Alþýðumaðurinn - 07.10.1933, Síða 1
ALÞÝBD M ABURINN
III. árg.
Akureyri, Laugardaginn 7. Oktober 1933.
53. tbl.
>Dagur«, sem út kom 5. þ. m.
líkir því við »hátt framhleypinna
flóna* að »Alþýðum.« skuli víta þá
vérðhækkun á kjöti, sem framkvæmd
var í miðri sláturtíðinni hér. Blaðið
fullyrðir, áð verðhækkunin stafi af
»áreiðanlegri fregn um batnandi
söluhorfur á eriendum markaði«
(leturbr. hér). Þessi »áreiðanlega
fregn« er það sem stjórn K. E. A.
styðst við, þegar hún hækkar kjöt-
verðið, og ýmsir aðrir kjötsalar hér
1 bæ haga sér eítir. En það ein-
lcennilega er, að »áreiðanlega fregn-
in« virðist hafa farið fram hjá flestum
öðrum en stjórn þessa kaupfélags og
þeim, sem óskuðu að geta selt kjöt-
ið hærra verði hér í bæinn, en
áður hafði verið. Þegar »áreiðanlega
fregnin« er flutt austur og vestur í
sveitirnar frá Akureyri, er hún not-
uð til þess að draga fé frá slátur-
húsunum á Húsavík og Sauðárkróki
— sem selja kjöt sitt að mestu á
erlendum markaði — hingað til
Akureyrar til þess að selja það
innanlands, með hækkuðu verði, og
þegar bændur eru spurðir hverju
það sæti, að þeir fari ekki með fé
sitt á sláturhúsin á Húsavík og
Sauðárkrók, svara þeir því, að þeir
fái hærra verð fyrir kjötið hér en
þar. Á báðum þessum stöðum er
þó írystihús, og öll sama afstaða til
erlenda »enska« markaðarins eins
og hér. Skagfirðingar eru meira að
segja ekki trúaðri á áreiðanlegu
fregnina uni batnandi söluhorfur á
erlendum markaði en það, að þeir
hafa selt kjöt sitt hér í bænum 10
aurum kg. neðan við verð K.E.A.
í stað þess að selja það til útlanda.
»Háttur framhleypinna flóna« kem-
ur jafnt fram í verknaði sem í orði
eða blaðagrein. Haustið 1930 seldi
stjórn K.E.A. kjöt á kr. 1,15 kg. í
bæinn, en bændur fengu ekki nema
90 aura í reikninga sína fyrir kílóið
það ár. Að sjálfsögðu hefir þetta
verð verið bt’ggt á þekkingu stjórn-
arinnar á útlendum markaði og henn-
ar góðu »söluhorfum«, en þar sem
þetta er ekkert einsdæmi um ó-
skeikulleik hennar, verður henni
sýnd h’llsta tortryggni í þessu máli,
þó »Dagur« reyni að slá um sig
með »áreiðanlegum fregnum« frá
stjórninni.
Gerir ekkert til.
Allir muna hve báðir hinir ráð-
andi flokkar þingsins voru elsku-
lega sammála um það, að þing-
kosningar 1. vætrardag væru var-
hugaverðar vegna þess, að þá gæti
vont veður hamlað kjörsókn í sveit-
um. Einkum voru það þó Fram-
sóknarmenn, sem héldu þessu mjög
á lofti, og töldu kaupstaðavaldinu
gefið allt of gott tækifæri til að ná
yfirráðum á þjóðarbúinu. Vegna
þessa var 1. vetrardagur ómögu-
legur kosningadagur.
En stjórn þessara stjórnmálaflokka
gat notað 1. vetrardag til annars.
Hann var fullgóður til að láta þá
fara fram þjóðaratkvæði um það,
hvort eigi að hleypa sterku vínun-
um inn í landið aftur, eða ekki.
í fyrra tilfellinu var um það að
tefla, hver flokkanna, íhaldið eða
Framsókn, ætti að fara með völd
áfram, til lítils gagns fyrir land og
þjóð. í síðara tilfellinu var um að
ræða mennningarmál alþýðu. Frá
sjónarmiði fyrnefndra flokka skiptir
það engu hvernig fer með slík mál,
og vald kaupstaðanna ekki hræði-
legt, því það hefir engin áhrif á
stjórnina, hvort menn drekka sig
frávita í sterkum eða léttum vínum.
Það er opinbert levndarmál, að
sambræðslustjórnin óskar eftir af-
námi þeirra innflutningshafta, sem
nú gilda hvað vínin áhrærir. Hún
býst við meiri drykkjuskap, meiri
tollum í ríkissjóðinn. Meiri ómenn-
ingu landsmanna. Alt þetta stvrkir
auðvaldið í sessi. Þessvegna er at-
kvæðagreiðslan látin fara fram á
þeim tíma, sem stjórnin vouar að
illveður hamli kjörsókn í hinum
dreyfðu bygðum landsins.
Þetta er enn ein árásin á þær
varnarráðstafanir, sem íslensk al-
þýða hefir gert gegn erlendri ó-
menningu, og fjárráni á hendur
þjóðarinnar. Henni ber að svara
með óskiftri kjörsókn allra þeirra,
sem unna íslenskum manndómi og
heiðri.
Komandiútvarpsvika verður að mestu
helgúð atkvæðagreiðslunni um bann-
lögin, er fram á að fara 21. þ,m. Á
Þriðjudagskvöldið, kl. 20,30 flytur
Ragnar E. Kvaran fyrirlestur fyrir and-
banninga um bannið í Bandaríkjunum.
Á Fimtudagskvöldið kl. 20,30 svarar
Felix Ouðmundsson fyrir hönd bann-
tnanna. Á Föstudags- og Laugardags-
kvöld kl. 21,30 fara svo fram kapp-
ræður milli bannmanna og andbann.
inga, en hverjir verða þar ræðumenn
er ekki fullfrétt um enþá.
K. A. heldur hlutaveltu í Samkomu-
húsinu á morgun.
Sláturtíð er mí lokið að heita má*