Alþýðumaðurinn - 24.12.1948, Síða 27
Norðra- bækurnar
eru nú eins og ávallt glæsilegustu jólagjafirnar, og eftir engri hefir verið beðið
með jafnmikilli óþreyju eins og bókinni um
GÖNGUR OG RÉTTIR.
Þetta er I. bindið og fjallar um göngur og réttir sunnan og vestanlands, og er fullt af
myndum. Margir fróðleiksmenn í bændastétt hafa hér lagt hönd að verki og gætt hana
fjölbreytni og raunsæi, lit og lífi. Lýst er gangnasvæðum og gangnatilhögun, sagt frá
minnisverðum fjallferðum og eftirleitum, og ekki má gleyma frásögnum af Land- og
Skeiðaréttum. Enginn verður fyrir vonbrigðum, sem les Göngur og réttir.
GENGIÐ Á REKA
eftir Kristján Eldjárn. — í þessari sérstæðu bók eru tólf þættir um íslenzkar forn-
leifar, gripi í ÞjóSminjasajninu og rannsóknir merkra fornminja úti um land.
HORFNIR GÓÐHESTAR,
þættir um góðhesta í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum eftir stílsnillinginn Asgeir Jóns-
son frá Gottorp. Fjöldi hesta- og mannamynda er í bókinni.
SVIPIR OG SAGNIR ÚR HÚNAÞINGI.
Þetta eru frásagnaþættir, ritaðir af margfróðum og langminnugum alþýðumönnum,
sem gæddir eru frábærri frásagnargáfu.
Munið, að
Allar þessar bækur eru um þjóðleg
an fróðleik, eins og talaðar út úr hjarta
þjóðarinnar sjólfrar. Enginn mó neita
sér um þó ónægju að lesa þær og eiga.
BÆKURNAR
eru kærkomnasta jólagjöfin.