Alþýðumaðurinn - 19.03.1946, Side 4
4
ALÞYÐUMAÐURINN Þriðjudaginn 19. Mars 1946
Innilegt þakklæti voltum við öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð við íráfall
Árna Friðrikssonar frá Skáldalæk.
Kona, börn og tengdabörn.
i
IByggingameistarar 1
I . |
Akureyrarbær vill fastráða tvo pygginga- |
meistara, einn trésmið og einn múrara, til |
þess að standa fyrir byggingaframkvæmdum |
| bæjarins og stofnana hans.
|| . , . ||
y Umsóknir ásamt kaupkröfum sendist á skrifstofu bæjar- "
|| stjóra fyrir 19. þ. m. j|
1
y
m
BÆJARSTJORI. I
m
H é ð a n
og
þaðan____________________
Árshátíð Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar verður
haldin í Samkomuhúsinu Laug-
ardaginn 23. þ. m. (næsta Laug-
ardag). Aðgöngumiðar verða
seldir á skrifstofu verklýðsfélag-
anna á Miðvikudag, Fimmtudag
og Föstudag í þessari viku og
kosta 15 krónur.
★
Yfir 50 manns eru nú í vinnu
hjá hænum. Grjótmölun er nú
að hefjast. Unnið er að lagningu
vegarins inn með brekkunum.
Holræsagröftur er hafinn efst í
bænum og enn eru nokkrir menn
að vinnu hér og þar við lagfær-
ingar vega o. fl. Mun það fátítt
að svona margir menn hafi ver-
ið í vinnu hjá hænum á þessum
tíma árs.
★
Ágætur fiskafli er nú í flest-
um verstöðvum landsins. Skip
skortir tilfinnanlega til að flytja
aflann á erlendan markað. Skip,
sem sigla út með afla sinn, selja
vel. Nýlega hafa verið gjörðir
sanmingar um sölu á saltfiski
til Grikklands og hraðfrystum
fiski til Frakklands. í háðum
tilfellum er urn gott verð að
ræða.
¥
Vísitala framfærslukostnaðar
fyrir þenna mánuð er talin sú
sama og undanfarna mánuði
285 stig.
*
Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1
heldur fund í Skjaldborg þriðjud.
19. þ. m. kl. 8,30 e.h. — Venjuleg
fundarstörf. — Inntaka nýrra fje-
laga. — Leikþáttur. — Upplestur o.
fl. — Fjelagar, fjölmennið og hafið
með ykkur nýja fjelaga!
★
Um helgina andaðist hér í
hænum frú Valgerður Helga-
dóttir, kona Guðm. Guðmunds-
sonar netagerðarmanns, Norður-
götu 2. 75 ára gömul.
LÉREFTSTUSKUR
Kaupum við hœsta verði.
Prentsmiðja
Bjöms Jónssonar h. f.
Happið.
Ilið vinsæla leikrit Páls J.
Árdals, Ilappið, var mi nýskeð
leikið af nemendum Gagnfræða-
skólans. Frk. Freyja Antonsdótt-
ir, Iiannyrðakennari skólans,
sagði nemendum til, én enginn
þeirra mun áður hafa á leiksvið
komið. Leikendurnir voru þess-
ir:
Hreppstjórinn: Valdemar Osk
arsson.
Valgerður: Elsa Jónsdóttir.
Gunnar: Magnús Björnsson.
Gríma: Freyja Antonsdóttir.
Helgi: Eiríkur Eyfjörð.
Stína: Sigrún Lárusdóttir.
Sigga: Edda Seheving.
Þegar tekið er lillil til þess,
að leikendur voru viðvaningar,
verður ekki annað sagt en sýn-
ing leikritsins hafi tekist mjög
vel. Sérstaklega fannst mér
skennntilegur og athyglisverður
ldjkur þeirra Eddu Scheving,
Sigrúnar Lárusdóttur og Eiríks
Eyfjörðs.
Þakka ég nemendum skólans
skenuntunina og þann áhuga fyr
ir leiklistinni, og þann dugnað
og erfiði er þeir hafa sýnt með
því að taka hið gamla og góða
leikrit Páls J. Árdals til með-
ferðar og skila því eins vel og
raun bar vitni.
Ahorfandi.
Bæjarstjórnarkosningarnar.
sem fóru fram í Danmörku fyrra
Sunnudag hafa sína sögu að
segja. Aðal einkenni þeirra
Voru þau hve illa þær voru yfir-
leitt sóttar. Stór hluti fólksins
virðist andlega lamaður eftir
hernámið — ekki vera kominn í
samt lag aftur.
Kosningarnar sýna einnig
þau áhrif flokkanna, að vinstri
flokkurinn, sem nú fer með
stjórn í landinu, vinnur heldur
á. íhaldsmenn og róttækir tapa.
Alþýðuflo'kkurinn heldur sínu
og þó tæplega það, en fylgið
hrynur af kommúnistum — allt
miðað við kosningarnar í Októ-
her sl.
Alþýðuflokkurinn liélt meiri
hluta sínum í hæjum og þorpum
út um land, en í Kaupmanna-
höfn varð hann í minni hluta, í
fyrsta sinn í 29 ár. Hann er þó
ekki veikari en það, að liann er
aðeins einum fulltrúa fámenn-
ari en allir hinir flokkarnir til
samans. Hefir 27 fulltrúa, en
hinir samanlagt 28.
Konnnúnistar töpuðu fylli-
lega 40% af því atkvæðamagni
sem þeir fengu í Kaupmanna-
höfn í Októberkosningunum.
Þetta kallar „Verkamaður-
77/ athugunar.
Eftirfarandi leiðheiningar
liafa blaðinu borist frá jarðrækt
arráðunaut hæjarins, og vill
blaðið hér með korna þeirn á-
leiðis til hæjarbúa. Sjá auglýs-
ingu í síðasta blaði.
„Aðallega í heitum og þurr-
um sumrum gerir blaðlúsin oft
rniklar skemmdir á trjágróðri,
sérstaklega á rifsrunnUm en
einnig víði og hirki o. fl. trjáteg-
undum. Auk þess sem rifsberin
eyðileggjast oftast að mestu, ef
um hlaðlús er að ræða, verður
trjágróðurinn blaðlílill, rytju-
legur og íjótur á miðju sumri.
Skógarmaðkur hefir ennfrem-
ur gert talsverðan usla á birki
undanfarið og rná búast við, að
ef ekkert verður að gert þá fari
þetta mjög versnandi, sérstak-
lega þegar heit og góð sumartíð
er og gróður okkar fær bestu
þroskaskilyrði að öðru leyti. Er
því illa farið ef ekki tekst að
verja trjágarðana að mestu fyr-
ir þessaii meinsemd.
Varanlegustu varnir eru, að
úða tré og runna á veturna t. d.
með Carbokrimp-upplausn. —
Gæta verður þess að úðun verð-
ur að vera lokið áður en brum-
hnappar hyrja að springa út. Ef
seint er úðað t. d. eftir miðjan
Apríl, þarf að nota önnur veik-
Umboðsmannaskifti hafa orð-
oð hér í bænum hjá Máli- og
Menningu. Þórður Valdimars-
son hefir látið af því starfi, en
Pálmi H. Jónsson tekið við. —
Verða bækur félagsins fram-
vegis afhentar í bókahúð Pálrna
Hafnarstræti 105.
inn“ á Laugardaginn var glœsi-
legan kosningasigur!
ari lyf, s. s. Ahoíin eða Krim-
pol. Einnig má dreifa á trjágróð
ur Dana- og * eiturdufti, eu
reynsla erlendis hefir sýnt að
það er ekki jafn örugt og vetr-
arúðun með sterkari lyfjum.
Þar sem trjágróður liggur í
mörgum tilfellum saman þó á
tveim lóðum sé og ennfremur,
að bærinn verður að skoðast
sem einn heildar trjágarður kem
ur að litlum notum gagnráðstaf-
anir vegna skordýraskemmda,
ef ekki allir hæjarbúar, hver og
einn einasti, lætur framkvæma
úðun hjá sér.“
Frá Bílstjórafél. Akureyrar.
Stjórn og trúnaðamannaráð
skorar á alla félaga Bílstjórafé-
lags Akureyrar að taka sem
mestan þátt í 10 kr. veltu Full-
trúaráðs verklýðsfélaganna, sem
efnt er til, til ágóða fyrir hús-
hyggingarsjóð verklýðsfélag-
anna. — Stjórnin.
TILKYNNING
frá Máli og Menningu
Þórður Valdemarsson, um-
boðsmaður okkar á Akur-
eyri, hefir látið af því starfi
og við tekið Pálmi H. Jóns-
son, bókaútgefandi. Bæk-
urnar verða eftirleiðis af-
greiddar í hókabúð
Pálma H. Jónssonar,
.Hafnarstræti 105.
..... 111 ■■ ——■
GÚMMÍSKÓR
fyrirliggjandi.
Skóvinnustofan Strandgötu 15.
Jónatan M. Jónatansson.