Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 11.02.1936, Side 1

Alþýðumaðurinn - 11.02.1936, Side 1
ALÞÝBDMABURINN VI. árg. Akureyri, f’riðjudaginn 11. Febrúar 1936. 6 tbl. NYJA-BIO AOalfundur Verklýðsfélags Akureyrar var haldinn á Sunnudaginn var. — Fundurinn var fjölsóttur — 97 manns — og hinn fjörugasti. — Fjórir verkamenn gengu í félagið. Samkv. skýrslu formanns, hélt fé- lagið 10 fundi á árinu, og auk þess árshátíð og F Maí samkomur. — Kvennadeildin hélt sex fundi og basarsamkomu. Á síðasta aðal- fundi voru félagar 214 en nú 231. — Kauptaxti var hækkaður á nokkr- um liðum á árinu. Félagið kom upp síldarsöltun, sem gekk vel, samanborið við annað af því tagi hér norðanlands. Félagið safnaði í Björgunarskútusjóð um 950 kr. Auk þessa beitti það sér fyrir aukn- um atvinnubótum í bænum. — Skoraði á bæjarstjórn að koma upp togaraútgerð í bænum. Skoraði einnig á Alþingi og ríkisstjórn að láta byggja síldarverksmiðju á Ak- ureyri, eða kaupa Krossanesverk- smiðjuna. — Pá beitti félagið sér og fyrir því að bærinn styrkti vetr- arútgerð skipa hér úr bænum fyrir Suðurlandi, og eftir kröfu þess •fyrirskipaöi alvinnumálaráðherra að sett skyldi á stofn Vinnumiðlunar- skrifstofa sú, sem nú er nýtekin til starfa hér f bænum. — Sjóður fé- lagsins er nú 400 krónur og Sjúkrasjóður 1343 krónur. Úr hon- um voru veittar 373 krónur á árinu. — Einnig er í vörslum félagsins Björgunarskútusjóðurinn, sem félag- ið hefir safnað, og er nú kr. 1830,83- í stjórn voru kosnir: Erlingur Friðjónsson, form. í ehlj. Ólafur Magnússon, rit. m. 70 atkv. Svanlaugur Jónasson.gjaldk. í ehlj. Haraldur Porvaldsson, í ehlj. Helga Jónsdóttir, í ehlj. I varastjórn: Halldór Friðjónsson, Marteinn Sigurðsson, Sigurður Austmar, Jón Vopni Jónsson, Aðalsteinn Stefánsson, allir í ehlj. Endurskoðendur voru endurkosnir: Helgi Kolbeinsson, Jón Austfjörð, og til vara Benedikt Jóhannsson. í dómnefnd voru endurkosnir: Páll Magnússon, Jón Austfjörð, Halldór Friðjónsson, Sigurður Austmar og Magnús Sigurbjörnsson. Til vara: Haraldur Þorvaldsson, Aðalsteinn Bjamason, Helgi Tryggvason, Jón Friðlaugsson og Guðm, Andrésson í afmælisnefnd voru kosin eftir till. stjórnarinnar: Helga Jónsdóttir, Haraldur Þorvaldsson, Halldór Friðjónsson, Aðalbjörn Austmar og Marteinn Sigurðsson. Verður afmælisfagnaðurinn hald- inn um næstu helgi, eins og skýrt er frá á öðrum stað í blaðinu. Form. kvennadeildarinnar skýrði frá, að í næsta mánuði efndi deild- in til basars og kaffisölu til ágóða Miðvikudagskvöld kl. 9: (REBELLEN) Tal- og hljómmynd í 12 þáttum Aöalhlutverkið leikur: Louis Trenker. Myndin er bönnuð börnum. fyrir Björgunarskútusjóðinn, með sama sniði og í fyrra, og sem þá hlaut mikið lof og gaf mikinn ágóða. Síðast á fundinum urðu lítilshátt- ar umræður í tilefni af lygum og rógi »Verkam * um forrnann félags- ins, í sambandi við 30 ára sögu Verkamannafélags Akureyrar. Sagð- ist einn fundarmaður verða að Iíta svo á, að hið einróma traust og fylgi, sem nýafstaðin stjórnarkosn- ing sýndi stjórnmni, væri verðugt svar félagsms við áburði kommúnist- anna á formanninn. Tók fundurinn undir það með öflugu lófatakl. Á síðasta bæjarstjórnarfundi, voru samkvæmt hinum nj^ju framfærslu- lögum, kosnir í framfærslunefnd, Halldór Friðjónsson, Jóhannes ]ónas- son, Steingr. Aðalsteinsson, Bene- dikt Steingrímsson og Sveinn Bjarna- son. — Pá var skólanefnd Gagn- fræðaskólans kosin upp. — Skipa hana nú: Axel Kristjánsson, Tómas Björnsson, Stefán Árnason og Bryn- leifur Tobiasson. — Formaöur er skipaður af fræðslumálastjóra, Hall- dór Friðjónsson.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.