Alþýðumaðurinn - 24.04.1951, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUMAÐURINN
Þriðjudagur 24. april 1951
VerkalýðsfélögiD hefja
varnarstríð sitt.
Loftþrýstiborinn gerir niargt auðvelt, sem áður var óvinnandi.
Framh. af 1. síðu.
greiðslu á kaup. Standa að þessum
samtökum félög með bæði komm-
únistiskum og andkommúnistiskum
stjórnum, enda öllum augljóst, sem
um þessi mál hugsa af rökvísi, að
hér verður ao neyta samtaka og
samstarfs út í yztu æsar. Satt bezt að
segja, eru fjölmargir íylgjendur
stjórnarflokkanna einnig á þeirri
skoðun, að kröfur verkalýðsins um
fulla vísitölugreiðslu á kaup séu
fulíkomlega réttmælar, eins og nú er
komið málum og eins og ríkisstjórn-
in hefir haldið á spilum. Eru því
nokkrar vonir til, að barátta verka-
lýðssamtakanna fyrir þessu réttlæt-
ismáli verði ekki löng, þótt sjálfsagt
sé fyrir þau að búast við hinu illa,
því að það góða skaðar ekki, eins og
þar stendur. Samstaðan öflug og
órofa skiptir meslu og umfram allt
þarf verkalýðurinn að vera á verði
gegn því, að íhaldið múti foringjum
kommúnista til svika.
Svo sem kunnugt er af fréttum
hafa um 15 félög í Reykjavík sagl
upp samningum sínum við atvinnu-
rekendur. Einnig félögin í Hafnar-
firði, Vestmannaeyjum, Akranesi og
ísafirði. Verkföll hafa komið til
framkvæmda hjá Verkakvennafélag-
inu Framtíðin í Hafnarfirði, og
stendur það nú yfir, og Verkalýðsfél.
Vestmanneyja, en það hefir nú fresl-
að verkfalli fram í maí. Sömuleiðis
Baldur á ísafirði, sem boðað hafði
verkfall 20. þ. m.
Verkalýðsfélagið Báran á Eyrar-
bakka hefir þegar samið um íulla
vísitölugreiðslu á kaup. Og Hafnar-
fjarðarbær hefir samið við Frarn-
tíðina um hið sama í allri vinnu fé-
lagskvenna hjá Hafnarfjarðarbæ.
Af öllum þeim fréttum, sem nú
berast frá samtökum verkalýðsins, er
þannig augljóst, að maí og júnímán-
uðir n. k. verða reynslumánuðir fyr-
ir samtökin. Hversu öflug eru þessi
samtök? Sigra þau, eða verður
Framsókn—Sjálfstæði að ósk sinni
um að í þeim sé alvarlegur brestur?
Þetta þurfa verkamenn að hafa hug-
fast umfram allt:
Ekkert mundi gleðja íhaldið í
landinu meira en ef samtökin skorti
samheldni. Ekkert tækifæri verður
látið ónotað, sérstaklega af hálfu
íhaldsins, til að ala á sundurþykkj u,
ef nokkurs staðar verða gefin tilefni
til hennar. Þess vegna verða verka-
menn að vera vel á verði. Þeir þurfa
að liafa það hugfast, að hér er um
faglegt mál að ræða, um efnahags-
lega afkomu þeirra að berjast. Þess
vegna verða þeir að slanda órofa
saman.
Síðasio afSasaía Svoibaks.
Síðastliðinn miðvikudag seldi log-
arinn Svalbakur afla sinn í Grimsby,
4063 kits, fyrir 15530 sterlingspund.
Mun þetta vera þriðja bezta sala ísl.
togara á þessu ári.
Noregskonungur
gefur verðlaunabikar fil
samnorrænu sundkeppn-
innar.
Hákon Noregskonungur hefir til-
kynnt, að hann gefi verðlaunabikar,
sem afhentur verður þeirri þjóð, er
ber sigur af liólmi í samnorrænu
sundkeppninni í sumar. Hefir Nor-
egskonungur falið hirðgullsmið sín
um að teikna og smíða bikar þenn-
an.
heldur fund þriðjudaginn 24. apríl
n. k. í Túngötu 2 kl. 8.30 síðdegis.
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Dýrtíðar-, atvinnu- og kaup-
gjaldsmál. Framsögu hafa Sig.
M. Helgason, Sigurður Kristj-
ánsson, Stefán Snæbjörnsson
og Halldór Friðjónsson.
w:
Félagsmenn, fjölmennið á fundinn.
STJÓRNIN.
í stuttu máli
Fulllrúakjör á aðalfund Kron fór
nýlega fram í Reykjavík. Kosið var
milli tveggja lista, er fram komu:
lista félagsstjórnar og lista lýðræðis-
sinnaðra samvinnumanna. Hlaut sá
fyrrnefndi 2319 atkv., en hinn síðar-
nefndi 1575 atkv. 1923 félagsmenn
neyttu ekki atkvæðarétlar síns.
Hafnarfjarðarbær hefir fest kaup
á tveimur steinkerjum í Hollandi.
Verða þau notuð til að lengja nýja
hafnargarðinn í Hafnarfirði. Er bú-
izt við kerjunum upp til landsins í
júlí n. k.
Félagsdómur hefir úrskurðað upp-
sögn samninga og vcrkfallsboðun á
Akranesi ógilda. Felldu fjórir af
fimm dómendunum þann úrskurð,
en hinn fimmti, forseti A.S.I., Helgi
Hannesson, vildi úrskurða uppsögn
og vcrkfallsboðun gilda.
Ernesl Bevin, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra brezku jafnaðar-
mannastjórnarinnar andaðist 14.
apríl sk, sjötugur að aldri. Bana-
mein hans var hjartabilun. Bevin
þykir hafa verið með aðsópsmestu
stjórnmálamönnum Breta í seinni
tíð.
Verkföll og óeirðir liafa staðið yf-
ir undanfarið á olíulindasvæðinu í
Suður-Iran. Hafa óeirðirnar beinzt
gegn Anglo-Iran olíufélaginu þar, en
það er brezkt fyrirtæki að mestu eða
öllu leyti.
Svo virðist sem óeirðirnar séu af
þjóðernislegum rótum runnar að
einhverju leyti, en Persar hyggjast
nú þjóðnýta olíulindir sínar, svo
sem kunnugt er af fréttum útvarps
og blaða.
Brezki kafbáturinn Affrey hefir
farizt á Ermasundi. Hafði hann 70
manna áhöfn og komst enginn af.
Fimmtugur verður Svanberg Ein-
arsson, afgreiðslumaður íslendings,
firamtudaginn 26. apríl n. k.
Hjálprœðisherinn. Offursti D. Welander
frá Noregi og Majór B. Petersen stjórna
sanikomum á [irið'judags- og miðvikudags-
kvöld kl. 8.30. Söngur og hljóðfærasláttur.
Aliir velkomnir.
Nýjar kosningar í Bret-
landi?
Bevan, verkalýðsntálaráðherra í
brezku jafnaðarmannastjórninni,
hefir sagt af sér vegna ágreinings
um fj árlagafrumvarp stjórnarinnar.
Sömuleiðis Harald Wilson, verzlun-
armálaráðherra. Er jafnvel búizt
við, að úrsagnir fleiri ráðherra
kunni að fylgja á eftir, og mun þá
skannnt til nýrra kosninga í Bret-
landi.