Alþýðumaðurinn - 04.07.1950, Blaðsíða 1
Einingarviljinn í orOi
og á boröi
Um árabil hefir kommúnistum
hér á landi verið munntamast og
pennafastast í baráttunni fyrir
stefnu sinni innan verkalýSshreyf-
ingarinhar orðið EINING. Þeir vita
sem er, að verkalýðnum er ljós sú
staðreynd, að langæskilegast væri,
að hann gengi einhuga og samstillt
til haráttu fyrir hagsmunum sínum,
og þeir hafa vonað, að alltaf yrði
verulegur hópur innan raða verka-
lýðsins, sem meir hlustaði á áróður-
inn í ræðu og riti, heldur e» læsi
með gaumgæfni úr gögnum stað-
reyndanna.
Að nokkru leyti hefir kommúnist-
um orðið að von sinni,. en að veru-
legu leyli ckki, og slíkt hefir ágerzt
í seinni líð.
Eins og alkunnugt er, náðu
kommúnistar völdum í Alþýðusam-
bandi íslands með samningum við
IhaldiÖ og stuðningi þess. Ekki leið
þó á löngu, að skynsamari menn
Sjálfstæðisflokksins sáu, að þeir
höfðu gert alvarlega skyssu, og þeir
gerðust hikandi í styrk sínum við
kommúnista. Það, sem mestu réði
þó um, að kommúnistar misstu tök-
in á ASÍ á síðasta þingi þess, var,
að fjölmörg verkalýösfélög höfðu
orðið fyrir hitrum vonhrigðum meö
sljórn kommúnista, ekki sízt þau
móttarminni, sem fyrst og fremst
höfðu þurft á stoð ASÍ að halda.
Kommúnistarnir liöfðu semsé látiö
gullin tækifæri ónotuð til að ná sam-
ræmingu kaups í landinu, og þann-
ig óbeinlínis — og sums staöar opin-
skátt — haldið niðri kaupi á smærri
stöðum úti á landi.
Hér þarf ekki að rekja viðbrögð
kommúnisla gagnvart tapi sínu á
yfirráðum ASÍ. Sú saga, svo ömur-
leg sem hún er, mun öllum verkalýð
í fersku minni.
En af þeim viðbrögðum verður
æ fleirum í verkalýðsstéttinni það
ljóst, að kommúnistar eru aðeins
einingarmenn í orði, en engir á
borði.
Um langt skeið hefir íslenzkum
verkalýð ekki riðið meir á því en
nú að koma fram í hagsmunamálum
sín*m sem órofa heild. Að honum
er kreppt nú á slíkan hált, að mjög
ríður á traustri og viturlegri fory6tu
og öryggri fylgd.
Hvernig hafa nú kommúnistar
brugðizt við þessum alvörumálum?
Vér höfum séð sýnishorn af því
undanfarið í Þjóðviljanum og herg-
málsblöðum hans: Stjórn ASÍ er
hrakyrt og horin öllum hinum verstu
sökum, af því að hún hefir tilkynnt
þá stefnu sína, að óráðlegt sé að
stofna til kaupdeildna að svo
stöddu, en hvetur félögin til að hafa
lausa samninga, ef nauður ræki til
róltækra aðgerða í kjaramálum.
Þjóðviljinn og fylgiblöð hans
halda því semsé fram, að þegar sé
rétt að heimta kauphækkanir.
Nú má vitanlega færa að því mörg
Og sterk rök, að kauphækkana sé
þörf. Þaö má líka færa að því sterk
rök, að kaupdeilur séu lítt æskilegar
nú. Bæði rökin verður að meta.
Stjórn ASÍ hefir reynt þetla eftir
getu og lýst yfir niðurstöðu sinni.
Kommúnistar liafa líka metið þessi
rök, og komizt að nákvœmlega söimi
niðurslöðu að því er staðreyndirnar
sýna, þótt þeir tali og riti annað.
Það er semsé alkunnugt, að komm-
únistar hafa aldrei skiyzt við að
heila fyrir vagn sinn verkalýðsfélög-
um þeim, sem þeir hafa lök á, ef
þeir hafa haldið sér ávinning að
því, og ekkert hirt um, hvort sam-
þykki ASÍ væri til staðar eða ekki,
ef andstæðingar þeirra réðu þar
ríkjum. Nú segir Þjóðviljinn, að
sjálfsagt sé að ganga til kaupdeilna.
En hví heldur þá Dagshrún að sér
höndum? Mjölnir, blað kommúnisla
á Siglufirði, hergmálar hið sama,
en hví sber Þróttur á Siglufirði þá
ekki upp herör? Verkamaðurinn hér
endurómar orð Þjóðviljans, en hví
sefur þá Björn Jónsson á verðinum?
Svarið er ósköp einfalt: Komm-
Framh. á 2. síðu.
Kosin stjörn iyrir
Laxárvirkianiiia
Á síðasta bæjarstjórnajfundi var
samþykkt endanlega af bæjarins
hálfu, að Laxárvirkjun skyldi verða
sameign ríkis og bæjar. Skip!ast
eignarhlutföll þannig, að við undir-
skrift samnings milli ríkis og hæjar
hér um verður ríkið eigandi að 15
hundraöshlulum núverandi virkjun-
ar endurgjaldslausl. Þegar þeirri
virkjun lýkur, sem nú slendur fyrir
dyrum, verður ríkið eigandi að 35
hundraðshlutum, en hærinn 65
hundraðshlutum, og eftir þar næstu
virkjun verður orkuverið helmings-
eign ríkis og bæjár. Sín ó milli bera
ríki og bær ábyrgð á lánum og öðr-
um greiösluskuldbindingum orku-
versins í sama hlutfalli og eignin
skiptist hverju sinni. Meðan á nýrri
virkjun stendur skulu þó aðilar bera
jafna áhyrgð á lánum, sem tekin eru
til þeirrar .aukningar, og framlögð-
um kos naði við liand.
Meðan Akureyrarhær á meiri-
hluta Laxárvirkjunar, kýs hann 3 af
5 stjórnarmönnum hennar, en ríkis-
stjórn tilnefnir 2. Samkvæmt þessu
var kosið í stjórn virkjunarinnar af
hálfu bæjarstjórnar á síðasta fundi
hennar. Kosningu hlutu:
Kristinn Guðmundsson, j
Steinn Steinsen og
Steindór Steindórsson.
Ríkisstjórnin mun ekki hafa til-
nefnt formlega að sínum hluta í
stjórn virkjunarinnar, en því er
fleygt, að hún muni tilnefna Jakob
Frímannsson og Indriða Helgason.
Er nú vonandi, að einhver skrið-
ur fari að komast 'á framkvæmd ný-
virkjunar Laxár, en ekkert hefir
gengið né rekið í því máli um langt
skeið.
— Nýjo - bíó —
í kvöld kl. 9:
NÓTTIN LANGA
(The long night)
Amerísk kvikmynd frá R K 0
Radio Pictures.
Aðalhlutverk:
Henry Fonda
Barbara Bel Geddes
Vincent Price
Ann Dvorak ■■:
Bönnuð 16 ára og yngri.
Einor Krisfjánsson,
óperusöngvari,
héll söngskennntun hér í Nýja-Bió
s. 1. miðvikudag. Við píanóið var
frk. Guðrún Kristinsdóttir. S'öngvar
inn söng lög eftir Schubert, Melar-
tin, Grieg, Donizetti, Puccini,
Björgvin Guðmundsson, Sigfús Eín-
arsson og Sigvalda Kaldalöns.
Var söngvaranum tekið forkunn-
arvel, enda unun á hann að hlýða,
og varð hann að syngja 3 aukalög.
Óviðkunnanlegt var það á söng-
skemmtuninni, að söngvarinn fékk
varla og undirleikarinn alls ekki að
ljúka sumum lögunum, áður en sum-
ir áhéyrenda tóku að klappa og
klappa. Slíkt er ókurteisi, en enginn
hylling við listamenn.
9