Alþýðumaðurinn - 07.02.1950, Blaðsíða 3
lu'iðjudagur 7. febrúar 1950
A L JÞ Y Ð U M A Ð U R 11\ N
3
Tvöfaldi skatturinn hans
Hauks eða hjálparanda hans
ALÞÝÐUMAÐURINN
Utgefandi:
AlþýSuflokksfélag Akureyrar.
Ritstjóri:
Bragi Sigurjónsson, Bjarkastíg 7.
Sími 604.
Verð 15.00 kr. á ári.
PrentsmiSja Björns Jónssonar h.j.
L......
G Ó Ð A R
KVIKMYNDIR
Skjaldborgarbíó sýnir um þess
ar mundir »Gleym mér ei« með
Benjamino Gigli í aðalhlutverki.
Söngur þessa heimsfræga söng-
vara nýtur sín ágætlega í mynd-
inni, en jafnfranrt er
söguþráðurinn ástarsaga, talsvert
spennandi. Blaðið vill ráðleggja bœj-
arbúum og gestkomandi að sjá þessa
mynd, en sýningum á henni mun
ljúka um næstu helgi, eftir því sem
blaðið hefir frétt.
Fleiri góðar myndir munu vera
framundan í Skjaldborg svo sem:
Gullna borgin, írska villirósin, Nótt
í Feneyjum o. fl.
Og í þessum mánuði mun Skjald-
borgarbíó fá stórmyndina Konung-
ur konunganna með inntöluðum ís-
lenzkum tex!a og fer vel á því að fá
þessa mynd til sýninga nú á föst-
unni. Er ekki að efa, að rnyndin
verði vel sótt eins og síðast, þegar
hún kom hingað fyrir mörgum ár-
um. Þar sem hún nú flytur skýring-
ar á íslenzku máli, er hún enn meiri
fengur fyrir alþýðu manna. Senni-
lega mun Skjaldborgarbió sýna
þessa mynd annars slaðar en í
Skjaldborg, en óráðið enn, hvar það
verður. Þar sem bíóið sýnir svo oft
góðar myndir, er leitt, að það skuli
ekki hafa stærri og betri bíósal og
þarf að vinna að því, að svo geti
orðið sem fyrst.
HEILSUVERND,
tímarit Náttúrulækningafélags ís-
lands, 3. hefti 1949, er nýkomið út,
fjölbreytt og vandað að efni og frá-
gangi. Úr efnisinnihaldi má nefna
þetta: Græni Krossinn í Sviss (Jónas
læknir Kristjánsson). Leið út úr
ógöngum, hugleiðingar um tóbaks-
nautn (Vilhjáimur Þ. Bjarnar).
Vörn og orsök krabbameins III.
Krabbamein er hægfara eitrun
(Björn L. Jónsson). Heitur matur
og krabbamein. Rannsókn á áhrifum
mataræðisins um meðgöngutímann
á sængurkonuna og barnið. Lungna-
krabbi og reykihgar. Spurningar og
Hvenær sem Alþm. hefir bent á
ranglæti það í skatt- og útsvars-
álagningu á KEA, að ekki mætti
leggja á þann verzlunargróða, sem
enginn arður vœri greiddur aj, ef
hann aðeins telst fenginn af skiptum
við félagsmenn, þá hefir blaðið
Dagur ætíð rekið upp óp mikið og
haldið því fram, að Alþm. væri að
heimta tvöfalda álagningu á verzlun-
argróðann: fyrst þénustu félagsins
og síðan þær tekjur félagsmanns-
ins, sem arðurinn væri.
I 5. tbl. Dags, 21. janúar s. 1.
stendur t. d. þessi prúðmannlega
klausa:
„Furðulegt Icosningaprógramm.
Góðviljaðir bæjarmenn hafa
haft tilhneigingu til þess að líta
á skrif Alþýðumannsins að und-
anförnu, sem ómerkt ómaga-
fleipur og lýsingu á sálarástandi
ritsljórans. Mun sú skoðun eiga
þó nokkurn stuðning í veruleik-
anum. Hins vegar verður ekki
gengið fram hjá hinu nána sam-
starfi íhalds og svokallaðra „al-
þýðu“foringja, þegar flokkur-
inn birtir sérprentað kosninga-
ávarp,
þar sem það er beinlínis gert
að stefnuskráratriði í vœnt-
anlegum kosningum, að
leggja tvöjaldan skatt á sam-
vinnumenn og hejta jram-
sókn samvinnufélaganna í
atvinnumálum með óréttlátri
og heimshulegri skafíheimtu.
Mun það sannast sagna, að
þessi afstaða Alþ.fl. hér sé eins-
dæmi á Vesturlöndum.“
Svo mörg voru þau viturlegu orð.
En 25. janúar var ritstjóri Dags
alveg búinn að gleyma, hvaða get-
sakir hann hafði gert Alþfl., því að
þá birtast þessi vísdómsorð í blað-
inu:
„Það er hart að þurfa að skýra
svona auðskilið mál. Arður, sem út-
hlutaður er félagsmömium, getur —
ahlrei orðið tekjuskatts- eða útsvars-
skyldur.“ (Leturbr. Dags).
En hví ertu þá alltaf að stagast á
tvöfalda skattinum, Haukur sæll?
Væri ekki viðkunnanlegra, þegar
svör. Uppskriftir. Félagsfréttir o. fl.
— Ritstjóri er Jónas Kristjánsson,
læknir.
að hafa þá a. m. k. samræmi í ósann-
indunum?
Þelta er sagt „samvinnu“-riturun-
um við Dag til alhugunar.
Erfið afkoma K.E.A.
I skýrslu sinni á hinum árlega
félagsráðsfundi KEA á framkvæmd-
arstjórinn, að frásögn Dags, að hafa
ialið afkomu félagsins mun lakari
1949 en 1948, en þá íaldi fram-
kvæmdarstjórinn afkomu félagsins
svo erfiða, að horfur voru á, að eng-
inn arður yrði greiddur til félags-
manna, þótt að lokum yrði niður-
staðan sú, að 4% arður var .greidd-
ur.
Samkvæmt þessum upplýsingum
framkvæmdarstjórans má búast við
2% arði í ár í mesta lagi, sennilega
ekki nema 0% arði.
Mun nú mörgum fara að verða
óskiljanlegt, hvernig minni verzlan-
ir fara að því að halda sér á floti,
þegar gamalt og gróið kaupfélag eins
og KEA aðeins berst í bökkum.
Verzlunin Hrísey
Gránufélagsgötu 18
hefir opnað að nýju. — Þar fást
flestar
matvörur,
hreinlœtisvörur,
búsáhöld o. jl.
Lítið inn og reynið viðskiptin.
Verzlunin Hrísey
Verzlunin Hrísey
Strósykur
Molasykur
Púðursykur
Kandíssykur
Skrautsykur.
Aðalfundur
F. U. J. heldur aðalfund sinnmið-
vikudaginn 8. febrúar kl. 8,30 að
Túngötu 2. -— Allir þeir sem. vildu
gerast félagar eru beðnir að mæta.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félagá.
2. Venjuleg aðálfundarstörU.
3. Ferðasaga frá Landsmóti SUJ.
4. Onnur mál. . '
Félágar eru aminirtir um að fjöl-
menna og koma riíéð ftýja félagá.
Stjörnin.
Nokkrar lögregluþjónsstöður á Akureyri eru
lausar til umsóknar. Umsóknir sendist undirrit-
uðum fyrir 20. þ. m. - Upplýsingar um .aldur,
menntun og fyrri störf fylgi.
Bæjarfógetinn á Akureyri 1. febrúar 1950.
/
mj