Alþýðumaðurinn - 17.04.1945, Síða 3
ALÞÝDUMAf)URT,VTN
3
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Árni Jóhannsson aðalgjaldkeri
andaðist 12. þ. m.
Jarðarförin hefst með bæn frá heimili hins látna, Þingvalla-
stræti 1, þriðjudaginn 24. þ. m., kl. 1.30 e. h.
NIKÓLÍNA SÖLVADÓTTIR.
ERNA ÁRNADÓTTIR. BALDUR GUÐJÓNSSON.
ANNA ÁRNADÓTTIR. KRISTJÁN VALDIMARSSON.
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR. KÁRI JOHANSEN
og BARNABÖRN.
Maðurinn minn,
Jón Guðmundsson byggingameistari
verður jarðsunginn Laugardaginn 21. þ. m. Athöfnin hefst
með húskveðju frá heimili okkar Brekkugötu 27, kl. 1 e. h.
Eftir ósk hins látna eru blóm afbeðin.
Maria Hafliðadóttir.
við ýms framfaramál bæjarins, og
var þó hlédrægur um skör fram.
Þótti Jón hinn mætasti maður,
hvar sem hann kom fram. Hann
var giftur Maríu Hafliðadóttur,
fyrrum ljósmóður. Lifir hún mann
sinn, ásamt syni og dóttur, sem
bæði eru gift hér í bænum.
Elín Halldörsdóttir
ekkja, Grundargötu 4 andaðist að
heimili dóttur sinnar Indíönu s. 1.
Sunnudagsmorgun, öldruð kona,
vel kynnt.
Hinar dttalegu
heimasætur
Flokkastríð stendur nú yfir í
„Kron“ -í Reykjavík. Verið er að
kjósa fulltrúa á aðalfund félags-
ins, og ætla kommúnistar sér að ná
undirtökunum í félaginu upp úr
næsta aðalfundi og gera „Kron að
fjárhagslegri og pólitískri mjólkur-
kú kommúnistaflokksins. Beita
þeir í þessari sókn hinum alþekktu
kommúnistaklækjum og uppvöðslu
hætti, og stilla alls staðar upp
hreinræktuðum kommúnistum.
en það hefir áður verið venja að
stilla upp og kjósa fulltrúa úr öll-
um stjórnmálaflokkum með tilliti
til styrkleika hvers flokks í hverri
sérstakri deild.
„Þjóðviljinn“ skýrir þessar að-
farir, sem einn þáttinn í „samein-
ingar“-starfi kommúnista, og her
það upp á hina flokkana að þeir
séu að kljúfa félagið!!
Ritstj. „Verkam.“ er nýkominn
heim frá aðal-bækistöðvunum, en
virðist hafa tapað af línunni á leið-
inni heim. Hann viðurkennir
að vísu að þetta sé ein tegund „sam
einingarinnar", en sem „vellukkað
áhlaup“, eins og stendur í þýsku
stríðsfréttunum, vegna þess að að-
alfundir S. í. S. undanfarin ár hafa
ekki viljað fallast á þá sameining-
artillögu kommúnista að kljúfa S.
í. S. í tvö sambönd. Þó virðist þetta
ekki vera aðalatriðið hjá „Verka-
m.“ heldur hið óttalega tilfelli,
sem á að hafa átt sér stað í byrjun
kosninganna í „Kron“. Þá hafa átt
að ganga inn í „Kron“ tvær heima-
sætur. — Hugsið ykkur! Tvær
heimasætur, sem líka eiga heima í
„húsi eins af ráðamönnum S.I.S.“.
Og þessar „tvær heimasætur“ tóku
bara heila deild af kommúnistum!
Þeir fengu bara ekki eitt einasta
kvikindi á sinn öngul! Og svo voru
þær „kornungar“ í ofanálag, og
engar minnstu líkur fyrir að þær
dæju á næstunni! Þá greip skelf-
ingin kommúnistaforustuna. Næsta
dag á eftir rak hvert neyðarópið
annað frá aðalbækistöðvum flokks-
ins, gegnum útvarpið. Allar sellur
— allir forystumenn og trúnaðar-
vinir voru samstundis kallaðir á
vettvang, og í lok útvarpsskrárinn-
ar um kvöldið, rétt á undan þjóð-
söngnum, kvað við síðasta neyðar-
ópið, eins og frá skipi í sjávar-
háska, — hver einasti kommúnisti
í allri Reykjavík var kallaður til
herstöðvanna á Skólavörðustíg 19
fyrir kl. 12 á miðnœtti!
Þær geta trauðla verið nokkrar
meðalmanneskjur þessar „tvær
heimasætur“.
Verzlnnarsamninflur
Tið Svfþjúb.
Samkv. tilkynningu frá ríkis-
stjórninni 10. þ. m. voru 7. þ. m.
undirritaðir í Stokkhólmi verslun-
arsamningar milli íslands og Sví-
þjóðar, sem gilda til Marsloka
1946. Er þar gert ráð fyrir að ís-
lendingar selji Svíum 125 þús.
tunnur af síld á þessum tíma, en á
hinn bóginn veiti Svíþjóð útflutn-
ingsleyfi til íslands, meðal annars
á eftirtöldum vörum: Iðnaðarvör-
um ýmiskonar, svo sem vörum til
uppsetningar á rafstöðvum, efni-
vörum til vitabygginga, rafvélum
og öðrum ' rafmagnshlutum, síma-
efni, bátavélum, landbúnaðarvél-
um, skilvindum, kæliskápum, papp
ír og pappa, eldspítum, verkfær-
um, trjávörum og timburhúsum.
Allt þetta er auðvitað miðað við að
samgöngur komist á á milli landa,
og t. d. er síldarsalan háð þeim
möguleika að hægt verði að flytja
inn tunnur til síldarsöltunar í tæka
tíð.
Sendisvein
vantar í
A K R A