Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.06.1947, Blaðsíða 3

Alþýðumaðurinn - 24.06.1947, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 24. júní 1947 : ALÞYÐUMAÐURINN 3 Starf mitt sem sátta- semjari í vinnudeilum Umdasmissáttasemjari, Þorsteinn M. Jónsson, hefir beðið blaðið að birta eftirforondi greinargerð um sótta- störf hans. ALÞÝÐUMAÐURINN Útfefandi: AlfrýtufUkkifilag Akunyrmr Kitstjóri: BRAGl SIGURJÓNSSON. Af freiff tlumaður: Sig. Eyvald, Strandg. 35 Árfengurinn koitor kr. 10.00 LauiaeðluTerff 90 auru in megi liggja við landfestar, og verksmiðjurnar ryðga af notkunai- leysi. Þessir pólitísku ævintýramenn hika ekki við að tefla atvinnu verkamanna í tvísýnu og öllum þjóðarbúskapnum í voða fyrir valdastreitu sína. Þeir i hafa nú sýnt það ljóslega, að þrátt fyrir allt þeirra tal um, að þeir vilji lýðræðislega þróun, þá hafa þeir engu gleymt af sínum gömlu byltingarkenningum, en samkvæmt þeim á stefnan að vera að skapa sí- fellt meira og meira öngþveiti, unz byltingin ríður yfir. En óheilindi þessara vandræða- manna hafa komið víðar fram. Það er nú ljóst, að þau nýsköpunarstörf, sem unnin hafa verið undir handar- jaðri hinna kommúnistisku ráðherra, hafa verið framkvæmd með endem- um. Fjárausturinn og hroðvirknin hefir verið á svo háu stigi, að líkt hefir verið við skemmdarstarfsémi, og ekki að raunalausu. En sem betur fer eru augu þjóðar- innar að opnast fyrir hættunni, sem fylgir starfi þessara manna. íslenzkir verkamenn eru nú sem óðast að átta sig á, út í hverjar ógöngur er verið að leiða þá. Þeir gera sér betur og betur ljóst, að öryggi afkomu þeirra er komin undir því, að rekstur at- vinnuveganna geti gengið með jöfn- um hraða, og að unnt verði að vinna bug á dýrtíðinni í landinu. Þeir vilja vinna að framleiðslunni, þeir vilja skapa verðmæti með hjálp þeirra atvinnutækja, sem þegar hefir verið aflað, og fá önnur í viðbót. Og þó að útsendarar kommúnista horfi á það með ánægju, að nýsköpunin verði rifin niður, þá mega þeir vera þess fullvissir, að verkalýðurinn mun spyrna við fótum og hindra skemmd- árstarfsemi þeirra. Verkamenn munu aldrei láta ginnast til lengdar af því blekkingamoldviðri, sem kommúnist- fyrirar þyrla upp, og þeir munu krefjast á ný þeirra réttinda, sem kommúnistar hafa svift þá í félags- skap sínum. 17. þ. m. voru gefin saman í hjóna- band ungfrú Marta Jónsdóttir (Stef- ánssonar Vopna) og Edvard Sigur- geirsson, ljósmyndameistari. Alþm. óskar brúðhjónunum til hamingju. í níu ár, eða síðan núgildandi lög um stéttafélög og vinnudeilur gengu í gildi, hefi ég verið sáttasemjari í 3. sáttaumdæmi. Eg hefi aldrei sótzt eftir þessu starfi, en hefi verið skip- aður í það af þeim ráðherrum, sem félagsmál hafa heyrt undir, og hefir þó enginn þeirra heyrt til þeim flokki, sem ég hefi talizt til. Vegna allmikilla anna við önnur störf hefir mér oft komið til hugar að biðjast lausnar frá starfa þessum, en þó hætt við það af þeim ástæðum, að mér hefir virzt ég ekki sjaldan verða að liði vinnuþiggjendum og atvinnurekend- um með því að afstýra verkföllum. Eg hefi leyst hverja einustu vinnu- deilu, sem til mín hefir v.erið vísað, og hafa aðiljar oft þakkað mér fyrir, þegar samningar hafa tekizt, og ekki síður vinnuþiggjendur en vinnuveit- endur. Hin seinasta vinnudeila, sem ég hefi verið kvaddur til að leysa, er var á milli síldarverksmiðja ríkisins og verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði, var nokkuð sérstæð. Full- trúar verkamannafélagsins Þróttar og síldarverksmiðj a ríkisins, þar á meðal formenn hvorutveggja aðilja, höfðu gert með sér skriflegan samning 26. apríl sl. og lofað að leggja til út- skurðar fyrir sína umbjóðendur breytingar á verkakaupssamningi, sem þeir voru búnir að koma sér saman um. Þetta skriflega samkomu- lag endaði með svohljóðandi grein: „Breytingar þessar á kaupgjalds- samningnum ber að skoða sem eina heildartillögu og skulu umbjóðendur vorir hafa sagt til eigi síðar en 2. næsta mánaðar hvort þeir samþykki hana og að fengnu samþykki beggja aðila skulu samningar undirritaðir.“ Verksmiðjustjórnin samþykkti til- löguna 2. maí, en stjórn Þróttar bar hana ekki undir atkvæði í félaginu. Strax og ég kom til Siglufjarðar, varð ég þess var, að margir félagar Þróttar voru óánægðir yfir þ.ví, að tillagan skyldi ekki hafa verið borin undir atkvæði félagsmanna. Einnig varð ég þess vís strax og ég byrjaði sáttafund með aðiljum, að erfitt var 'að finna sáttagruncjvöll, er hvoru- tveggja gerðu sig ánægðan með, stjórn Þróttar og stjórn síldarverk- smiðjanna. Eg notaði því þann rétt, sem ég hefi sem sáttasemjari að bera fram mi ðlunartillögu. Var hún í sam- ræmi við samkomulagið frá 26. apríl, sem fulllrúar beggja aðila höfðu lýst sig samþykka, og ég hafði ástæðu til að álíta, að fjöldi af Þróttarfélöguin væru samþykkir. En þá gerðisl það undarlega, að stjórn Þróttar og er- indreki Alþýðusambands íslands beittu sér gegn því, að tillagan væri borin undir atkvæði félagsmanna. En þegar ég árangurslaust hafði reynt samkomulag yið þá um fyrir- komulag atkvæðagreiðslunnar, þá lét ég samt greiða atkvæði um tillöguna samkvæmt heimild í lögum um stétta- félög og vinnudeilur. Eg gaf stjórn Þróttar kost á að skipa kjörstjórn. Því neitaði hún. Eg bauð henni að láta mig fá félagaskrá, því neitaði hún sömuleiðis. Eg bauð henni að auglýsa kjörfundinn. Það gerði hún ekki. Eg gaf henni kost á að hafa* fulltrúa við kosninguna. Það hirti hún ekki um. Eftir skrifum blaðsins „Verka- maðurinn“, sem út kom 13. þ. m. mætti halda, að ég hafi brotið rétt á félögum Þróttar á Siglufirði. Og þetta réttarbrot er í því innifalið, að þeir megi greiða atkvæði um tillög- ur um verkakaupssamning við síld- arverksmiðj ur ríkisins á Siglufirði. Þetta er vægasl sagl undarlegar rétt- ar- og lýðræðishugmyndir. Fjöldamargt í greinum „Verka- mannsins“ um það, sem gerðist á Siglufirði í sáttatilraunum. mínum í máli Þróttar , og yerk.smiðj.an.na,. er alveg rakalaust, .svo sem það, ftð.ég hafi rekið formann Þróttar og;annan stjórnarnieðlim Þróttar af. kjöjcstað. Ennfreniu.r rnargt af því, .sem b.laðið segir,. að ■ gerza hafi á sáttafund.un- um, svo sem að. ég hafi ekki hti.S-.á tillögur samninganefndar. Alþýðu- sambandsins og verkalýSsfélaganna. Þær las ég strax og mér voru afhent- ar þær og sýndi þær verksniiðju- stjórninni. Þó er saga blaðsins um það, að Selfoss hafi átt að bíða í.sól- arhring eftir mér. Sannleikurinn í þessu móli er sá að ég beið í heilan sólarhring eftir Selfossi,.. eftfr að ég var tilbúinn að fara.. Eu.ástæðan tjl þess að Selfoss lá á Siglufirði fram á sunnudagskvöld var sú, eftir því sem afgreiðslan þar sagði mér., að hann gat ekki fengið afgreiðslu á Dalvík um helgina. . Ærumeiðandi' skrifum blaðsins „Verkamaðurinn“ um mig í sam- bandi við sáttasemjarastarf mitt mun verða nánár svarað- á öðrum vett- vangi. ÞoTsteinn M. Jónsson. Bílstjórar Þeir sem vilja dvelja í sumar- heimili Bílstjórafélags Akureyr- ar í sumar, snúi sér til Þórhalls Guðmundssonar, Þórshamri. — Sími 353 og 484. NEFNDIN. H.f. Eimskipafélag íslands: Arður fyrir árið 1946 Aðalfundur félagsins, sem haldinn var 7. þ. m. samþykkti að greiða hluthöfum 4% — fjóra af hundraði — í arð fyrir árið 1946. Arðurinn. verður greiddur á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík, og hjá afgreiðslumönnum þess um land allt gegn framvísun arðmiða. Ennþá eiga allmargir hluthafar eftir að sækja nýjar arðmiða- arkir fyrir árið 1943—1961. Eru það vinsamleg tilmæli félags- ins að hluthafar sæki arðmiðaarkirnar hið fyrsta, en þær éru afhentar gegn framvísun arðmiðastofnsins, sem fylgir hluta- bréfum félagsins, á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík, stofn- unum er ennfremur veitt viðtaka hjá afgreiðslumönnum þess um land allt. ' .. .. ... . Þá skal á það minnst, að arðmiði er ógildur, ef ekki hefir verið krafizt greiðslu á honum áður en 4 ár eru liðin frg.gjald- daga hans. .... . ; H.f. Eimskipafélag íslands.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.