Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 11.07.1944, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 11.07.1944, Síða 1
ÚTFÖR Guðmundar Friðjóns- sonar fór fram á Fimmtudaginn var. Nokkuð á sjötta hundrað manns var viðstatt útförina. Var það víðs- vegar að úr sýslunni, einnig af Ak- ureyri og úr Reykjavík. Heima flutti séra Friðrik Frið- xiksson húskveðju og Júlíus Haf- stein sýslumaður kveðjuræðu. Þá . fluttu kvæði, Steingrímur Bald- vinsson bóndi að Nesi í Aðaldal, Heiðrekur Guðmundsson og Arn- fríður Sigurgeirsdóttir ekkja á Skútustöðum. Atta synir Guðmundar báru kistuna að heiman. Jarðað var að Nesi í Aðaldal. Ungir bændur hófu kistuna í kirkju en eldri bændur úr kirkju til grafar. í kirkju fluttu ræður. Karl Kristjánsson kaupfélagsstjóri á Húsávík og séra Þorgrímur Sig- urðsson. Kvæði fluttu, Sigurður Jónsson skáld á Arnarvatni, Þór- oddur Guðmundsson óg Konráð Vilhjálmsson skáld. Kirkjukór Húsavíkur annaðist sönginn af mikilli prýði bæði heima og í kirkjunni. Kransar bárust frá Ríkisstjórn Islands og Menntaskóla Akureyr- ar, skejUi frá Rithöfundafélagi Is- lands, Sambandi íslenskra kven- félaga og Sambandi þingeyskra kvenfélaga og fjölmorgum ein- staklingum. Heima á Sandi var marinfjöld- anum veitt af mikiRi rausn. 011 var jarðarförin hin virðuleg- asta. FRA STORSTUKU- ÞINGINU. í síðasta blaði var nokkuð sagt frá Stórstúkuþinginu, en engra á- lyktana þess getið. Hér eru nokkrar þeirra: 1. Þar sem séð er og sannan- legt, að áfengisneysla og áfeng- iskaup landsmanna fara stöðugt vaxandi, þrátt fyrir alla bind- indisstarfsemi margra góðra krafta í landinu, á meðan sala og afgreiðsla á áfengi er eins og nú á sér stað, þá felur stórstúku- þirígið framkvæmdanefnd sinni að vinna kappsamlega að því, sem allra fyrst, að bæjarstjórn- ir landsins fari að dæmi bæjar- stjórna Reykjavíkur og ísafjarð- ar og samþykki áskoranir til ríkisstjórnar og Alþingis um al- gera lokun áfengisútsalanna. 2. Stórstúkuþingið felur framkvæmdanefnd sinni að halda áfram samstarfi við rík-. isstjórnina um það, að lögin um héraðabönn komi til fram- kvæmda sem allra fyrst. Enn- fremur sjái framkvæmdanefnd- in um, að á öllum stjórnmála- fundum, þar sem tillögúr eru samþykktar til Alþingis, verði borin fram tillaga um að skora á ríkisstjórnina, að láta lögin um héraðabönn koma þegar til framkvæmda. 3. Þar sem það er á allra vit- orði, að allmikil brögð eru að leynisölu áfengis og löggæslan hvergi nærri nægilega vel fram- kvæmd, þá felur Stórstúkuþing- ið framkvæmdanefnd sinni, að vinná að því, að hert verði sem allra best á löggæslunni, svo að tekið verði fyrir þetta vandræða ástand. Einnig skoraði þingið á fram- kvæmdanefnd Stórstúkunnar að vinna ötullega að því að fá því framgengt að drykkjumenn séu ekki látnir sitja í ábyrgðarmiklum stöðum; og ennfremur beindi þing- ið þeim tilmælum til áfengismála- ráðunauts ríkisins að vinna að því að fá forstöðumenn skóla og kenn- ara til að hefja Ijindindisfræðslu £ skólum, eins og lög standa tií. EMIL TIIORODDSEN tónskáld lést í Reykjavík að- fáranótt 7. þ. m. Emil var soriur hinna kunnu hjóna, Þórðar læknis Thoroddsen. og Onnu Pétursdóttur Guðjohn- sen. Hann var 46 ára að aldri, er hann lést, og var löngu þjóðkunn- ur maður fyrir tónlistarstörf sín. Dánardœgur. 2. þ. m. aridaðist að heimili dóttur sinnar Og tengdasonar, Stx-andgötu 29, frú Guðný Jónas- dóttif frá Kjárna, ekkja Einars Metúsalemssonar kaupmanns. 3ö. f. m. andaðist á sjúkrahúsinu Sigurbjörg Jónsdóttir —- Sigur- björg í Syðstahúsinu, éins og' hún var kölluð af bæjarbúum r-r bá- öldruð kona. Tekið á móti gjöfurh til naúðlíðandi í)aná í Hann- yrðavérsÍiiri Ragríbéiðár 0. Bjoriis- son, Hafnarstræti 103.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.