúnistar,
börðust á móti, þó kommúnistar
neyddust til að greiða atkvæði
með allmörgum kreppuráðstöfunum
okkar verkalýðnum til handa.«
Og síðar segir Vennerström um
framtíðarútlitið:
»Ef samvinnan helst við bænda-
flokkinn, sem helst eru líkur til, þá
er fullt útlit fyrit aö lagður verði
í sænskum stjórnmálum, varanlegur
samnineagrundvöllur milli verka-
manna og bænda, og með því móti
myndast á nœstu árum þingleg um-
bótastarfsemi í anda fullkomins lýð-
rœðis, til alhliða og víðtœkra um-
bóta á kjörum og þjóðfélagsafstöðu
allrar scmskrar alþýðu, sem eru
verkamennirnir og smábœndurnir.<
Það er ekki til neins fyrir íhalds-
kurfa eins og ritstjóra »ísl.« eða
50 tbl.
N Y J A BI o wmm
Þriðiudagskvöld kl. 9;
Spámaðurinn
Þýsk gamanmynd í 9 þáttum,
leikin af bestu skopleikurum
í’ýskalands.
Miðvikudagskvöíd kl. 9:
Prinin af Arkadíu
]?ysk tal- og söngvamynd f
8 þáttum. — Aðalhlutverkið
leikur hinn ágæti vísna-
söngvari Willy Forst.
samherja hans, kommúnistafíflin,
að flýja til Svíþjóðar eða Dan-
merkur ti! að styðja skemdastörf
sín með þióðinni. Alþýðan í þess-
um iöndum — verkamenn og smá-
bændur — er búin að þreifa á ráð-
stöfunum jafnaðarmannastjórnanna,
enda hafa hinir hægfara jafnaðar-
menn — »kratarnir« — nldrei verið
fastari í sessi þar en nú.
Á Sunnudagsnóttina varð bílslys
inn við brýr. Ók bíll á bróarstólpa
og rúst mölvaðist. í bílnum voru
þrír karlmenn og ein stúlka, auk
bílstjórans. Meiddist fólkið ált, og
sumt alvarlega. Kom það af dans-
leik íraman frá Þverá, og er talið
að það hafi verið ölvað. Réttarhöld-
um út af slysinu mun ekki lokið
enn. —