Alþýðumaðurinn - 24.12.1948, Page 3
J Ó LIN 1948
J Ó LIN 1948
Atyýámaáuiiiin
..Eg er Ijós heimsins; hver, sem jylgir mér, mun ekki
ganga í myrkri, heldur haja Ijós líjsins.“
Það var sú tíð — að minnsta kosti í sveit-
um — að þeir lögðust þungt á hugi manna
stuttu. desemberdagarnir með löngu dimmu
nóttunum — og oft vildi fylgja með frost
og fjúk og stundum erfið fœrð. Þetta hafði
lamandi áhrif á starfsþrefc og lífsgleði
fólksins — það var því mikils virði að eiga
í vœndum Ijósgjafa, er veitt gæti gleði og
bjartsýni. Jólin voru í nánd með töfrabirtu
og fögnuði.
Þeir, sem ungir eru og í kaupstað liafa
dvalið, vita tæplega, hversu erfitt gat ver-
ið hér áður fyrr á sumum bœjum í sveit að
hafa hgtíðleg jól hið ytra (í mat og öðru).
Stundum varð bóndinn að fara í kaupstað,
með létta fjárupphæð — fara gangandi í
ófærð og ótíð og með bagga á baki. En
mikil var gleðin, þegar heimilisfaðirinh
kom heim. Þá voru kröfurnar minni, en
nú. gleðin og jólafögnuðurinn þó eins mik-
ill.
Frá alda öðli hafa jólin verið hátíð til '
þess að fagna sigri Ijóssins. Ljósþráin er
mönnum ásköpuð í bókstaflegum skilningi.
Jólin koma, þegar léttir dimmasta skamm-
degi og dagarnir lengjast af því, að sól
hækkar á lofti. En jólin hafa einnig þau
áhrif, að Ijósið hið innra í mannssálinni
tendrast. Við sýnum flest eða öll viðleitni
í því að verða batnandi menn. Við brjótum
hvassasta broddinn af skaplöstum okkar.
Harðlyndur maður verður mildari, sá geð-
mikli stillir sig betur, og alkunna er, að
aldrei eru menn eins örlátir á fé til þess að
'gleðja aðra eins og um jólin. Þetta, sem hér
hefir verið nefnt — og margt annað, sem
fylgir jólunum, bendir ákveðið til J)ess, að
þá er neisti guðseðlisins óvenju skýr og
fagur. En það er skel eða brynja heims-
JÓLABLAÐ ALÞÝÐUMANNSINS 1948
1