Alþýðumaðurinn - 01.05.1945, Blaðsíða 3
•3
-Þriðjudagnin 1. Maí.
ALÞÝÐUMAÐURINN
nýja mögul. til iðnaðar, mögu-
leika, sem að vísu eru flestir ó-
notaðir enn þá, en liins vegar má
búast við, að framtakssamir
menn fari að hagnýta, og skipt-
ir þá miklu, hve skilningsgott
bæjarfélagið verður í þeim mál-
um. Enn má benda á það, að
ekki virðist nema sjálfsagt, að
Itæjarbúar standi einliuga um
það, að áburðarverksmiðja sú,
sem rætt hefir verið um, að rík-
ið reisi, verði hér sett á Akur-
eyri, komi það í ljós við ítarlega
rannsókn, að rekstur hennar
verði hér hagkvæmastur. Um
tunnuverksmiðjumálið hefir þeg
ar verið ítarlega rætt hér 'í blað-
inu, og er því ekki ástæða til að
íjölyrða um það að sinni.
Loks skal hér lítillega vikið
að smábátaútgerðinni og aðbúð
hennar. Þeim mun alltaf fækka,
sem leggja þessa atvinnu fyrir
sig, og mun það nokkuð stafa af
því, að hún sé ekki að sama
skapi arðsöm, sem hún er mas-
söm, en þó meir af hinu, að bæj-
arfélagið sýnir þessari atvinnu-
grein litla ræktarsemi. Það hefir
gert þá menn, sem hana stunda
að hálfgerðum utangarðsmönn-
um, sem hvergi mega í friði vera
með útbúnað sinn. Því verður
heldur ekki neitað, að skúrar
þeir, sem þessari útgerð fylgja,
eru oft lítil bæjarprýði, en oft
stafar það af því, að ekkert er
Framhald á 4. síðu.
Auglýsing
um skoðun bifreiða og bifhjóla í Eyjafjarð-
arsýslu og Akureyrarkaupstað.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að hin ár-
lega skoðun bifreiða og bifhjóla fer fram á þessu ári, s«n
hér segir:
Hinn 8. maí mæti A- 1-A- 30
- 9.
- 11.
- 14.
- 15.
- 16..
r 17-,
- 18.
- -22.
- 23.
- 24.
- 25.
- 28,
A- 31-A- 60
A- 61-A- 90
A- 91-A-120
A-121-A-150
A-151-A-180
A-181-A-210
A-211-A-250
A-251-A-280
A-281-A-310
A-311-A-340
A-341-A-370
A-371-A-390
Ber öllum bifreiða- og bifhjólaeigendum að mæta með bif-
reiðar sxnar og biflijól þessa tilteknu daga, við lögregluvarð-
I stöðina, frá kl. 9-—12 árdegis og kl. 1—5 síðdegis.
Þeir, sem eiga íarþegábyrgi á vörubifreiðar, skulu koma
með þau til skoðunar ásamt bifreiðum sínum.
Bifreiðaskattur fyrir skattárið frá 1. apríl 1944 til 1. april
1945, svo og skoðunargjald og iðgjöld fyrir vátryggingu öku-
manns verður innheimt um leið og skoðun fer fram.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir sér-
hverja bifreið sé í gildi, svo og ökuskírteini hvers bifreiða-
stjóra.
Vanræki einhver að koma með bifreið sína eða bifhjól til
I skoðunar og tilkynni éigi gild forföll, verður hann látinn sæta
ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum.
. Bæjarfógetinn á Akureyri, 18. apríl,1945.
Friðj ón Skarphéðinsson
t
Öllum þeixn mörgu einstaklingum og félögum, er á marg-
víslegan hátt heiðruðu minningu okkar elskulega eiginmanns,
föður, bróður, tengdaföður og afa,
ÁRNA JÓHANNSSONAR,
GJALDKERA,
og vottuðu okkur samúð með skeytuin, blómum og minningar-
gjöfum og á margvíslegan annan hátt, færum við hjartans
þakkir.
Guð blessi ykkur öll!
NIKÓLÍNA SÖLVADÓTTIR.
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR. KÁRI JOIIANSEN.
ANNA ÁRNADÓTTIR. KRISTJÁN VALDIMARSSON.
ERNA ÁRNADÓTTIR. BALDUR GUÐJÓNSSON.
MARÍA ÁRNADÓTTIR. OG BARNABÖRN.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við and-
lát og jarðarför
JÓNS GUÐMUNDSSONAR, byggingameistara.
Aðstandendur.
Hjai’tans þakkir til allra þeii’ra, sexn auðsýndu samúð
við andlát og jarðarför föður okkar FRIÐRIKS pINARSSON-
AR, og heiðruðu minningu hans á annan hátt.
Jórunn S. Friðriksdóttir.
Sigurbjörn Friðriksson.
Það tilkynnist hér með, að maðurinn minn, Bjarni Pálsson,
andaðist að heimili okkar, aðfaranótt Fimtudagsins 26. þ. m.
Jarðarförin er ákveðin Fimtudaginn 3. Maí n. k. og hefst með
bæn að heimilinu, Krabbastíg 2, kl. 1 e. h.
Sigríður Helgadóttir.
Aðalfundur
Kaupfélags Verkamanna, Akureyri
verður haldinn í Verslunarmannaliúsinu 6.
Maí n. k. og hefst klukkan 1 síðdegis.
DAGSKRÁ:
|
1. Fundarsetning
2. Rannsókn kjörbréfa
3. Skýrsla stjórnarinnar
4. Skýrsla framkvæmdarstjóra
5. Reikningar félagsins
6. Skifting ársarðsins
7. Lagabreytingar
8. Framtíðarstarfsemi félagsinsi
9. Kosningar.
10. Önnur félagsmál.
Akureyri, 27. Apríl 1945.
Félagsstjórnin.