Alþýðumaðurinn - 30.12.1947, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. desember 1947
ALÞfÐUMAÐURINN
ADQLÝSINQ
um innlausn peningaseðla Landsbanka Islands.
(Samkv. lögum nr. 67 frá 1947)
al Frá og-með framtalsdegi, hinn 31. þ. rn., hætta núgildandi peninga-
seðlar Landsbanka Islands að vera löglegur gjaldmiðill manna í milli og
ber því eigendum seðlanna að skipta þeim fyrir aðra nýja hjá þeim inn-
lausnarstofnunum, sem taldar eru bér fyrir neðan.
Frá upþhafi framtalsdags er afhending, viðtaka og sérhver önnur ráð-
stöfun á innkölluðum peningaseðlum óheimil, að undantekinni afhend-
ingu til innlausnar, 31. des. og 2. og 3. jan. n. k. er þó heimilt að nota 5
kr. og 10 kr. seðla til greiðslu farmiða og flutningsgjalds, kaupa á meðul-
um í lyfjabúðum, nauðsynlegri matvöru í smásöluverzlunum og þess
háttar. Viðtaka seðla þessa daga veitir þó ekki viðtakanda heimild iil að
skipta seðlum oftar en eití sinn. Þeim, sem samkv. framanskráðu hafa
rétt til að taka á móti 5 og 10 kr. seðlum fyrstu 3 innlausnardagana, skal
sérstaklega bent á, að seðláskiptin geta aðeins farið fram einu sinni. Er
því eðlilegt að þessir aðilar komi ekki með seðla sína til skipta fyrstu 3
innlausnardagana.
b I Seðlaskiptin fara aðeins fram á tímabilinu 31. þ. m. til 9. janúar n. k.
að báðum dögum meðtöldum. Þó skulu skipverjar og farþegar á íslenzku
skipi, sem ekki hefir verið statt á innlausnarstað á framtalsdegi, eða næstu
9 daga þar á eftir, eiga þess kost að fá seðla sína innleysta á fyrsta inn-
lausnarstað, sem skipið kemur til, enda votti skipstjóri skriflega um fjar-
veru skipsins og að sá, er innlausnar æskir, hafi fylgt skipinu.
c) Til þess að fá seðlum skipt, verða eigendur þeirra, sem eru 16 ára
eða eldri að koma með þá sjálfir, sýna nafnskírteini silt og undirrita inn-
lausnarbeiðni, sem blutaðeigandi innlausnarstofnun lætur í té. Innlausnar-
beiðnin skal undirrituð í tvírili. Beiðni um innlausn á seðlum barns innan
16 ára aldurs skal framfærsluinaður þess koina með, og sýna jafnframt
nafnskírteini sitt. Þeir eigendur seðla, sem heima eiga utan kaupslaða og
kauptúna, eða eru ekki færir um að afhenda seðla síriá sjálfir, mega fela
öðrum að skipla seðlum fyrir sig, enda afhendi þeir þá umboðsmanni
sínum skriflegt uinboð nieð tilgreindri seðlafjárhæð, sem skipta skal, svo
og nafnskírteini sitt til sýnis og áritunar á innlausnarstaðnum. Að sjálf-
sögðu skal umboðsmaðurinn einnig sýna sitt nafnskírteini. Giftum aðil-
um, er skipta seðlum fyrir sig og maka sinn, er nægilegt að sýna annað-
hvort nafnskírteini silt eða maka síns. Beiðni um seðlainnlausn frá óper-
sónulégum aðilum, félögum, stofnunum, sjóðum o. s. frv. eða umboð frá
þeiin til þriðja manns, til skiplanna. skal undirritað af þeim, sein rétt hafa
til að skuldbinda viðkomandi aðila. Sá, er skipta vill seðlum fyrir slíka
aðila, skal sýna nafnskírteini sitt og nafnskírteini þess eða þeirra, sem
undirrita umboð til skiplanna.
dl Sama aðila er algjörlega óheimilt að fá seðla innleysta oftar en í
EITT SKIPTI.
Þó skal þeim, er berast peningar í peningabréfi, sem sett liefir verið í
póst fyrir framtalsdag heimilt, inrian mánaðar frá framtalsdegi, að fá
peningunum skipt, sé peningabréfsumslagið jafnframt afhent.
Sérstök athygli skal vakin ó því, að innihaldi spari-
bauka verður eigi skipt fyrr en dagana 7., 8. og 9. janúar.
Engar afgreiðslur aðrar en seðlaskiptin fara fram í
bönkunum og útibúum þeirra dagana 31. des. og 2. og
3. janúar.
Falli einhverjar greiðslur í gjalddaga á framtalsdegi eða næstu tvo
daga þar á eftir, færist gjalddagi þeirra fram (frestast) um 3 daga.
Neðanskráðar stofnanir utan Reykjavíkur annast seðlainnlausnina:
Utvegsbanki Íslands h.f., Vestmannaeyjum
Sparisjóður Akraness, Akranesi
— Mýrasýslu. Borgarnesi
Ólafsvíkur, Ólafsvík
Stykkishólms, Stykkishólmi
— Dalasýslu, Ásgarði
Kaupfélag Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi
Sparisjóður Rauðasandshrepps, Kvigyndisdal
Eyrarsparisjóður, Patreksfirði
Sparisjóður Arnfirðinga, Bíldudal
— Þingeyrarhrepps, Þingeyri
— Mýrhreppinga, Hjarðardal, Dýrafirði
— Onundarfjarðar, Flateyri
— Súgfirðinga, Suðureyri
•— Bolungavíkur, Bolungavík
Utvegsbanki íslands, útibúið á ísafirði
Landsbanki Íslands, útibúið á Isafirði
Sparisjóður Reykjafjarðarhrepps, Vatpsfirði
— Árneshrepps, Eyri, Ingólfsfirði
Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík
Sparisjóður Hrútafjarðar, Borðeyri
— Vestur-Húnvetninga, Hvannnstanga
— Húnavatnssýslu, Blönduósi
Síldarverksmiðjur ríkisins, Skagaströnd
Sparisjóð'ur Sauðúrkróks, Sauðórkróki
Utvegsbanki Isiands, útibúið ó Siglufirði
Sparisjóður Siglufjarðar, Siglufirði
— Olafsfjarðar, Ólafsfirði
— Dalvíkur, Dalvík
— Hríseyjar, Hrísey
— Akureyrar, Ákureyri
Utvegsbanki íslands, útibúið ó Ákureyri
Landsbanki fslonds, útibúið ó Akureyri
Búnaðarbanki íslands, útibúið ó Ákureyri
Kaupfélag Eyfirðingo, Grímsey
Sparisjóður Höfðhverfinga
— Svaíbdrðsstrandar
— Fnjóskdæla
— Kinnunga
— Mývetninga, Helluvaði
— Aðaldæla, Aðalbóli
— Húsavíkur, Húsavík
Sparisjóður Norður-Þingeyinga, Kópaskeri \
Raufarhafnar og nágrennis, Raufarhöfn
Þórshafnar og nágrennis, Þórshöfn
Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði
Borgarfjarðar, Borgarfirði eystra \
Utvegsbanki íslands, útibúið á Seyðisfirði
Sparisjóður Norðfjarðar, Norðfirði • i
Landsbánki Islands, útibúið á Eskifirði
Kaupfélag Iléraðsbúa, Egilsstöðum
— Héraðsbúa á Reyðarfirði
Sparisjóður Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Stöðfirðinga, Stöðvarfirði
—* Stöðfirðinga, Breiðdalsvík
— Benifjarðar, Djújiavogi
— Austur-Skaftfellinga, Hornafirði
— Skaftfellinga, Kirkjubæjarklaustri
Sparisjóður Vestur-Skaftafellssýslu, Vík í Mýrdal
Rangárvaliasýslu, Garðsauka
Ilolta- og Ásahrepps, Rauðalæk
Landsbanki Islands, útibúið á Selfossi
Sparisjóður Keflavíkur, Keflavík
Hafnarfjarðar, Hafnarfirði
Innlausnarstaðir í Reykjavík verðo auglýstir síðar.
Reykjavík 18. des. 1947
Laodsbenki Islands