Alþýðumaðurinn - 20.11.1945, Blaðsíða 1
Kjarnorknmálin
Samkomulag í Washington
Helstu tíðindi síðustú viku
eru viðræður forystumanna eng-
ilsaxnesku þjóðanna, Trumans,
Attlees og Maceuzie Kings, um
kjarnorkumálin. — Síðastliðið
Finnntudagskvöld var lilkynnt í
Washington, að samkomulag
hefði orðið um lausn þessa
/ 1
mikla vandamáls. Er samkomu-
lag þetta í fullu samræmi við
það, sem fram hafði komið í
ræðum ráðamanna í þessum
löndum og skýrt var frá í síðasta
blaði. Aðalalriði samkomulags-
ins eru þau, að alþjóðanefnd
verði sett á stofn til þess að hafa
umsjón með frumeindarrann-
sóknum og hvernig orka frum-
eindanna verði helst hagnýtt. —
Stejna skal að því, að bamiað
verði, að kjarnorkan sé noluð í
styrjöldum, lieldur verði hún að-
eins hagnýtt til j)ess að auka hag
sœld Jjjóðanna og til léttis við
friðsamleg störf.
Að svo komnu máli verður
engin vitneskja látin öðrum þjóð
um í té um það, hvernig kjarn-
orkusprengjan er framleidd. —
Sömuleiðis verður fyrst í stað
alger leynd yfir því, hvernig
hagnýta má orkuna til iðnaðar,
enda ekki talinn mikill munur á
þessu. Síðar er þó talið, að slík
vitneskja verði veitt, en fyrst
verður að tryggja, að engin þjóð
hyggist nota kjarnorkuvopn til
árásar á aðrar þjóðir.
Um sömu inundir og fréttir um
þetta samkomulag, hefir sænsk-
ur vísindamaður skýrt frá því,
að Svíar kunni að framleiða
kjarnorkusprengjur og aðferð
þeirra standi á engan hált að
baki þeirri aðferð, er Banda-
ríkjamenn nota. Segir í sömu
fregn, að framleiðsla kjarnorku-
sprengna sé ekki framar neitt
leyndarmál. Og nokkru síðar
kom sú.frétt, að rússneskir vís-
indamenn telji sig geta framleitt
kjarnorkusprengjur.
Ef þessar fréttir reynast sann-
ar, virðist samkomulagið í Was-
hington harla lítils virði. Vanda-
málið, sem uppgötvun kjarnork-
unnar hefir í för með sér, er á-
reiðanlega mesta vandamálið,
sem nú er á döfinni. Sem dæmi
þess, hve ægilegt vopn kjarnorku
sprengjan er, má geta þess, að
einn þingmaður í Bandaríkjun-
um lagði þá spurningu fyrir dr.
Oppenheimer, einn þeirra vís-
indamanna, er starfaði"að kjarn-
orkurannsóknum á styrjaldarár-
unum, hvort satt væri, að hægt
væri að drepa 40 milljónir Ame-
ríkumanna í einni kjarnorku-
sprengjuárás. „Eg er hræddur
um það“, sagði dr. Oppenhei-
mer.
æ.
Frá AlþýðuflokkS'
félaginu
Alþýðuflokksfélag Akureyrar
hélt fund sl. Miðvikudagskvöld.
Auk inntöku nýrra félaga og
skipun starfsnefnda, var stefnú-
skrá Alþýðuflokksins í bæjar-
málum við íliönd farandi bæjar-
stjórnarkosningar, lögð fram,
rædd og samþykkt.
Er stefuuskráin birt á annari
síðu blaðsins í dag. Er hlaðið
þess fullvisst að bæjarbúar muni
lesa stefnuskrána með athygli—
og fylkja sér um hana, ef ekki á
að ríkja áfram sama ófremdar-
ástandið í bæjarmálum, einkum
atvinnumálunum og verið hefir.
Léoharður
íógeti
hefir nú verið sýndur í fjögur
skipti á 6 dögum. Aðsókn var
ekki mikil að tveim fyrstu sýn-
ingunum, en troðfullt h'ús á báð-
um sýningunum nú um helgina.
Leikurinn fær góða dóma yf-
irleitt. Búningar skrautlegir og
leiksviðsúthúnaður ágætur. —
Vegna mistaka hefir leikhúsgest-
ur Alþýðumannsins ekki getað
séð leikinn ennþá. Dómup um
hann verður því að bíða næsta
blaðs. En ekki er að efa að að-
sókn að leiknum fer vaxandi eft-
ir því sem sýningum fjölgar.
Alþýðuvikan
Alþýðuflokksfélag Akureyrar efnir til sérstakrar alþýðu-
viku dagana 20.—25. þ. m. Hefst hún í kvöld — Þriðjudag
20. þ. m. með frœðslu- og skemmtikvöldi að Hótel Norður-
land, kl. 9 e. h. Síðan öll kvöld vinkuna út.
\
Til fróðleiks og skemmtunar verða á þessum kvöldum
flutt ávörp og stutt erindi, upplestrar, söngur, kvikmyndir
o. jl. Samkomugestir geta fengið keyptar veitingar og neytt
þeina meðan á skemmtun stendur. Dagskrá livers dags
verður auglýst á götunum og í útvarpinu.
Aðgöngumiðar að öllum skemmtununum eru enn til sölu
í Kaupfélagi Verkamanna og kosla kr. 10.00. Einnig verður
seldur aðgangur að lwerju sérstöku kvöldi meðan húsrúm
leyfir, og kostar kr. 5.00.
Akureyringar! Sækið þessar einstæðu skemmt-
anir, ykkur til fróðleiks og skemmtunar! Fullt
hús hvert kvöld er markið.
Forstöðunefndin.
--------------------
Fréttatilkynning
frá ríkisstjórninni
11. Nóv. 1945.
Almennar
trygjingar
heitir bók, sem nýkomin er úl
á vegum félagsmálaráðuneytis-
ins. Er hún 350 bls. í stóru broti
og liefir að flytja margskonar
fróðleik um almannatryggingar
hér á landi og víðar. Bókin er
samin að tilhlutun félagsmála-
ráðuneytisins og hafa þeir Jón
Blöndal hagfræðingur og Jó-
hann Sæniundsson, trygginga-
yfirlæknir starfað að þessum mál
um alllengi. Meginþættirnir eru
um almannatryggingar, heilsu-
gæslu og atvinnuleysismál. —
Fylgja mjög m'erkilegar tillögur
í öllum þessum málum. Annars
er mikill hluti bókarinnar skýrsl
ur og töflur, þurrar aflestrar, en
fróðlegar engu að síður.
Er bókin líka sérstaklega ætl-
uð starfsmönnum þeim, er þessi
mál heyra undir, stjórnendum
bæja og sveita, þingmönnum og
öðrum þeim, sem sérstaklega
þurfa um tryggingamál að fjalla
En ekki fer heldur hjá því, að
margir lesi hana sér’til fróðleiks
og skilningsauka á þessu einu
mesta vandamáli hverrar þjóð-
ar. —
í danska blaðinu Faaborg
Folketidende birtist'nýlega rit-
stjómargrein um íslensk handrit
í dönskum söfnum. Er þess get-
ið í greininni, liver ánægja Dön-
um liafi orðið að því að fá Is-
ted-ljónið, frægt minnismerki,
aftur í sínar heudur, en það
höfðu Þjóðverjar hernumið ár-
ið 1864. í þessu sambandi er
vakin á því athygli, að mörg
handrit jslenskra fornrita séu í
konunglega bókasafnimi í Kaup-
mannahöfn, en þangað liafi þau
komist, meðan ísland laut Dan-
mörku. Telur blaðið rétt að
framselja Islendingum handrit-
in til þess að sýna þeim að Dan-
ir vilji varðveita samúð og menn
ingarfélag með íslendingum,
þrátt fyrir skilnaðinn. Eigi tel-
ur blaðið þurfa að óttast að ís-
lendipgar gæti handritanna síð-
ur en Danir, heldur þvert á móti.
Kveður blaðið framsal handrit-
anna munu verða frægt dæmi
um vinsamleg samskipti þjóða á
milli, einkum ef Danir eigi sjálf-
ir að því frumkvæði.