Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 30.12.1947, Page 3

Alþýðumaðurinn - 30.12.1947, Page 3
Þriðjudagur 30. desember 1947 ALÞfÐUMAÐURINN ADQLÝSINQ um innlausn peningaseðla Landsbanka Islands. (Samkv. lögum nr. 67 frá 1947) al Frá og-með framtalsdegi, hinn 31. þ. rn., hætta núgildandi peninga- seðlar Landsbanka Islands að vera löglegur gjaldmiðill manna í milli og ber því eigendum seðlanna að skipta þeim fyrir aðra nýja hjá þeim inn- lausnarstofnunum, sem taldar eru bér fyrir neðan. Frá upþhafi framtalsdags er afhending, viðtaka og sérhver önnur ráð- stöfun á innkölluðum peningaseðlum óheimil, að undantekinni afhend- ingu til innlausnar, 31. des. og 2. og 3. jan. n. k. er þó heimilt að nota 5 kr. og 10 kr. seðla til greiðslu farmiða og flutningsgjalds, kaupa á meðul- um í lyfjabúðum, nauðsynlegri matvöru í smásöluverzlunum og þess háttar. Viðtaka seðla þessa daga veitir þó ekki viðtakanda heimild iil að skipta seðlum oftar en eití sinn. Þeim, sem samkv. framanskráðu hafa rétt til að taka á móti 5 og 10 kr. seðlum fyrstu 3 innlausnardagana, skal sérstaklega bent á, að seðláskiptin geta aðeins farið fram einu sinni. Er því eðlilegt að þessir aðilar komi ekki með seðla sína til skipta fyrstu 3 innlausnardagana. b I Seðlaskiptin fara aðeins fram á tímabilinu 31. þ. m. til 9. janúar n. k. að báðum dögum meðtöldum. Þó skulu skipverjar og farþegar á íslenzku skipi, sem ekki hefir verið statt á innlausnarstað á framtalsdegi, eða næstu 9 daga þar á eftir, eiga þess kost að fá seðla sína innleysta á fyrsta inn- lausnarstað, sem skipið kemur til, enda votti skipstjóri skriflega um fjar- veru skipsins og að sá, er innlausnar æskir, hafi fylgt skipinu. c) Til þess að fá seðlum skipt, verða eigendur þeirra, sem eru 16 ára eða eldri að koma með þá sjálfir, sýna nafnskírteini silt og undirrita inn- lausnarbeiðni, sem blutaðeigandi innlausnarstofnun lætur í té. Innlausnar- beiðnin skal undirrituð í tvírili. Beiðni um innlausn á seðlum barns innan 16 ára aldurs skal framfærsluinaður þess koina með, og sýna jafnframt nafnskírteini sitt. Þeir eigendur seðla, sem heima eiga utan kaupslaða og kauptúna, eða eru ekki færir um að afhenda seðla síriá sjálfir, mega fela öðrum að skipla seðlum fyrir sig, enda afhendi þeir þá umboðsmanni sínum skriflegt uinboð nieð tilgreindri seðlafjárhæð, sem skipta skal, svo og nafnskírteini sitt til sýnis og áritunar á innlausnarstaðnum. Að sjálf- sögðu skal umboðsmaðurinn einnig sýna sitt nafnskírteini. Giftum aðil- um, er skipta seðlum fyrir sig og maka sinn, er nægilegt að sýna annað- hvort nafnskírteini silt eða maka síns. Beiðni um seðlainnlausn frá óper- sónulégum aðilum, félögum, stofnunum, sjóðum o. s. frv. eða umboð frá þeiin til þriðja manns, til skiplanna. skal undirritað af þeim, sein rétt hafa til að skuldbinda viðkomandi aðila. Sá, er skipta vill seðlum fyrir slíka aðila, skal sýna nafnskírteini sitt og nafnskírteini þess eða þeirra, sem undirrita umboð til skiplanna. dl Sama aðila er algjörlega óheimilt að fá seðla innleysta oftar en í EITT SKIPTI. Þó skal þeim, er berast peningar í peningabréfi, sem sett liefir verið í póst fyrir framtalsdag heimilt, inrian mánaðar frá framtalsdegi, að fá peningunum skipt, sé peningabréfsumslagið jafnframt afhent. Sérstök athygli skal vakin ó því, að innihaldi spari- bauka verður eigi skipt fyrr en dagana 7., 8. og 9. janúar. Engar afgreiðslur aðrar en seðlaskiptin fara fram í bönkunum og útibúum þeirra dagana 31. des. og 2. og 3. janúar. Falli einhverjar greiðslur í gjalddaga á framtalsdegi eða næstu tvo daga þar á eftir, færist gjalddagi þeirra fram (frestast) um 3 daga. Neðanskráðar stofnanir utan Reykjavíkur annast seðlainnlausnina: Utvegsbanki Íslands h.f., Vestmannaeyjum Sparisjóður Akraness, Akranesi — Mýrasýslu. Borgarnesi Ólafsvíkur, Ólafsvík Stykkishólms, Stykkishólmi — Dalasýslu, Ásgarði Kaupfélag Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi Sparisjóður Rauðasandshrepps, Kvigyndisdal Eyrarsparisjóður, Patreksfirði Sparisjóður Arnfirðinga, Bíldudal — Þingeyrarhrepps, Þingeyri — Mýrhreppinga, Hjarðardal, Dýrafirði — Onundarfjarðar, Flateyri — Súgfirðinga, Suðureyri •— Bolungavíkur, Bolungavík Utvegsbanki íslands, útibúið á ísafirði Landsbanki Íslands, útibúið á Isafirði Sparisjóður Reykjafjarðarhrepps, Vatpsfirði — Árneshrepps, Eyri, Ingólfsfirði Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík Sparisjóður Hrútafjarðar, Borðeyri — Vestur-Húnvetninga, Hvannnstanga — Húnavatnssýslu, Blönduósi Síldarverksmiðjur ríkisins, Skagaströnd Sparisjóð'ur Sauðúrkróks, Sauðórkróki Utvegsbanki Isiands, útibúið ó Siglufirði Sparisjóður Siglufjarðar, Siglufirði — Olafsfjarðar, Ólafsfirði — Dalvíkur, Dalvík — Hríseyjar, Hrísey — Akureyrar, Ákureyri Utvegsbanki íslands, útibúið ó Ákureyri Landsbanki fslonds, útibúið ó Akureyri Búnaðarbanki íslands, útibúið ó Ákureyri Kaupfélag Eyfirðingo, Grímsey Sparisjóður Höfðhverfinga — Svaíbdrðsstrandar — Fnjóskdæla — Kinnunga — Mývetninga, Helluvaði — Aðaldæla, Aðalbóli — Húsavíkur, Húsavík Sparisjóður Norður-Þingeyinga, Kópaskeri \ Raufarhafnar og nágrennis, Raufarhöfn Þórshafnar og nágrennis, Þórshöfn Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði Borgarfjarðar, Borgarfirði eystra \ Utvegsbanki íslands, útibúið á Seyðisfirði Sparisjóður Norðfjarðar, Norðfirði • i Landsbánki Islands, útibúið á Eskifirði Kaupfélag Iléraðsbúa, Egilsstöðum — Héraðsbúa á Reyðarfirði Sparisjóður Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði Kaupfélag Stöðfirðinga, Stöðvarfirði —* Stöðfirðinga, Breiðdalsvík — Benifjarðar, Djújiavogi — Austur-Skaftfellinga, Hornafirði — Skaftfellinga, Kirkjubæjarklaustri Sparisjóður Vestur-Skaftafellssýslu, Vík í Mýrdal Rangárvaliasýslu, Garðsauka Ilolta- og Ásahrepps, Rauðalæk Landsbanki Islands, útibúið á Selfossi Sparisjóður Keflavíkur, Keflavík Hafnarfjarðar, Hafnarfirði Innlausnarstaðir í Reykjavík verðo auglýstir síðar. Reykjavík 18. des. 1947 Laodsbenki Islands

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.