Alþýðumaðurinn - 06.02.1951, Side 1
ft lþí|ÍiuraaíEi utr úux
XXI. árg.
Þriðjuudagux- 6. febrúai' 1951
Annað mesta ílugslys hér á landi:
Flupélin Glitfaxi ferst með
20 mönnum
Síðastliðinn miðvikudag vildi það
slys til, að Glitíaxi, Douglas-ílugvél.
eign Flugfélags íslands h.f., fórst ó
leiðinni frá Vestmannaeyj um til
Reykjavíkur. 1 vélinni voru 17 far-
þegar og þriggja manna áhöfn, alls
20 manns, og fórust þeir allir.
Nánari alvik voru þau, að Glitfaxi
og önnur Douglas-flugvél til fóru frá
Reykjavík til Vestmannaeyja síðdeg-
á miðvikudag, og héít Glitfaxi til
ís a
baka um kl. 16.35, en hin vélin um
20 mín. síðar, og mun engin farþegi
hafa verið með henni. Veðuv var
gott, en dimmt yfir, svo að fljúga
varð blindflug. Á Reykjavíkurflug-
velli var vindur 3—4 stig, og gekk
öðru hvoru á með sortaéljum. Kl.
16.58 var Glitfaxi kominn yfir
stefnuvitann á Álftanesi og bjóst til
lendingar á flugvellinum, en í því
gekk að með eilt élið, svo að flug-
stjóranum var sagt að hækka flugið
og bíða þess að élinu slotaði. Kl.
17.14 hafði svo flugturninn síð-
ast samband við vélina. Hafði hún
þá lækkað sig á ný og bjóst til nýrr-
ar lendingartilraunar. Var hún í um
200 m. hæð og stödd utan við Álfta-
nes.
Þegar ekkert hevrð'st meira í Glit-
faxa voru tafarlaust gerðar ráðstaf-
anir til leitar. Var vélarinnar leitað
allt kvöldið, fimmtudagsnóttina og
til hádegis á fimmtudag, en þá
fannst brak úr vélinni vestur af
Álftanesi, reyndist það við rannsókn
úr gólfi vélarinnar og með nokkr-
um stólfestingum á. Sunnar og nær
landi sást og mikil olíubrák á sjón-
um, og þótti nú ölhun sýnt, hver orð-
ið höfðu örlög vélarinnar: Hún
hafði steypzt í Faxaflóa og allir, sem
í henni voru, beðið bana samstundis.
Seinni vélin, sú farþegalausa, lenti
hins vegar heilu og hölchiu á Reykja-
víkurflugvelli. Svo undarlega geta
örlögin hagað ferðum sínum.
Þeir, sem fórust með Glitfaxa,
voru þessir:
Áhöfn vélarinnar var: Ólafur Jó-
hannsson, flugstjóri, Páll Garðar
Gíslason, aðs oðarflugmaður, og
Olga Stefánsdóttir, flugþerna, öll til
heimilis í Reykjavík.
Farþegar voru: Herjólfur Guð-
jónsson, Sigurjón Sigurjónsson,
Páll Jónasson, María Hjarlardóttir,
Björn Gunnarsson (barn), Jón
Steingrímsson, Þorsteinn/ Stefánsson
og Snæbjörn Bjarnason öll frá Vest-
mannaeyjum, Sigfús Guttormsson,
Héraði, Magnús Guðmundsson og
Guðmundur Guðmundsson, Keflavík,
Sigurbjörn Meyvantsson, Gunnar
Stefánsson, Ágúst Ilannesson og Ól-
afur Jónsson frá Reykjavík, Guð-
mundur Guðbjarnarson, Arnarholti,
Mýrum og Hreggviður Ágústsson,
Neskaupstað.
Ríkisstjéroin kastar enn
stríðshanzkanum að íátækari
stéttanum.
Með gengislækkuninni í fyrra
varpaði Sjálfstæði og Framsókn
stríðshanzkanum að launastéttum
landsins og bændum. Þá héldu bænd-
ur, að stríðsáskorunin væri fyrir-
heit urn stöðvun og festingu verð-
’ags vinnu og vara, launþegar töldu
ekki fullvíst nema flokkar þessir
vildu af alvöru freista úrræða sinna
til hcilla alþjóðar, og ekki væri rétt
að hindra þá í því að óreyndu.
Fljótt sýndi þó alvöruleysi þess-
ara flokka sig í bará’.tu gegn vax-
andi dýrt'ð, og í annað sinn varp-
aði ríkisstjórn Framsóknar og Sjálf-
stæðis stríðshanzka sínum, er hún
gaf út bráðabirgðalögin frægu um
að svíkja af vísitölu þeirri, er geng-
islækkunarlögin höfðu þó gert ráð
fyrir, að greidd yrði.
í þetta sinn mun nær öllum laun-
þegum hafa orðið Ijóst, að einskis
nema fulls fjandskapar var að vænta
í þeirra garð af ríkisstj órnarinnar
hálfu, en verkalýðurinn taldi sig
hins vegar varbúinn því á haustdög-
um að leggja lil úrslitadl'ustu við
hið tvíhöfðaða afturhald, heldur tók
þann kost að samræma varnir sínar
sem bezt annars vegar, en treysta
sóknarstyrk sinn hins vegar.
I þriðja sinn varpaði ríkisstjórn-
in stríðshanzka sínum fyrir jól í vet-
ur með breytingu á gengislækkunar-
lögunum. Það hanzkakast tókst þó
Framhald af 1. síðu
5. tbl.
— Nvia bíó —
I kvöld kl. 9:
SONUR
FRUMSKÓGÁRINS
(„Bomba, ihe jungle boy“)
Aðallilulverk:
JOHNNY SIIEFFIELD
PEGGY ANN GARNER
Sýning í kvöld:
FRÚ MEKE
Dragið ekki að sjá þessa ágætu
mynd.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Áiþýðuflokksfélögin
á Akureyri
halda
S p i1 o k v ö1 d
að Hótel Norðurlandi föstud. 9.
febrúar 1951, kl. 8.30 e.h.
Spiluð verður félagsvist. — Verð-
laun veitt. Dansað til kl. 1.
Félagsmenn eru beðnir að hafa
með sér spil og blýant.
Alþýðujloklcsfélag Akureyrar.
Kvenjélag A Iþýðuflokksins.
Félag ungra jajnaðarmanna.
msmmsz