Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 22.03.1949, Side 4

Alþýðumaðurinn - 22.03.1949, Side 4
4 ALÞYÐUMAÐURINN Þriðjudagur 22. marz 1949 Frumvarp a9 heildarlöggjöt um húsnæðismál væntanlegt á Alþingi. AS tilhlutan félagsmálaráðuneyt'- isins hefir nefnd fróSra og hæfra manna samiS frumvarp aS heildar- löggjöf um húsnæSismál, og er þaS byggt á hliSstæSri löggjöf um mál þessi á NorSurlöndum. Þetta er mikill frumvarpsbálkur í 90 gr., og verSur innan skamms lagSur fyrir alþingl til meSferSar. Þar er meSal annars gert ráS fyrir aS húsaleigunefndirnar verSi lagSar niSur, en sérdómi í Reykjavík og HafnarfirSi faliS að fjalla um þessi mál, en annars staðar á landinu hér- aSsdómara ásamt tveim meSdóm- endum. Samkvæmt bráSabirgðarákvæði í frumvarpi þessu verður húsnæði vegna atvinnureksturs og einstök herbergi ekki háð lögbuiidinni leigu, VARASTÖÐ? Gísli Halldórsson h.f. hefir boðiS Rafveitu Akureyrar til kaups diesel rafal samstæðu 6300 volt. 50 rið 3 fasa fyrir 25.30Ó dollara fob. New York. Vélin er lítið notuð, og verð- ur yfirfarin fullkomlega fyrir sölu og fylgir ábyrgðarvottorð. Rafallinn er nýr og ónotaður. Dieselvélin er General Motors model 900 hestöfl, 600 k\v. Ef hér er um góða samstæðu að ræða. virðist verðið xnjög hagstætt. Rafveitustjórnin hefir málið íil at- hugunar. og uppsagnarréttur húseigenda verð- ur rýmkaður, ef þeir sjálfir eða ná- komnustu æltingjar þarfnast við- komandi húsnæðis. Dráttarvélin „Poný“ Orka h.f. hefir nú fengið hingað til landsins fyrstu dráttarvélina frá Massey-IIarris verksmiðj unum. Er hún af svonefndri ,,Pony“gerð, og er ný framleiðsla. Vél þessi er 13 hestöfl að styrk- leika, og hýst Orka h.f. við að geta flutt inn allmargar vélar af þessari gerð nú í ár. Tvö meginatriSi eru öðruvísi við vél þessa en aðrar, sem flutzt hafa hingað til lands áður. í fyrsta lagi I er sláttuvélin, sem er innbyggð, fyr- ! ir framan afturhjólin, svo að stjórn- j andi dráttarvélarinnar sér vel til : hennar jafnframt því sem liann stýr- ir, og í öðru lagii er vökvaútbúnaður á vélinni, sem lyftir sláttuvélarlj án- um, ef komið er við tilheyrandi handfang. MeS dráttarvélum þess- um má fá öll nauðsynleg tæki auk sláttuvélarinnar, svo sem plóga, herfi, ámoksturstæki, fjölyrkja og ýtur. Öllum þessum tækjum er stjórnað með vökvaútbúnaði drátt- arvélarinnar. K/AFTA' I STÓLNUM I Með því að hlusta á tal manna á förnum vegi heyrum við margt, sem annars færi fram hjá okkur. Þetta datt mér í hug um daginn, þegar ég hlustaði á tal tveggja verkamanna um þá ákvörðun bæjarstjórnarinnar að lána úr byggingarsjóð bæjarins til einstaklinga. Mér hafði ekki fundizt þetta óskynsamleg ráðstöf- un, en verkamennirnir voru á ann- arri skoðun. Annar sagði: „Eg hefi alllaf skiliS þaS svo, að hlutverk hyggingarsjóðs bæjarins væri aS kosta byggingar yfir þá bæjarbúa, sem engin tök liefðu á að hyggja yfir sig sjálfir, þ. e. fátækar, barnmargar verkamannafjölskyldur. MeS því ' að ráðstafa byggingar- sjóðnum í annað, eru þessir um- komulitlu íbúar sviptir a. m. k. um sinn líklega dýrmætustu voninni, sem þeir hafa alið með sér nú um tíma. Mér finnst þetta grimmdarleg ráðstöfun.“ Ilinn svaraði: „Já, mér finnst bæjarfélagið hefði átt að kunna aðra útvegi íil að styðja viðleitni manna til að byggja sjálfir á annan veg en þann að taka frá öðrum. Það er alveg augljóst mál, að bærinn verSur að eiga tals- vert íbúðarhúsnæði, ef nokkru sinni á að búa heiðarlega að fátæk- asta hluta íbúanna. Þessu hefir nú v verið skotið á frest um tíma. Mér finnst bæjarstjórnin hafa verið glámskyggn.“ Við erum jafnaðarmenn Islend- ingar, víst er svo. Er það í. d. ekki jöfnuSur að flytja inn ameríska fólksbíla í tugatali handa „prívat- mönnum", en nær enga handa bíl- stjórunum sjálfum? Er það ekki dá- samlegt fyrirkomulag að láta svell- ríka einstaklinga fá nýja bíla með innflutningsverSi, en atvinnubílstj. meS tvö- til þre-földu innflutnings- verði? Er það ekki jöfnuður, að benzín sé dýrara þar, sem minna er að gera við akstur? T. d. er benzín- líterinn hér 7 aurum dýrari en í Reykjavík. Þá er viðhaldskostnaður hér sagður mun meiri en í Reykja- vík, bæði vegna verri vega og mik- illar keyrslu með keSjum, en eigi fá bílstjórar hér að taka meira fyrir vinnu sína, og enn örðugra er fyrir þá að fá nýja bila. Hér er bara svo ódýrt að lifa! Hornklofi. X SPA RNA ÐARNEFND Á síðasta bæjarstjórnarfundi var kosin fjögurra manna nefnd sam- kvæmt íillögu Svavars Guðmunds- sonar og Jóns. Sólnes til að athuga um rekstur bæjarins. Kosnir voru-: Friðjón SkarphéSinsson GuSmundur Guðlaugsson Jón Jngimarsson Svavar Guðmundsson. Sjómenn ag útgerðarmenn fellclu miðlunartillögu sáttasemjara. S. 1. föstudag greiddu togarasjó- menn og útgerðarmenn atkvæði um miSlunartillögu sáttasemjara ríkis- ins í togaradeilunni. Felldu báðir aðilar hana með miklum atkvæða- mun. ER LENGUR NAIJÐ- SYNLEGT að jafna niður 10'% hærri útsvarsupphæð en fjárhags- áætlun nefnir? Á undanförnum árum hefir það veriS venja að jafna 10% hærri út- svarsupphæð niður á bæjarbúa en fjárhagsáætlun hvers árs hefir til- greint. Er þetta varúðarráðstöfun vegna vanheimta. Ef þetta verður enn gert í ár, verða útsvörin þvi ekki 5.042.160.00 krónur heldur 5.546.376.00 krónur eða % miljón krónum hœrri, en fjárhagsáœtlun gerir ráð fyrir. Þegar um þvílíkar upphæðir er að fjalla og hér eru, virSist athugandi, hvort vanheimtuprósentin væru ekki nægileg 5 í staS 10. ER AÐ KOMA SKRIÐ- UR Á ELLIHEIMILIS- MÁLIÐ? Kvenfélagið FramtíSin hefir ósk- að þess, að bærinn legSi fram- bygg- ingar sjúkrahússins „Gudmans Minde“ íjl stofnunar elliheimilis. — MáliS er í athugun. Rétt er aS vekja athygli forgöngu- manna máls þessa hér á því, að sam- kvæmt Almannatryggingalögunum hefir Tryggingastofnun ríkisins og félagsmálaráðuneytiS æðstu ráð í máli þessu, enda er Tryggingastofn- unin framlagsskyld til stofnkosínað- ar sé settum skilyrðum fullnægt. •—- Virðist einsætt, að hér séu samráS höfð. Kirkjan. Miðvikudag: FöstuguSsþjón- usta í kapellunni kl. 8.30. — Sunnudag: Sunnudagaskólinn kl. 11 f. h. — Messa kl. 2 e. h. — Fundur yngri deildar æskulýðs- félagsins kl. 8.30 í kapelluhni. Spilakvöld halda AlþýSuflokksfélögin á Ak- ureyri n. k. föstudag að Hótel NorS- urlandi kl. 8.30 e. h. fyrir félaga og gesti. SpiluS verður félagsvist og verð- laun veitt. DansaS á eftir. Félagar eru áminntir að koma með spil og blýant. AlhýSajlokksíélag Akureyrar. Kvenjélag AlþýSuflokksins. Félag ungra jafnaðarmanna.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.